
Síðastliðinn fimmtudag lauk kvikmyndasmiðju hjá Símenntunarmiðstöð Vesturlands og Starfsendurhæfingu Vesturlands á Akranesi með frumsýningu á verkinu „Með prump í sketzinum.“ Kvikmyndasmiðjan er 21 mínúta að lengd og er unnin í samstarfi við Muninn kvikmyndagerð og hafði Heiðar Mar Björnsson kvikmyndagerðarmaður umsjón með smiðjunni. Frumsýnt var í Bíóhöllinni á Akranesi þar sem áhorfendur skemmtu sér konunglega…Lesa meira








