Fréttir

true

Reglur um borholur til umsagnar

Orkustofnun hefur gert drög að reglum um borholur, sem lúta að skráningu, hönnun og frágangi borholna, sem og skil á upplýsingum til Orkustofnunar. Drögin eru til umsagnar almennings og hagsmunaaðila. Umsagnir berist fyrir 15. september 2018 á netfangið os@os.is eða með skriflegum hætti til stofnunarinnar. Í lögum um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu…Lesa meira

true

Myndband: Minningarsjóður í nafni Einars Darra

Átján ára piltur, Einar Darri Óskarsson, lést á heimili sínu í Hvalfjarðarsveit 25. maí síðastliðinn. Aðstandendur hans hafa stofnað minningarsjóð í hans nafni og hafa nú sent frá sér forvarnarmyndbandið „Ég á bara eitt líf“. Í myndbandinu tjá sig meðal annarra foreldrar Einars Darra og systkini. Myndbandið er fyrsti hluti forvarnarverkefnisins #egabaraeittlif sem gengur út…Lesa meira

true

Vinnu við uppgröft víkingaskálans í Ólafsdal lokið að sinni

Fornleifafræðingar frá Fornleifastofnun Íslands hafa undanfarnar vikur unnið af krafti við uppgröft víkingaaldarskálans sem fannst á síðasta ári í Ólafsdal. Skálinn og aðrar tóftir fundust óvænt þegar unnið var að skráningu á minjum frá tíma búnaðarskólans sem var starfræktur í dalnum árin 1880-1907. Sást móta fyrir útlínum hans þegar dróni var sendur yfir svæðið til…Lesa meira

true

Segir afurðastöðvar halda bændum í gíslingu

Anna Berglind Halldórsdóttir bóndi á Magnússkógum III í Dölum og formaður Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu skrifar harðorða grein í nýjasta Bændablaðið. Þar gagnrýnir hún harðlega framkomu afurðastöðva í garð bænda og segir þær m.a. halda bændum í gíslingu og koma í veg fyrir nýliðun í greininni. Nýir bændur fái einfaldlega hvergi slátrað. Hún skrifar að…Lesa meira

true

Viðgerð lokið hjá Mílu

Viðgerð er nú lokið á fjarskiptabúnaði Mílu sem bilaði í morgun. Bilunin hafði talsverð áhrif á fjarskipti í Borgarnesi, Borgarfirði að Bifröst sem og á sunnanverðu Snæfellsnesi, allt að Stykkishólmi.Lesa meira

true

Selja glæsilegar peysur fyrir Lopapeysuballið

„Við eigum úrval af peysum, sennilega hátt í hundrað, sem nú eru tilbúnar til sölu fyrir Lopapeysuballið, hápunkt Írsku daganna, á laugardaginn,“ segir Sigrún Jóhannesdóttir starfmaður RKÍ á Akranesi í samtali við Skessuhorn. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum er hægt að fá peysur með ýmsum mynstrum og litum, allt afar glæsilegar flíkur. Peysurnar…Lesa meira

true

Baráttuleikur í boltanum í kvöld

Skagamenn bjóða Selfyssinga velkomna þegar liðin mætast í tíundu umferð Inkassodeildar á Akranesvelli í kvöld. Skagamenn eru í bullandi baráttu um að komast í Pepsídeildina að nýju. Á sama tíma heyja Selfyssingar sína eigin baráttu í neðri hluta deildarinnar og því stig mikilvæg báðum liðum. Þrátt fyrir tap í síðasta leik hjá ÍA þá skipa…Lesa meira

true

Snæfellsbæingar ársins ráku líkamsræktarstöð í áratugi

Tíðkast hefur að menningarnefnd Snæfellsbæjar útnefndi Snæfellsbæing ársins við hátíðarhöld á þjóðhátíðardeginum. Að þessu sinni voru það hjónin Gylfi Scheving og Jóhanna Hjelm sem hlutu nafnbótina og eru vel að henni komin. Þau hjónin höfðu rekið líkamsræktarstöðina Sólarsport í Snæfellsbæ í 34 ár þegar Sigurður sonur þeirra og Marsibil Katrín kona hans tóku við rekstrinum…Lesa meira

true

Bilun hjá Mílu hefur víða áhrif á Vesturlandi

Komið hefur upp bilun í fjarskiptabúnaði Mílu í Borgarnesi sem hefur áhrif á fjarskipti í Borgarnesi, Borgarfirði að Bifröst og á sunnanverðu Snæfellsnesi, að Stykkishólmi. Viðgerð stendur yfir, segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.Lesa meira

true

Vilja lækka umferðarhraða um Borgarbraut

Lögreglustjórinn á Vesturlandi hefur með bréfi farið fram á það við Borgarbyggð að hámarkshraði umferðar um neðri hluta Borgarbrautar í Borgarnesi verði lækkaður úr 50 í 30 km/klst. Lækkun hraða næði frá gatnamótum Þorsteinsgötu/Böðvarsgötu að gatnamótum við Egilsgötu. „Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að vinna áfram að málinu í…Lesa meira