
Hafrannsóknarstofnun mun greiða útgerðum sem leggja stofnuninni lið við loðnuleit helming þess kostnaðar sem af úthaldinu hlýst, samtals um 30 milljónir króna. Útgerðirnar munu leggja tvö skip til við loðnuleitina, sem munu leita ásamt rannsóknarskipi Hafró. Morgunblaðið greinir frá. Þar er eftir Sigurði Guðjónssyni, forstjóra Hafrannsóknarstofnunar, að honum sé léttir að samkomulagið sé í höfn.…Lesa meira








