Fréttir

true

Mikilvægt að hafa snyrtilegt umhverfi og sinna viðhaldi eigna

Heilbrigðisstofnun Vesturlands er rekin á átta starfsstöðvum um Vesturland og húsnæðið sem tilheyrir stofnuninni er alls um 20.000 fermetrar. Það er því alltaf nóg að gera hjá Halldóri Hallgrímssyni og samstarfsfélögum hans sem sjá um allt almennt viðhald á húsnæði, lóðum og búnaði stofnunarinnar víðsvegar um Vesturland. Blaðamaður Skessuhorns leit inn á HVE á Akranesi…Lesa meira

true

Bók um grasnytjar, þjóðtrú og sögu

Út er komin bókin Grasnytjar á Íslandi, þjóðtrú og saga, eftir Guðrúnu Bjarnadóttur. Bókin er skreytt ljósmyndum eftir Jóhanna Óla Hilmarsson, sem jafnframt er meðútgefandi að bókinni, og jurtateikningum Bjarna Guðmundssonar á Hvanneyri. Bókina er einnig gefin út í enskri útgáfu sem nefnist Plants of Iceland Traditional uses and folklore. Í bókinni er fjallað um…Lesa meira

true

Úr grásleppu í Gæsluna

„Ég var bara pjakkur þegar ég byrjaði að fara á sjó með móðurafa mínum,“ segir Baldur Ragnar Guðjónsson sem starfar í dag sem þriðji stýrimaður á varðskipinu Þór. Hann ólst upp í Stykkishólmi og hefur alltaf verið í sterkum tengslum við sjóinn. „Maður er aldrei of ungur til að byrja á sjó. Ég fór á…Lesa meira

true

Fráveitustöðin tekin í notkun í Borgarnesi

Það var léttskýjað og mild hafgola síðdegis í gær þegar Veitur buðu Borgnesingum til opnunarhátíðar við nýju fráveitustöðina í Brákarey. Gestum var boðið að skoða stöðina og þiggja veitingar. Framkvæmdir við nýja fráveitu hófust árið 2006 og hafa staðið í rúman áratug en töfðust um hríð vegna gjaldþrots bankanna og afleiðinga þess. Í dag er…Lesa meira

true

Norðurálsmótið verður um næstu helgi

Um næstu helgi, dagana 8. – 10. júní, verður hið árlega Norðurálsmót í knattspyrnu haldið á Akranesi. Mótið er eitt stærsta pollamót landsins og ætlað drengjum sem spila með 7. flokki, á aldrinum sex til átta ára. Að sögn Huldu Birnu Baldursdóttur framkvæmdastjóra Knattspyrnufélags ÍA hefur undirbúningur fyrir mótið undanfarið gengið mjög vel og er…Lesa meira

true

Sylvía Ósk segir frá lífstílsbreytingum síðustu ára

Sylvía Ósk Rodriguez frá Borgarnesi gengur ákveðin en brosandi í átt að blaðamanni Skessuhorns með stútfulla íþróttatösku á annarri öxlinni og hristir sér drykk í brúsa á leiðinni. Þarna er hraust kona á ferð að fara í ræktina á laugardagsmorgni en gefur sér tíma í smá spjall áður en gengið er til æfinga. Sylvía hefur…Lesa meira

true

Sigríður Ása hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi störf

Menntavísindasvið Háskóla Íslands veitti í dag fimm kennurum viðurkenningar fyrir framúrskarandi störf. Verðlaun fyrir störf á leikskólasviði hlaut Sigríður Ása Bjarnadóttir leikskólakennari á Teigaseli á Akranesi. Auk hennar hlutu verðlaun Gísli Hólmar Jóhannesson frá Keili, Sara Diljá Hjálmarsdóttir úr Höfðaskóla og Valdimar Helgason í Réttarholtsskóla. Auk þess voru nú í fyrsta sinn veitt sérstök hvatningarverðlaun…Lesa meira

true

Um 230 unglingar hafa sótt um í vinnuskólanum á Akranesi

Um þessar mundir er kennslu í skólum að ljúka og unga fólkið í leit að vinnu og margir að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði. Víðs vegar má því sjá ungmenni í vinnuskólum slá og raka gras, hreinsa til í beðum og gera snyrtilegt í bæjarfélögum sínum. Á Akranesi býðst ungmennum á aldrinum 14-17 ára…Lesa meira

true

Ferðamannastraumurinn fer hægt af stað á Vesturlandi

Veðurfarið að undanförnu hefur ekki beint gefið til kynna að hér væri komið vor, hvað þá sumar. Flestir starfsmenn upplýsingamiðstöðva fyrir ferðamenn á Vesturlandi eru sammála að veðrið eigi drjúgan þátt í rólegri byrjun á sumarumferðinni. Ferðafólki hefur fjölgað í landshlutanum á síðustu árum en nú virðist sem aukning sé ekki lengur til staðar milli…Lesa meira

true

Ók á ofsahraða um Hvalfjörð

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu veitti ökumanni sem ók á ofsahraða eftirför í nótt. Maðurinn ók á allt að 170-190 km hraða á klukkustund og er grunaður um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna. Rúv greinir frá. Eftir nokkra eftirför í höfuðborginni hélt ökumaðurinn út fyrir borgarmörkin og náðist loks að stöðva hann við Meðalfellsveg í Hvalfirði.…Lesa meira