Fréttir

true

Fjölga bakvaktardýralæknum vegna álags

Dýralæknum á bakvakt á Norðurlandi vestra hefur nú verið fjölgað um óákveðinn tíma úr einum í tvo. Þetta er ákvörðun dýraverndunarsviðs Matvælastofnunar og er til komið vegna reynslu undanfarinna vikna um að vaktsvæðið er of víðfeðmt og illfært á veturna til að einn dýralæknir geti sinnt öllum útköllum, einkum þegar illa viðrar. Tilefnið var gul…Lesa meira

true

Engin flugeldaslys á Vesturlandi um nýliðin áramót

Áramótin fóru að mestu friðsamlega fram í umdæmi Lögreglustjórans á Vesturlandi að þessu sinni. Mest um vert var að engin slys voru tilkynnt af völdum flugelda í umdæminu þessi áramótin, að sögn lögreglu. Aðfararnótt gamlársdags sást til manna sem óku um Akranesbæ og köstuðu flugeldum út úr bíl. Hafðist uppi á mönnunum sem lofuðu að…Lesa meira

true

Fallega skreytt hús og glæsilegasta piparkökuhúsið

Menningarnefnd Snæfellsbæjar óskaði eftir tillögum frá íbúum um fallega skreytt jólahús í Snæfellsbæ ásamt keppni um fallegasta piparkökuhúsið. Voru piparkökuhúsin til sýnis í Þín Verslun Kassinn og gáta bæjarbúar skoðað þau þar. Menningarnefnd tilkynnti svo sigurvegarana á sunnudeginum fyrir jól. Að þessu sinni var jólahús Snæfellsbæjar valið Skipholt 1 en þar búa hjónin Gylfi Scheving…Lesa meira

true

Samkomulag vegna loðnuleitar í höfn

Hafrannsóknarstofnun mun greiða útgerðum sem leggja stofnuninni lið við loðnuleit helming þess kostnaðar sem af úthaldinu hlýst, samtals um 30 milljónir króna. Útgerðirnar munu leggja tvö skip til við loðnuleitina, sem munu leita ásamt rannsóknarskipi Hafró. Morgunblaðið greinir frá. Þar er eftir Sigurði Guðjónssyni, forstjóra Hafrannsóknarstofnunar, að honum sé léttir að samkomulagið sé í höfn.…Lesa meira

true

Vatnstruflanir vegna rafmagnsleysis

Truflanir urðu á afhendingu á heitu og köldu vatni í Borgarnesi og köldu vatni í hluta Borgarfjarðar í gærkvöldi, þriðjudaginn 7. janúar, vegna rafmagnstruflana. Um var að ræða rafmagnsbilanir í Norðurárdal annars vegar og frá Vatnshömrum að Hafnarmelum hins vegar. „Það sem gerðist í gær var að það urðu truflanir á afhendingu rafmagns. Dælurnar okkar…Lesa meira

true

Björgunarsveitarfólk er Vestlendingar ársins 2019

Skessuhorn – fréttaveita Vesturlands, hefur staðið fyrir vali á Vestlendingi ársins undanfarna tvo áratugi. Sem fyrr var auglýst eftir tilnefningum frá almenningi sem ritstjórn vann úr. Niðurstaðan var afgerandi. Vestlendingar ársins 2019 eru björgunarsveitarfólk á Vesturlandi. Það hefur nú sem fyrr sýnt hversu mikilvægt starf þess er fyrir samfélagið allt, íbúa jafnt sem gesti. Hinn…Lesa meira

true

Keppa í Gettu betur í kvöld

Keppni í Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna á RÚV, hófst á mánudagskvöld. Keppt var einnig á þriðjudag og lokakvöld fyrstu umferðar fer fram í kvöld. Þá mæta til leiks Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi og Menntaskóli Borgarfjarðar. Fjölbrautaskóli Snæfellinga sendir ekki lið til keppni þetta árið. Fjölbrautaskóli Vesturlands mætir liði Fjölbrautaskólans í Vestmannaeyjum kl. 19:30. Lið FVA…Lesa meira

true

Garnaveiki greindist í Húnavatnshreppi

Rétt fyrir jól var garnaveiki staðfest í kind á bænum Reykjum í Húnavatnshreppi. Garnaveiki hefur greinst í sauðfé á tveimur öðrum bæjum í Húna- og Skagahólfi síðastliðin tíu ár. Garnaveiki er ólæknandi smitsjúkdómur í jórturdýrum, en með bólusetningu er hægt að verja sauðfé og geitur fyrir sjúkdómnum og halda smitálagi í lágmarki. Á bæjum sem…Lesa meira

true

Perlað af Krafti á Akranesi í dag

Kraftur hvetur alla sem eru búsettir á Akranesi og nágrenni að perla með sér nýtt „Lífið er núna“ armband í dag, miðvikudaginn 8. janúar. Kraftur mun þá leggja leið sína í bæjarfélagið og verður í Grundaskóla milli klukkan 16:30 og 20:00. „Armböndin sem um ræðir eru í sannkölluðum norðurljósalitum og eru sérstök afmælisarmbönd í tilefni…Lesa meira

true

Fiskmarkaður Íslands kaupir nýja ísvél í Rif

Seint á síðasta ári keypti Fiskmarkaður Íslands nýja og öfluga ísvél sem komið var fyrir í útibúi fiskmarkaðarins í Rifi. Stefnt er að gangsetningu hennar á næstu dögum, en hún kemur til með að framleiða 20 tonn af ís á sólarhring. Vélin var keypt af KAPP ehf. í Garðabæ, sem einnig annaðist uppsetningu á dreifikerfi…Lesa meira