
Eldur kom upp í húsi við Skagabraut 15 á Akranesi seint í kvöld. Nágrannar urðu eldsins vart á tólfta tímanum þegar eldtungur stóðu út um glugga á vesturhlið hússins og var allt tiltækt lið Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar kallað út. Talsverður eldur og reykur var í húsinu en það reyndist mannlaust. Slökkvistarf gekk greiðlega .…Lesa meira








