Fréttir

true

Bjarg íbúðafélag tilgreinir kostnað og opnar fyrir umsóknir

Bjarg íbúðafélag mun byggja um 1400 leiguíbúðir á næstu fjórum árum á nokkrum þéttbýlisstöðum á landinu, meðal annars á Akranesi. Félagið er nú þegar með tæplega 238 íbúðir í byggingu en um 430 eru í hönnunarferli. Stefnt er á að fyrstu íbúðir verði afhentar um mitt næsta ár. Bjarg íbúðafélag er húsnæðissjálfseignarstofnun stofnuð af ASÍ…Lesa meira

true

Gistiheimilið West Park er rekið á Gufuskálum

West Park gistiheimilið er til húsa á Gufuskálum á Snæfellsnesi. Það hóf fyrst starfsemi í september á síðasta ári en eigendur eru Hilmar Leó Antonsson, Baldur Þór Sigurðarson og Ásgeir Mogensen. Opnuðu þeir fyrst helminginn af gistiheimilinu; fjögur hús af átta. Það var svo í byrjun þessa árs sem þeir félagar opnuðu seinni helminginn af…Lesa meira

true

„Flóðhestar eru algjör krúttrassgöt“

Ester Alda Hrafnhildar Bragadóttir er 21 árs Borgnesingur sem er óhrædd við að fara sínar eigin leiðir í lífinu en fyrir ekki svo löngu ákvað hún að ferðast til Asíu og Afríku ein síns liðs. „Það hefur alltaf blundað í mér að ferðast og skoða heiminn. Ég ákvað í rauninni með mjög stuttum fyrirvara að…Lesa meira

true

„Ég er fótboltalögga Íslands“

Vilhjálmur Gíslason á Akranesi hefur starfað við löggæslu óslitið frá árinu 1983. Fyrst var hann um 15 ára skeið lögregluþjónn á Akranesi en hefur frá árinu 2000 starfað við alþjóðadeild ríkislögreglustjóra. Deildin annast samskipti lögreglunnar á Íslandi við önnur ríki. Þá hefur Vilhjálmur einnig farið fyrir teymi íslenskra lögregluþjóna þegar landslið Íslands í knattspyrnu spilar…Lesa meira

true

Skagastúlkur spila heimaleik síðdegis

ÍA fær Hamrana í heimsókn þegar 8. umferð Inkassodeildar kvenna hefst í kvöld. Skagastelpur gerðu það gott í síðasta leik þegar þær unnu Sindra 11-0 og með sigri í kvöld og þremur stigum geta þær bætt stöðu sína í deildinni enn frekar. Þær sitja nú í fimmta sæti deildarinnar með 12 stig á meðan toppliðið,…Lesa meira

true

Landsmót hestamanna fer vel af stað

Landsmót hestamanna hófst á sunnudaginn á félagssvæði Fáks í Víðidal í Reykjavík. Keppni hófst á forkeppni í barnaflokki og fylgdu hinir flokkarnir hver á fætur öðrum en forkeppni lauk í gær. Vestlendingar hafa staðið sig ágætlega það sem af er móti. Kolbrún Katla Halldórsdóttir á Sigurrós frá Söðulsholti komst í milliriðil í barnaflokki en hún…Lesa meira

true

Mótframlag atvinnurekenda í lífeyrissjóð hækkar

Síðasti áfangi hækkunar á mótframlagi atvinnurekenda í lífeyrissjóði launafólks á almennum vinnumarkaði kom til framkvæmda 1. júlí síðastliðinn, en þá hækkaði framlagið um 1,5% og er nú orðið 11,5%. Skylduiðgjald til lífeyrissjóðs nemur því samtals 15,5% sem skiptist í 4% iðgjald launamanns og 11,5% mótframlag atvinnurekenda. Atvinnurekenda greiðir hækkað mótframlag til þess lífeyrissjóðs sem skylduiðgjaldið…Lesa meira

true

Myndheimur Þorvaldar Arnars

Fimmtudaginn 5. júlí klukkan 15:30 opnar Þorvaldur Arnar Guðmundsson sýningu á verkum sínum í Bókasafni Akraness. Þorvaldur er fæddur í júlí árið 1995 og hefur lokið diplmanámi frá Myndlistaskólanum í Reykjavík. Hann hefur einnig unnið undir leiðsögn mynlistarmannanna Hrannar Eggertsdóttur og nú í vetur Bjarna Þórs Bjarnasonar. Sýning Þorvaldar er sölusýning og nefnist Myndheimur Þorvaldar.…Lesa meira

true

Fjársöfnun vegna bruna

Vegna skemmda sem varð í eldsvoða í húsinu Skagabraut 15 á Akranesi síðastliðið föstudagskvöld, hafa nágrannar hrundið af stað fjársöfnun. Allt sem safnast mun renna til stuðnings Jóhönnu Kristínar og dætra hennar. Reikningsnúmer: 0186-05-010136. kennitala: 090283-5459.Lesa meira

true

Unnu til silfurverðlauna á Norðurlandamótinu

Marinó Þór Pálmason sem spilar með Skallagrími í Borgarnesi keppti með félögum sínum í U16 landsliði Íslands á Norðurlandamóti yngri landsliða um síðustu helgi, en mótið fór fram í Kisakallio í Finnlandi. Drengirnir unnu fjóra af fimm leikjum sínum sem skilaði þeim öðru sæti á mótinu og silfrinu. Eistarnir fóru ósigranðir í gegnum mótið og…Lesa meira