Fréttir

true

Vatn Hítarár fer nú um Tálma og hefur slæm áhrif á umhverfið

Rúmum sólarhring eftir skriðufallið mikla í Hítardal hefur Hítaráin komið sér í nýjan farveg. Finnbogi Leifsson bóndi í Hítardal skrifar á Facebook síðu sína að áin renni nú suður fyrir skriðuna yfir sand og hraunsvæði og niður í Tálma sem rennur svo í Hítarána ekki langt ofan við þjóðveg 54. „Þetta er að hluta gamall…Lesa meira

true

Ógnar velferð og þjónustu við börn

Kvensjúkdóma- og fæðingalæknar auk svæfingalækna hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem komin er upp í kjaradeilu ljósmæðra. „Við tökum undir ályktun læknaráðs Landspítala og yfirlýsingu sérfræðilækna við Kvennadeild Landspítala og skorum á deiluaðila að finna lausn á málinu sem allra fyrst. Það er mikilvægt að sérþekking og ábyrgð…Lesa meira

true

Bálhvasst verður við Hafnarfjall og á norðanverðu Snæfellsnesi

Veðurfræðingar vara enn og aftur við hvassviðri í kvöld og senda gula viðvörun. „Suðvestan- og Vestanlands hvessir þegar líður á daginn með skilum lægðar sem fer fyrir vestan land. Suðsuðaustan-átt og  reikna má með hviðum allt að 30-35 m/s sérstaklega við Hafnarfjall og á norðanverðu Snæfellsnesi. Búast má við að veðrið standi yfir til klukkan…Lesa meira

true

Sennilega stærsta jarðvegsskriða frá landnámi

Skriðan sem féll úr Fagraskógarfjalli í Hítardal í gær er líklega stærsta skriðufall hér á landi frá landnámi. Milljónir rúmmetra af grjóti og aur  hrundu úr fjallinu og stíflaði m.a. farveg Hítarár. Meðfylgjandi drónamynd tók Sumarliði Ásgeirsson ljósmyndari Skessuhorns í gær og sýnir  myndin glöggt umfang skriðunnar.Lesa meira

true

Ekkert ferðaveður í kvöld fyrir tæki sem taka á sig vind

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun þar sem varað er við ferðalögum síðdegis í dag og í kvöld á svæðinu við Faxaflóa, Breiðafjörð, Vestfirði, Strandir, Norðurland vestra og á miðhálendinu. Búist er við suðaustan hvassviðri eða stormi. Fer vindur í meira en 20 metra á sekúndu í þessum landshlutum þegar líður á daginn og í…Lesa meira

true

Gabríel er sá rauðhærðasti

Hinn 15 ára gamli Skagamaður, Gabríel Ísak Valgeirsson, var í gær valinn rauðhærðasti Íslendingurinn 2018 en valið var kunngjört á Akratorgi þar sem fram fór fjölskylduskemmtun á Írskum dögum. Dómnefndin var skipuð þremur starfsmönnum Gaman ferða sem bjóða einmitt sigurvegaranum flug til Dublin fyrir tvo. Margt var um manninn og fjölbreytt skemmtiatriði á dagskrá, en…Lesa meira

true

Milljónir rúmmetra hrundu úr Fagraskógarfjalli

Skriðan sem féll í morgun úr Fagraskógarfjalli á Mýrum er tvímælalaust með stærstu jarðvegsskriðum sem fallið hafa í síðari tíð hér á landi. Milljónir rúmmetra frá fjallsrótum og upp undir topp á fjallinu hrundu og nær skriðan um hálfan kílómetra frá fjallinu. Gera verður ráð fyrir að gríðarleg úrkoma í vor og sumar hafi hleypt…Lesa meira

true

Annir hjá björgunarsveitarfólki í dag

Björgunarsveitir á Vesturlandi voru í dag kallaðar út í tvö aðskilin útköll. Koma þurfti manni til aðstoðar sem slasað hafði sig á fæti við Bröttubrekku. Þá voru björgunarsveitir kallaðar út í tengslum við skriðufallið úr Fagraskógarfjalli skammt frá Hítardal á Mýrum. Viðbragðsaðilar voru fengnir til að meta ástand á vettvangi, tryggja öryggi og manna lokanir…Lesa meira

true

Risastór skriða féll úr Fagraskógarfjalli

Í morgun féll mörg hundruð metra breið og efnismikil grjótskriða úr Fagraskógarfjalli, skammt neðan við Hítardalsvelli á Mýrum. Skriðan fór yfir Hítará og stíflaði ána. Að sögn Finnboga Leifssonar bónda í Hítardal féll skriðan mörg hundruð metra yfir landið sunnan ár og er hún sem fjall á að líta. „Það má líkja þessu við náttúruhamfarir.…Lesa meira

true

Undirbúa 90 ára afmæli Skallagrímsgarðs

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar í gær var samþykkt að stofna afmælisnefnd Skallagrímsgarðs þar sem garðurinn verður 90 ára árið 2020. Þriggja manna nefnd verður skipuð sem í sitja fulltrúar frá Kvenfélagi Borgarness, sveitarfélaginu og starfsmaður garðsins. Umhverfisfulltrúi Borgarbyggðar verði starfsmaður nefndarinnar.Lesa meira