Fréttir

true

Undirbúa 90 ára afmæli Skallagrímsgarðs

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar í gær var samþykkt að stofna afmælisnefnd Skallagrímsgarðs þar sem garðurinn verður 90 ára árið 2020. Þriggja manna nefnd verður skipuð sem í sitja fulltrúar frá Kvenfélagi Borgarness, sveitarfélaginu og starfsmaður garðsins. Umhverfisfulltrúi Borgarbyggðar verði starfsmaður nefndarinnar.Lesa meira

true

ÍA konur á góðri siglingu

Skagakonur unnu sannfærandi sigur á Hömrunum þegar liðin mættust í Akraneshöllinni í áttundu umferð Inkassodeildar á miðvikudaginn. Ljóst var að heimastúlkur áttu góðan möguleika á sigri þar sem andstæðingarnir að norðan dvelja í neðri hluta deildarinnar sem hafa ekki átt góðu gengi að fagna það sem af er tímabilsins. Vestlendingar byrjuðu af krafti í upphafi…Lesa meira

true

Bærinn skreyttur og dagskrá Írskra daga hafin

Bæjarhátíðin Írskir dagar á Akranesi er nú hafin. Í gær voru nokkrir dagskrárliðir en í dag þéttist dagskráin og hápunkti nær hún á morgun laugardag. Skreytingar eru nú víða á torgum og stemning að búa um sig. Skessuhorn vísar á dagskrá á opnu í blaði vikunnar, en þar ættu allir að geta fundir eitthvað við…Lesa meira

true

Hefja leik á EM í flokki U20 landsliða

Á morgun, laugardag mun U20 kvennlandslið Íslands í körfu hefja leik á EM í B-deild en mótið er í Ordadea í Rúmeníu. U20 kvennaliðið er fyrsta yngra landsliðið af sex sem hefur keppni á þessu sumri á EM en í kjölfarið á næstu dögum og vikum fara á EM U20 karlar, U18 stúlkur og drengir…Lesa meira

true

Var birtingarmynd hins trygga og trausta stuðningsmanns

Hópur velunnara Skagaliðsins í knattspyrnu stóð nýverið að kaupum á málverki eftir Bjarna Skúla Ketilsson, Baska, lismálara frá Akranesi. Málverkið er af Pálma Ólafssyni (1913-1988). Pálmi var einlægur stuðningsmáður Skagaliðsins um áratugaskeið. Í hópi áhorfenda var hann áberandi persóna og mörgum eftirminnilegur. Hann var aufúsugestur á leikjum liðsins og naut samvista og vináttu við marga…Lesa meira

true

Óbreytt röðun ánna sem mest hafa gefið

Ágæt laxveiði var síðustu vikuna í laxveiðiánum þrátt fyrir fremur lágt hitastig. Mikið af nýgengnum fiski er víða og vatnsbúskapurinn góður eins og gefur að skilja. Komnar eru nýjar veiðitölur á vef Landssambands veiðifélaga. Samantektin er frá veiði í lok síðasta miðvikudags. Röð efstu þriggja ánna á landinu er óbreytt frá síðustu viku. Þverá og…Lesa meira

true

Landsmót UMFÍ hefur tekið breytingum í tímans rás

Landsmót UMFÍ fer fram dagana 12.-15. júlí á Sauðárkróki í Skagafirði og verður talsvert annar bragur á mótinu í ár. Skessuhorn setti sig í samband við Sigurð Guðmundsson, sem tók við sem framkvæmdastjóri UMSB fyrr á þessu ári, á skrifstofu hans í Borgarnesi. Hann er fenginn að segja frá þeim breytingum sem fyrirhugaðar eru á…Lesa meira

true

Reglur um borholur til umsagnar

Orkustofnun hefur gert drög að reglum um borholur, sem lúta að skráningu, hönnun og frágangi borholna, sem og skil á upplýsingum til Orkustofnunar. Drögin eru til umsagnar almennings og hagsmunaaðila. Umsagnir berist fyrir 15. september 2018 á netfangið os@os.is eða með skriflegum hætti til stofnunarinnar. Í lögum um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu…Lesa meira

true

Myndband: Minningarsjóður í nafni Einars Darra

Átján ára piltur, Einar Darri Óskarsson, lést á heimili sínu í Hvalfjarðarsveit 25. maí síðastliðinn. Aðstandendur hans hafa stofnað minningarsjóð í hans nafni og hafa nú sent frá sér forvarnarmyndbandið „Ég á bara eitt líf“. Í myndbandinu tjá sig meðal annarra foreldrar Einars Darra og systkini. Myndbandið er fyrsti hluti forvarnarverkefnisins #egabaraeittlif sem gengur út…Lesa meira

true

Vinnu við uppgröft víkingaskálans í Ólafsdal lokið að sinni

Fornleifafræðingar frá Fornleifastofnun Íslands hafa undanfarnar vikur unnið af krafti við uppgröft víkingaaldarskálans sem fannst á síðasta ári í Ólafsdal. Skálinn og aðrar tóftir fundust óvænt þegar unnið var að skráningu á minjum frá tíma búnaðarskólans sem var starfræktur í dalnum árin 1880-1907. Sást móta fyrir útlínum hans þegar dróni var sendur yfir svæðið til…Lesa meira