Fréttir

true

Friðbjörn ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Fisk Seafood

Snæfellingurinn Friðbjörn Ásbjörnsson hefur verið ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri FISK Seafood ehf. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að auk almennra verkefna fyrir félagið muni hann í krafti reynslu sinnar á liðnum árum sinna sérstaklega starfseminni á Snæfellsnesi. „Friðbjörn starfaði áður sem framkvæmdastjóri Soffaniasar Cecilssonar hf. sem m.a. gerir út skip og rekur fiskverkun í Grundarfirði. FISK Seafood…Lesa meira

true

Fyrirlestur og sýning að Nýp á Skarðsströnd

Næstkomandi laugardag klukkan 15 mun Helga Kress, prófessor emeritus við Háskóla Íslands, flytja erindi að Nýp á Skarðsströnd í Dölum. Erindið kallar hún Blómmóðir besta. Sögð verður saga konunnar í lífi og ljóði Jóns Thoroddsen: Kristínar Ólínu Thoroddsen, sem fædd var Sívertsen (1833-1879). Sagan verður sögð út frá bréfaskriftum. Í erindi sínu tengir Helga kvenlýsingar…Lesa meira

true

Hannar heillandi fígúrur úr ullarflóka

Áslaug Rafnsdóttir starfaði sem lögfræðingur í yfir 20 ár en er nú hætt á vinnumarkaðinum. Þrátt fyrir skrifstofuvinnu um ævina er henni margt fleira til lista lagt. Hún hefur undanfarin ár varið miklum tíma í föndur og útbýr allskonar fígúrur úr ull þessa dagana og kveðst hafa gaman af. Blaðamaður Skessuhorns kíkti til Áslaugar um…Lesa meira

true

Framlög til viðhalds styrkvega skorið niður um þriðjung

Sveitarfélög á landsbyggðinni þurfa að sækja um svokallað styrkvegafé til Vegagerðarinnar ætli þau að láta lagfæra vegi sem eru í þeirra umsjón. Um er að ræða malarvegi sem taka við þar sem þjónustu Vegagerðarinnar lýkur svo sem þar sem jarðir hafa farið í eyði eða gamlir vegir liggja að sumarhúsahverfum svo dæmi séu nefnd. Venju…Lesa meira

true

Bæjarstjórinn grillaði pylsur fyrir foreldra

Síðastliðinn fimmtudag kom saman hópur foreldra barna í Leikskólanum í Stykkishólmi auk kennara og annarra bæjarstarfsmanna. Tilefnið var að laga til í garði leikskólans. Hópurinn gróðursetti plöntur, smíðaði útieldhús fyrir börnin, lagði þökur í sár sem höfðu myndast í grasinu og gerði við leiktæki. „Þetta tókst mjög vel til og mæting var til fyrirmyndar og…Lesa meira

true

Gæludýraverslun opnuð á Akranesi

Verslunin Dýrabær var opnuð á Akranesi í byrjun júní og að sögn Maríu Þórunnar Friðriksdóttur umsjónarmanns verslunarinnar hafa viðtökur Skagamanna verið mjög góðar. „Ég þekki vel til þess vöruúrvals sem Dýrabær býður uppá, svo mér þótti upplagt að Dýrabær opnaði verslun hér og hafði samband við eigendurna sem tóku vel í það,“ segir María. Nýja…Lesa meira

true

Akrafjallsvegur malbikaður í kvöld og nótt

Í kvöld þriðjudagskvöld og næstu nótt er stefnt að því að malbika 3,7 km langan kafla á Akrafjallsvegi. Veginum verður lokað, hjáleiðir og viðeigandi merkingar settar upp meðan á framkvæmd stendur. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að áætlað sé að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 20:30 og 07:00 í fyrramálið.Lesa meira

true

Stytta vinnuvikuna í Skýjaborg

Hvalfjarðarsveit ætlar að stytta vinnuviku starfsfólks í leikskólanum Skýjaborg um fimm klukkustundir á viku þegar starfsfólk kemur til starfa eftir sumarfrí. Um er að ræða tilraunaverkefni til tveggja ára og er megintilgangurinn að fjölga leikskólakennurum og bæta starfsaðstæður í Skýjaborg. „Mikilvægur punktur varðandi styttingu vinnuvikunnar er að þrátt fyrir að 100% starfshlutfall verði 35 klukkustundir…Lesa meira

true

Dagur íslenska fjárhundsins er 18. júlí

Dagur íslenska fjárhundsins verður haldinn hátíðlegur í þriðja sinn miðvikudaginn 18. júlí. „Á þessu ári fögnum við 100 ára fullveldi og því er enn meiri ástæða til þess að vekja athygli á menningararfi okkar – íslenska fjárhundinum. Þema dagsins að þessu sinni er: Íslenski fjárhundurinn er fjölskylduvinur. Að venju eru eigendur íslenskra fjárhunda hvattir til…Lesa meira

true

Sjö útvarpsmessur voru teknar upp í Reykholti

Í lok aprílmánaðar voru sjö útvarpsmessur teknar upp í Reykholtskirkju í Borgarfirði og voru kirkjukórar, prestar, lesarar, organistar og aðrir hljóðfæraleikarar sem tóku þátt í verkefninu. Upptökumaður Ríkisútvarpsins var Einar Sigurðsson og umsjónarmaður verkefnisins var Margrét Bóasdóttir, söngmálastjóri. Búið er að útvarpa flestum þessum messum, en tvær eru eftir. Sunnudaginn 15. júlí verður útvarpað messu…Lesa meira