
Matvælastofnun varar við neyslu á frosnum maísbaunum vegna gruns um listeríu. Upplýsingar komu um innköllunina í gegnum RASFF, evrópska viðvörunarkerfið um hættuleg matvæli á markaði. Fyrirtækið Samkaup mun í samráði við heilbrigðiseftirlit Suðurnesja, innkalla vöruna af markaði. Verslanir munu fá upplýsingar og fjarlægja maísinn af markaði. Uppruni maísbaunanna er frá Ungverjalandi og ungverska fyrirtækið Greenward…Lesa meira








