Fréttir

true

Afhentu HVE í Snæfellsbæ nýjan gynskoðunarbekk

Kvenfélögin á Hellissandi og Ólafsvík, Kvenfélagið Sigurvon, Lionsklúbbarnir Rán og Þernan ásamt Soroptimistaklúbbi Snæfellsness, afhentu HVE í Snæfellbæ formlega að gjöf nýjan gynskoðunarbekk og stól í síðustu viku. Var bekkurinn keyptur fyrir ágóða af fjáröflunarkvöldi; kvennakvöldi sem félögin stóðu fyrir í janúar en með sameiginlegu átaki tókst að safna fyrir bekknum og fleiri hlutum sem…Lesa meira

true

Fræsing á Innnesvegi á morgun

Á morgun verða tvær akreinar á Innnesvegi á Akranesi fræstar. Veginum verður lokað og hjáleiðir merktar. Búast má við lítilsháttar umferðartöfum, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 09:00 og 17:00. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og…Lesa meira

true

Grunnskólakennarar samþykktu kjarasamning

Meirihluti félagsmanna í Félagi grunnskólakennara hefur samþykkt nýjan kjarasamning í allsherjaratkvæðagreiðslu. Atkvæðagreiðsla meðal félagsmanna FG stóð yfir dagana 31. maí og lauk í dag. Á kjörskrá voru 4.689 og greiddu 73% atkvæði. 74% samþykktu samninginn, 24,45% höfnuðu honum og tæp 2% skiluðu auðu eða ógildu. Skrifað var undir kjarasamninginn 25. maí síðastliðinn. Félag grunnskólakennara hefur…Lesa meira

true

Þriggja flokka meirihlutasamstarf komið á í Borgarbyggð

Í gærkvöldi var skrifað undir málefnasamning Sjálfstæðisflokks, Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og Samfylkingar og óháðra í Borgarbyggð. „Helstu áherslur í málefnasamningi flokkanna eru að bæta þjónustu og búsetuskilyrði í Borgarbyggð auk þess að byggja upp mikilvæga innviði og mannauð. Gott samstarf allra flokka í sveitarstjórn, vönduð stjórnsýsla og áframhaldandi ábyrgur rekstur mun vera í forgrunni á…Lesa meira

true

Góðar viðtökur þegar Sker restaurant var opnaður í Ólafsvík

Sker resturant var um síðustu helgi opnaður við Ólafsbraut 19 í Ólafsvík. Undanfarna mánuði hefur húsnæðið verið tekið í gegn og breytt í veitingastað en áður var Smiðjan dagþjónusta og vinnustofa fyrir fólk með skerta starfsgetu rekin í húsinu sem þar áður hýsti Sparisjóð Ólafsvíkur. Tókust breytingar á húsnæðinu mjög vel og er staðurinn nú…Lesa meira

true

Fráveitustöð í Borgarnesi tekin í notkun í dag

Í dag klukkan 17 munu Veitur formlega taka í notkun nýja hreinsistöð fráveitu í Borgarnesi. Borgarbyggð kemst þar með í hóp þeirra sveitarfélaga þar sem allir stærstu byggðarkjarnar uppfylla kröfur um skólphreinsun því fyrir eru fjórar lífrænar hreinsistöðvar Veitna í uppsveitunu. Opnun stöðvarinnar markar einnig tímamót í fráveiturekstri Veitna því þar með lýkur átaki í…Lesa meira

true

Af frystitogara yfir á kajak

Í Grundarfirði er nýtt fyrirtæki í ferðaþjónustu að skjóta rótum. Það er kajakleigan Vestur Adventures sem hefur aðsetur í Torfabótinni sem stendur við götuna Sæból. Það eru þau Garðar Hafsteinsson og Una Rut Jónsdóttir sem eiga og reka fyrirtækið en þau eru nýbúin að fjárfesta í einbýlishúsi og eru flutt til Grundarfjarðar. Garðar er uppalinn…Lesa meira

true

Sundfélag Hafnarfjarðar stigahæst á Akranesleikunum

Akranesleikarnir í sundi fóru fram um síðustu helgi, dagana 1. til 3. júní. Synt var í Jaðarsbakkalaug. Mótið var vel sótt, en 302 keppendur frá 13 sundfélögum skráðu sig til leiks, þar af eitt félag frá Kanada. „Frábær helgi, frábærir krakkar og góð stemning,“ segir í tilkynningu frá Sundfélagi Akraness. Mótið er stigakeppni milli félaga…Lesa meira

true

Bíll Blóðbankans á Akranesi í dag

Blóðbanki Íslands mun í dag, þriðjdaginn 5. júní, safna blóði á Akranesi. Bíllinn verður staðsettur við Ráðhúsið Stillholti 16-18 frá klukkan 10-17. Fólk er hvatt til að mæta og gefa blóð.Lesa meira

true

Erum hugsanlega að missa verðmætustu kúnnana

Gísli Ólafsson sem rekur hvalaskoðunarfyrirtækið Láka Tours á Snæfellsnesi og Ströndum, telur litla ástæðu til að ætla að ferðamenn hætti að sækja Ísland heim, jafnvel þótt margir telji sig nú sjá blikur á lofti. „Ferðamannastraumurinn má samt standa í stað í nokkur ár,“ segir Gísli og vísar til að aukingin undanfarin ár hefur verið gríðarmikil.…Lesa meira