Fréttir

true

Snæfellsjökulshlaupið var á laugardaginn

Síðastliðinn laugardag fór Snæfellsjökulhlaupið fram í áttunda sinn. Hlaupnir eru 22 kílómetrar frá Arnarstapa yfir Jökulháls og endað í Ólafsvík. Keppendur voru að þessu sinn 164 og hefur fjöldi þeirra aukist mikið frá því það var haldið í fyrsta skiptið, en þá voru keppendur 50. Á síðasta ári var reyndar metfjöldi þegar 211 hlauparar þreyttu…Lesa meira

true

Sviptur ökurétti ævilangt

Maður var í Héraðsdómi Vesturlands 13. júní sl. dæmdur í 45 daga fangelsi fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og fyrir að hafa í vörslu sinni fíkniefni. Maðurinn var stöðvaður af lögreglu við akstur á höfuðborgarsvæðinu haustið 2016. Reyndist hann óhæfur til að aka bifreið vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Í blóðsýni sem tekið…Lesa meira

true

Björgunarsveitarfólk kallað út

Björgunarsveitarfólk af Vesturlandi fór í tvö aðskilin útköll í dag. Upp úr hádegi fóru félagar úr Lífsbjörgu í Snæfellsbæ til aðstoðar sjúkraflutningamönnum, en slys tengt hestamennsku hafði orðið við Ingjaldshól. Síðdegis í dag var svo Björgunarfélag Akraness kallað út til aðstoðar konu sem slasast hafði á fæti ofarlega við fossinn Glym í Hvalfirði. Hópur björgunarsveitafólks…Lesa meira

true

Víkingur hafði betur í Vesturlandsslagnum

Víkingur Ólafsvík tók á móti ÍA í Vesturlandsslag í Inkassodeildinni í fótbolta í gærkvöldi. Leikurinn var spilaður á nýja gervigrasvellinum í Ólafsvík. Heimamenn unnu 2-1 sigur og mega þeir umfram annað þakka þéttri vörn sigurinn. Það var Alexander Helgi Sigurðarson sem kom Víkingi yfir eftir stundarfjórðungs leik. Gonzalo Leon jók síðan forystu heimamanna á 78.…Lesa meira

true

Eldsvoði í húsi við Skagabraut á Akranesi

Eldur kom upp í húsi við Skagabraut 15 á Akranesi seint í kvöld. Nágrannar urðu eldsins vart á tólfta tímanum þegar eldtungur stóðu út um glugga á vesturhlið hússins og var allt tiltækt lið Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar kallað út. Talsverður eldur og reykur var í húsinu en það reyndist mannlaust. Slökkvistarf gekk greiðlega .…Lesa meira

true

Beckham við veiðar í Norðurá

Knattspyrnumaðurinn David Beckham hefur í dag deilt fáeinum myndum á Instagram síðu sinni, í svokallaða sögu, þar sem hann er við veiði í Norðurá í Borgarfirði. Svo virðist sem hann sé þar ásamt vini sínum Björgólfi Thor Björgólfssyni en þeir vinirnir veiddu einmitt saman í Langá fyrir tveimur árum. Ef marka má myndirnar frá David…Lesa meira

true

Flamenco tónleikar í Landnámssetrinu

Í tilefni af Brákarhátíð verður Reynir Hauksson Flamenco gítarleikari frá Hvanneyri með tónleika í Landnámssetrinu í Borgarnesi á sunnudaginn, 1. júlí klukkan 20:00. Reynir býr í Granada á Spáni og starfar þar sem Flamenco gítarleikari en það heyrir til tíðinda að Flamenco tónlist sé flutt á Íslandi. Draumur hans er að kynna og tengja þessa…Lesa meira

true

Eitthvað fyrir alla á Landsmóti hestamanna í Víðidal

Landsmót hestamanna hefst á sunnudaginn, 1. júlí, á keppnissvæði Fáks í Víðidal í Reykjavík og er eftirvæntingin mikil meðal hestamanna og áhugafólks um íslenska hestinn. Þar verður glæsileg gæðingakeppni þar sem bestu knapar og hestar landsins etja kappi og sýnd fremstu kynbótahross landsins. Jafnframt verður boðið upp á fjölbreytta fræðslu- og skemmtidagskrá fyrir börn og…Lesa meira

true

Þétt dagskrá á Hvanneyrarhátíð

Hvanneyrarhátíðin verður haldin hátíðleg í fimmta sinn á Hvanneyri í Borgarfirði laugardaginn 7. júlí og verður margt í boði fyrir gesti. „Undirbúningur gengur vel og allt er á réttu róli,“ segja skipuleggjendur hátíðarinnar, þær Ragnhildur Helga Jónsdóttir, safnstjóri Landbúnaðarsafns Íslands, og Álfheiður Sverrisdóttir, verkefnastjóri hjá Landbúnaðarháskóla Íslands. „Það verður nóg í boði fyrir gesti eins…Lesa meira

true

Hálendisvaktir björgunarsveitanna hefjast í dag

Á 50 stöðum á landinu standa félagar Í björgunarsveitum og slysavarnadeildum vaktina í dag og ræða við ferðamenn og fræða þá um ábyrga ferðahegðun og dreifa til þeirra fróðleik. Dagurinn í dag markar einnig upphaf hálendisvaktar Slysavarnafélagsins Landsbjargar þetta sumarið og klukkan 16:00 í dag leggur fyrsti hópurinn af stað á hálendisvakt. Þetta er þrettánda…Lesa meira