Fréttir

true

Mikilli úrkomu spáð í dag

Spáð er mikilli rigningu á Faxaflóavæðinu þar til í kvöld og við Breiðafjörð fram til hádegis. Uppsöfnuð úrkoma gæti farið yfir 50 mm/ 24 klst. Búast má við vatnavöxtum og aukinni hættu á skriðuföllum á svæðinu. Sjá nánar athugasemd vatnavársérfræðinga á vedur.isLesa meira

true

Þjónustumiðstöð eldri borgara mun rísa við Dalbraut 4

Í dag var boðað til samkomu í sal Félags eldri borgara á Akranesi. Tilefnið var að skrifað var undir samning milli Akraneskaupstaðar og Leigufélagsins Bestla ehf. um byggingu nýrrar þjónustumiðstöðvar sem verður á neðstu hæð fjölbýlishúss sem reist verður á Dalbrautarreitnum á lóð númer 4. Bestla var eina fyrirtækið sem bauð í byggingarrétt á lóðinni…Lesa meira

true

Útskrift frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Síðdegis í dag brautskráðust 29 nemendur frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Athöfnin hófst á því Hrafnhildur Hallvarðsdóttir skólameistari brautskráði  nemendur og flutti ávarp. Sólrún Guðjónsdóttir aðstoðarskólameistari afhenti síðan nemendum viðurkenningar fyrir góðan námsárangur. Sveitarfélögin sem standa að skólanum gáfu viðurkenningarnar ásamt Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík, Íslenska stærðfræðifélaginu, hugvísindadeild HÍ, danska sendiráðinu, Arion banka og…Lesa meira

true

Brautskráð frá Menntaskóla Borgarfjarðar

Í dag var brautskráning frá Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. 27 nemendur voru brautskráðir við hátíðlega athöfn. Nemendur útskrifuðust af félagsfræðabraut, náttúrufræðibraut, íþróttafræðibraut bæði af félagsfræða- og náttúrufræðasviði og af opinni braut. Hæstur á stúdentsprófi að þessu sinni var Steinþór Logi Arnarsson frá Stór-Holti í Saurbæ í Dölum. Steinþór fékk fjölmargar viðurkenningar fyrir framúrskarandi námsárangur, þar…Lesa meira

true

Flamenco tónleikar Reynis Haukssonar í næstu viku

Reynir Hauksson Flamenco gítarleikari frá Hvanneyri í Borgarfirði heldur af stað í tónleikaferð um Vestur- og Suðvesturland í næstu viku. Fyrstu tónleikar hans verða í Reykholtskirkju og svo verða þrennir aðrir tónleikar í landshlutanum; í Grundarfirði, Akranesi og á Hvanneyri. Reynir býr í Granada á Spáni og starfar þar sem Flamenco gítarleikari en það heyrir…Lesa meira

true

Bæjarmálin rædd yfir íslenskri kjötsúpu

Lokasprettur stjórnmálafólks fyrir sveitarstjórnarkosningarnar er nú hafinn, en kjörstaðir verða opnaðir í fyrramálið. Frambjóðendur flokkanna eru nú á ferð og flugi á vinnustöðum, skólum og hvarvetna sem kjósendur leynast. Á kosningaskrifstofu Miðflokksins á Akranesi var í hádeginu í dag boðið upp á íslenska kjötsúpu, en miðstöðin er til húsa á veitingastaðnum Lesbókinni við Akratorg þar…Lesa meira

true

Kia Stinger og Stonic frumsýndir á Vesturlandi

Kia heldur áfram ferð sinni um landið þar sem frumsýndir eru Kia Stinger og Kia Stonic. Á morgun laugardag verða bílarnir sýndir á Vesturlandi hjá Bílás, Bílasölu Akraness. Ásamt Stinger og Stonic verður hin breiða lína Kia til sýnis og reynsluaksturs. Kia Stinger er kraftmikill Gran Turismo sem fengið hefur mikla athygli fyrir sportlegt og…Lesa meira

true

Stefna að byggingu 55 herbergja hótels á Akranesi í haust

Uppbygging ehf., fyrirtæki Engilberts Runólfssonar og Kristínar Minneyjar Pétursdóttur, hefur lagt inn til Akraneskaupstaðar fyrirspurn um byggingu 55 herbergja hótels á lóðinni Kirkjubraut 39, þar sem nú stendur hús fyrrum Fólksbílastöðvar Akraness og síðar Málningarbúðarinnar. Uppbygging keypti lóðina fyrr á þessu ári af Skagaverki ehf. Í kjölfar þess að skipulags- og umhverfisnefnd tók jákvætt í…Lesa meira

true

Fresta sölu á Laugum í Sælingsdal

Eins og sagt var frá á vef Skessuhorns í gær fékk sveitarstjórn Dalabyggðar afhentan undirskriftarlista fyrir fund sinn í gær. Þar var óskað eftir íbúakosningu um tillögu Arnarlóns ehf. frá 13. maí sl. um kauptilboð á Laugum í Sælingsdal. Sömuleiðis var því mótmælt að Dalabyggð lánaði fyrir hluta af kaupverðinu. Höfðu 43% kosningabærra manna í…Lesa meira

true

Káramenn við toppinn

Káramenn gerðu góða ferð suður á Vatnsleysuströnd í gærkvöldi og sigruðu topplið Þróttar í Vogum með tveimur mörkum gegn engu. Með sigrinum lyftu Káramenn sér upp að hlið Þróttar á toppi 2. deildarinnar með níu stig eftir fjóra leiki. Athygli vekur að bæði eru liðin nýliðar í 2. deild, komu saman upp eftir síðasta leiktímabil.…Lesa meira