Fréttir

true

Skoða fyrst og kjósa svo – jafnvel á þeim gamla

Búast má við því að meðalaldur bíla sem leið eiga um götur Borgarness að morgni kjördags hækki töluvert. Þá verður árleg skoðun fornbíla framkvæmd hjá Frumherja við Sólbakka frá klukkan 9-12. „Skoða fyrst og kjósa svo – jafnvel á þeim gamla,“ er slagorð fornbílaeigenda af þessu tilefni. Skoðunargjald fyrir fornbíla er 3.400 krónur fyrir hvern…Lesa meira

true

Útskriftir framundan úr framhaldsskólunum

Undir vikulok verða útskriftarathafnir í þremur framhaldsskólum á Vesturlandi. Á morgun, föstudaginn 25. maí klukkan 14:00 verður útskrift í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi og sama dag klukkan 15:00 hefst útskriftarhátíð Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Laugardaginn 26. maí verða nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og hefst hátíðin á sal skólans klukkan 14:00.Lesa meira

true

Útimarkaður og völva spáir fyrir frambjóðendum

Næstkomandi laugardag, á kosningadaginn, klukkan 12-17 verður útimarkaður í Englendingavík í Borgarnesi. Þar verða boðnir til sölu antikmunir, barnaföt, lopapeysur og ýmislegt góss. Einnig verður Völva Vesturlands á svæðinu og mun hún spá fyrir frambjóðendum og öðrum sem koma í heimsókn. -fréttatilk.Lesa meira

true

Nýr hjúkrunarforstjóri Silfurtúns

Ína Rún Þorleifsdóttir hefur verið ráðin í starf hjúkrunarforstjóra dvalar- og hjúkrunarheimilisins Silfurtúns í Búðardal. Hún hefur störf 1. ágúst næstkomandi. Þangað til mun Jóna Helga Magnúsdóttir, hjúkrunarforstjóri Fellsenda, sjá um hjúkrunarstörf á Silfurtúni og Eyþór Jón Gíslason um starfsmannahald og annan rekstur. Þórunn B. Einarsdóttir hjúkrunarfræðingur annast RAI matið fyrir heimilið.Lesa meira

true

Skólakór hélt tónleika og fór í óvissuferð

Skólakór Snæfellsbæjar hélt vortónleika sína í safnaðarheimili Ingjaldshólskirkju síðastliðinn  fimmtudag. Vel var mætt á tónleikana þar sem kórinn flutti 12 lög. Fékk kórinn góðar viðtökur gesta. Stjórnandi kórsins er Veronica Osterhammer og undirleikari er Nanna Aðalheiður Þórðardóttir. Skólakórinn er nú kominn í sumarfrí að mestu. Hann hélt uppskeruhátíð sína fyrir nokkru þegar kórinn ásamt stjórnanda,…Lesa meira

true

Nemendur vinna að verkefninu „Get a Grip“

Nemendur úr Menntaskóla Borgarfjarðar hafa síðustu mánuði unnið að verkefni á vegum Erasmus+ sem ber heitið „Get a Grip.“ Það er unnið í samstarfi við þrjá aðra skóla; Christelijk college Groevenbeek í Ermelo í Hollandi, Institut La Garrotxa í Olot á Spáni og The Gordon Schools í Huntly í Skotlandi. Verkefnið snýr að sjálfbærni. Hver…Lesa meira

true

Í fararbroddi í þjónustu við börn nýbúa

Alþjóðlegur dagur fjölskyldunnar var 15. maí síðastliðinn. Af því tilefni var veitt hin árlega fjölskylduviðurkenning SOS Barnaþorpa. Með henni vilja samtökin vekja athygli á einstaklingum, hópum, fyrirtækjum eða samtökum sem starfa í þágu fjölskyldna á Íslandi og hafa velferð barna að leiðarljósi. Í ár heiðra samtökin kennara í leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum fyrir þeirra störf…Lesa meira

true

Framkvæmdir á Vesturlandsvegi

Í dag, miðvikudaginn 23. maí, er verið að fræsa báðar akreinar á Vesturlandsvegi við Leirvogstungu, frá Köldukvísl að Leirvogsá. Annarri akreininni er lokað í einu en umferð er stýrt og aðeins er búist við lítilsháttar umferðartöfum. Áætlað er að vinnan standi yfir til kl. 19:00. Á morgun, fimmtudaginn 24. maí er stefnt að því að…Lesa meira

true

Hvítur stelkur heldur til í Ólafsvík

Hvítur stelkur hefur undanfarna viku haldið sig í holtunum fyrir ofan Ennisbraut í Ólafsvík. Hefur hann verið á vappi þar ásamt öðrum stelk, en það var Anton Gísli Ingólfsson íbúi við Ennisbraut 37 sem benti ljósmyndara á fuglinn. Haft var samband við Guðmund A. Guðmundsson hjá Náttúrufræðistofnun Íslands og staðfesti hann að um stelk væri…Lesa meira

true

Olíutankarnir á Breið teknir niður

Í morgun hófst niðurrif á fjórum olíutönkum sem staðið hafa í áratugi á Breiðinni á Akranesi. Það er endurvinnslufyrirtækið Fura sem annast rifin. Tankarnir hafa lítið verið notaðir um hríð og ekkert eftir að leki kom að lögnum sem tengjast þeim á síðasta ári. Tankarnir eru fimm alls en til stendur að láta þann stærsta…Lesa meira