Fréttir

true

Skagastúlkur spila heimaleik síðdegis

ÍA fær Hamrana í heimsókn þegar 8. umferð Inkassodeildar kvenna hefst í kvöld. Skagastelpur gerðu það gott í síðasta leik þegar þær unnu Sindra 11-0 og með sigri í kvöld og þremur stigum geta þær bætt stöðu sína í deildinni enn frekar. Þær sitja nú í fimmta sæti deildarinnar með 12 stig á meðan toppliðið,…Lesa meira

true

Landsmót hestamanna fer vel af stað

Landsmót hestamanna hófst á sunnudaginn á félagssvæði Fáks í Víðidal í Reykjavík. Keppni hófst á forkeppni í barnaflokki og fylgdu hinir flokkarnir hver á fætur öðrum en forkeppni lauk í gær. Vestlendingar hafa staðið sig ágætlega það sem af er móti. Kolbrún Katla Halldórsdóttir á Sigurrós frá Söðulsholti komst í milliriðil í barnaflokki en hún…Lesa meira

true

Mótframlag atvinnurekenda í lífeyrissjóð hækkar

Síðasti áfangi hækkunar á mótframlagi atvinnurekenda í lífeyrissjóði launafólks á almennum vinnumarkaði kom til framkvæmda 1. júlí síðastliðinn, en þá hækkaði framlagið um 1,5% og er nú orðið 11,5%. Skylduiðgjald til lífeyrissjóðs nemur því samtals 15,5% sem skiptist í 4% iðgjald launamanns og 11,5% mótframlag atvinnurekenda. Atvinnurekenda greiðir hækkað mótframlag til þess lífeyrissjóðs sem skylduiðgjaldið…Lesa meira

true

Myndheimur Þorvaldar Arnars

Fimmtudaginn 5. júlí klukkan 15:30 opnar Þorvaldur Arnar Guðmundsson sýningu á verkum sínum í Bókasafni Akraness. Þorvaldur er fæddur í júlí árið 1995 og hefur lokið diplmanámi frá Myndlistaskólanum í Reykjavík. Hann hefur einnig unnið undir leiðsögn mynlistarmannanna Hrannar Eggertsdóttur og nú í vetur Bjarna Þórs Bjarnasonar. Sýning Þorvaldar er sölusýning og nefnist Myndheimur Þorvaldar.…Lesa meira

true

Fjársöfnun vegna bruna

Vegna skemmda sem varð í eldsvoða í húsinu Skagabraut 15 á Akranesi síðastliðið föstudagskvöld, hafa nágrannar hrundið af stað fjársöfnun. Allt sem safnast mun renna til stuðnings Jóhönnu Kristínar og dætra hennar. Reikningsnúmer: 0186-05-010136. kennitala: 090283-5459.Lesa meira

true

Unnu til silfurverðlauna á Norðurlandamótinu

Marinó Þór Pálmason sem spilar með Skallagrími í Borgarnesi keppti með félögum sínum í U16 landsliði Íslands á Norðurlandamóti yngri landsliða um síðustu helgi, en mótið fór fram í Kisakallio í Finnlandi. Drengirnir unnu fjóra af fimm leikjum sínum sem skilaði þeim öðru sæti á mótinu og silfrinu. Eistarnir fóru ósigranðir í gegnum mótið og…Lesa meira

true

Skráning hafin á Unglingalandsmót UMFÍ

Opnað hefur verið fyrir skráningu á hið árlega Unglingalandsmót UMFÍ sem verður samkvæmt venju um verslunarmannahelgina. Mótið verður að þessu sinni spottakorn frá höfuðborginni, í Þorlákshöfn dagana 2. – 5. ágúst. Mótshaldari er Héraðssambandið Skarphéðinn (HSK). Eins og margir vita er Unglingalandsmót UMFÍ fjölskylduhátíð. Boðið er upp á 22 keppnisgreinar fyrir 11 – 18 ára…Lesa meira

true

Færðu Smiðjunni hægindastól

Smiðjunni í Snæfellsbæ barst góð gjöf á dögunum frá Lionsklúbbnum Rán. Það voru þær Auður Sigurjónsdóttir og Guðný Baldvina Gísladóttir sem afhentu smiðjunni Lazy boy stól fyrir hönd lionskvenna í tilefni af því að á dögunum flutti Smiðjan í nýtt framtíðarhúsnæði. Mun stólinn nýtast skjólstæðingum Smiðjunnar mjög vel og voru starfsmenn mjög ánægðir með þessa…Lesa meira

true

Bjarki Pétursson gerir það gott á Evrópumóti áhugamanna

Bjarki Pétursson frá Golfklúbbi Borgarness endaði í 21. sæti á Evrópumóti áhugamanna í Hollandi sem hófst á miðvikudag í síðustu viku. Alls tóku 144 keppendur þátt í mótinu og spilaðar voru 72 holur á fjórum dögum. Bjarki spilaði fyrsta daginn á 71 höggi, næsta dag á 75. Þriðji dagurinn var hans besti þar sem hann…Lesa meira

true

Skipuð vegamálastjóri

Bergþóra Þorkelsdóttir hefur verið skipuð forstjóri Vegagerðarinnar frá og með næstu mánaðamótum, en starfsheitið hefur jafnan verið vegamálastjóri. Bergþóra hefur lokið námi í markaðsfræði, rekstrar- og viðskiptafræði sem og dýralækningum. Ekki var gerð krafa um verkfræðimenntun eða sambærilega menntun, þegar starfið var auglýst. Stundin greindi frá því að Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra hafi sagt sig…Lesa meira