Fréttir

true

Straumlaust og rafmagnstruflanir næstu nótt

Rarik vill koma því á framfæri við raforkunotendur á Staðarsveitarlínu á Snæfellsnesi að Bláfeldi og Laugargerðislínu, að rafmagnslaust verður aðfararnótt þriðjudagsins 14. júní frá miðnætti til kl. 07:00 vegna vinnu á 66 kV flutningslínu Landsnets. Búast má við rafmagnstruflunum á norðanverðu Snæfellsnesi á sama tíma. „Rarik biðst velvirðingar á óþægindum sem af þessu stafa,” segir í…Lesa meira

true

UniJon í Pakkhúsinu Englendingavík

Söngvaskáldin Úní og Jón Tryggvi eru músíkalskt par búsett á Stokkseyri. Saman kalla þau sig UniJon. Þau gáfu bæði út sólóplötur árið 2009, en hafa síðan samið og spilað sem dúett. Tónlist þeirra er á rólegu, þjóðlegu og rómantísku nótunum. UniJon hafa því verið rómuð fyrir ljúfsára og notalega stemningu, þar sem gestum gefst kostur…Lesa meira

true

Voru að æfa sig að hitta flugur með flotholti..

„Þeim var vísað aftur heim með skottið á milli lappanna, eins og vaninn er við þessar aðstæður,“ sagði Snorri Jóhannesson veiðivörður á Arnarvatnsheiði í samtali við Skessuhorn. Um miðja vikuna tóku tveir menn sig til og óku að Úlfsvatni á Arnarvatnsheiði, þrátt fyrir að veiði sé ekki heimiluð þar fyrr en 15. júní. Þegar til…Lesa meira

true

Norðurálsmótinu lýkur í dag

Ekki er ofsögum sagt að líf og fjör hefur verið á Akranesi um helgina. Íbúatalan tvöfaldaðist og má fyrst og fremst þakka það Norðurálsmótinu í knattspyrnu 6-8 ára sem ÍA stóð fyrir. Auk þess hefur m.a. verið á dagskrá golfmót og torfærukeppni. Bærinn hefur iðað af lífi og hvarvetna hefur verið tjaldað á grænum blettum.…Lesa meira

true

Slys í torfærukeppni

Í torfærukeppni sem haldin var í malargryfju við Fellsenda norðan Akrafjalls í gær varð það óhapp að keppnisbifreið rakst harkalega utan í konu sem var að ljósmynda á vettvangi. Hún féll fram fyrir sig þannig að andlitið skall í jörðina og kynnbeinsbrotnaði hún við höggið. Félagar í Flugbjörgunarsveitunum á Hellu og Björgunarfélagi Akraness brugðust skjótt…Lesa meira

true

Ný lúksussnekkja marar við Ólafsvík

Snæfellsnes virðist vera vinsælt meðal eigenda svokallaðra ofursnekkja. Nú liggur snekkjan Cloudbreak fyrir ankerum utan við höfnina í Ólafsvík. Snekkja þessi er ný, smíðuð á þessu ári og sjósett í Þýskalandi í maí. Því má gera ráð fyrir að hún sé í sinni Jómfrúarferð. Snekkjan er 72,5 metrar að lengd og 12,4 metrar að breidd…Lesa meira

true

Fjölmennur hópur brautskráðist frá Háskólanum á Bifröst

Vilhjálmur Egilsson rektor útskrifaði við hátíðlega athöfn rúmlega 120 nemendur úr öllum deildum Háskólans á Bifröst í gær. Í ávarpi sínu til útskriftarnemenda vék Vilhjálmur að því að skilningur á lífinu og umhverfinu, aðlögunarhæfni, samvinnugeta, kjarkur til að taka ákvarðanir og ábyrgð væru aðalsmerki Bifrestinga. Þannig hefðu þeir byggt upp með sér hið innra hugrekki…Lesa meira

true

Manuel Rodriguez áfram í Borgarnesi

Manuel Rodriguez hefur ákveðið að framlengja samning sinn sem þjálfari kvennaliðs Skallagríms í körfubolta og stýra þeim í úrvalsdeildinni næsta haust. Manuel hefur náð góðum árangri með Skallagrím; hann tók við liðinu síðasta haust og kom þeim upp í úrvalsdeild með sannfærandi hætti, liðið tapaði aðeins tveimur leikjum á tímabilinu. Þetta eru því gleðifréttir fyrir…Lesa meira

true

Slökktu eld í dúnhreinsun

Slökkvilið Borgarbyggðar var kallað út klukkan 14:11 í dag vegna elds í dúnhreinsun við Skúlagötu 7a í Borgarnesi. Hreinsunin er í skúr við íbúðarhúsið. Að sögn Jökull Fannars Björnssonar aðstoðarslökkviliðsstjóra  voru hárrétt viðbrögð eiganda dúnhreinsunarinnar þegar hann varð eldsins vart. Hann hafi lokað gluggum, komið sér út og kallað út slökkvilið. Reykkafarar fóru inn í húsnæðið,…Lesa meira

true

Guðni Th ferðast um Vesturland á sunnudaginn

Guðni Th. Jóhannesson forsetaframbjóðandi mun heimsækja Vesturland sunnudaginn 12. júní ásamt konu sinni Elizu Reid. Í Borgarnesi er boðað til fundar í Félagsbæ kl. 12.00. Þaðan liggur leiðin á Snæfellsnes. Í Snæfellsbæ verður kaffispjall í Félagsheimilinu Klifi kl. 15.00 en klukkan 20.30 verður efnt til fundar í Tónlistarskólanum í Stykkishólmi. Guðni mun kynna framboð sitt…Lesa meira