Fréttir

true

Ný skólphreinsistöð tekin í notkun á Akranesi

Síðastliðinn miðvikudag tóku Veitur í notkun nýja hreinsistöð skólps við Ægisbraut 31 á Akranesi. Bætist bærinn þar með í hóp þeirra sveitarfélaga sem uppfylla kröfur um skólphreinsun samkvæmt reglugerð og stórt skref er jafnframt stigið í umhverfismálum. Fyrir uppbyggingu fráveitunnar rann óhreinsað skólp út um átta meginútrásir, nálægt fjöruborði. Nú er skólpi veitt frá þessum…Lesa meira

true

Spáir hvössu síðdegis í dag og aftur á laugardaginn

Veðurstofan bendir á að spáð er vaxandi suðaustanátt, 13-20 m/s síðdegis í dag. Samhliða því verður talsverð rigning og snarpar hviður við fjöll um suðvestanvert landið. Snýst í hægari suðvestanátt vestanlands í kvöld og dregur úr úrkomu. Á morgun er spáð suðvestan 8-13 m/sek á morgun og skúrir eða slydduél vestantil, en léttir til á…Lesa meira

true

Samið um ný hjúkrunarrými og endurbætur á HVE í Stykkishólmi

Samkomulag hefur tekist milli Svandísar Svavarsdóttur velferðarráðherra og Stykkishólmsbæjar um að hefja uppbyggingu og breytingar á hluta húsnæðis Sjúkrahúss HVE í Stykkishólmi fyrir hjúkrunarheimili. Skrifað verður undir samning þar að lútandi eftir hádegi í dag. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist af krafti á næsta ári og ljúki 2021. Heildar kostnaður við verkið er…Lesa meira

true

Mest kosningaþátttaka var árið 1974

Margir óttast að fyrir komandi kosningar til sveitarstjórna að kosningaþátttaka verði dræm. Blaðamenn Skessuhorns hafa að undanförnu rætt við nokkra frambjóðendur á Vesturlandi og taka þeir undir þær áhyggjur. Engu að síður segja þeir að áhugi almennings fyrir framboði þeirra hafi aukist nú á allra síðustu dögum. Kosningaþátttaka í sveitarstjórnarkosningum jókst frá 1950 til 1974…Lesa meira

true

Deiliskipulag gerir ráð fyrir 80 nýjum lóðum

Á síðasta fundi sitjandi sveitarstjórnar í Borgarbyggð, fyrir kosningar sem verða eftir tíu daga, var samþykkt breyting á deiliskipulagi í Bjargslandi í Borgarnesi sem gerir ráð fyrir að hægt verði að byggja 80 nýjar íbúðir. Af þeim eru 16 lóðir fyrir einbýlishús, 32 lóðir fyrir raðhús, tvær lóðir fyrir parhús og tvær lóðir fyrir fjölbýlishús…Lesa meira

true

Til frambjóðenda vegna greinaskrifa í Skessuhorn í næstu viku

Kosið verður til sveitarstjórna laugardaginn 26. maí. Venju samkvæmt vilja frambjóðendur til sveitarstjórna koma málstað sínum rækilega á framfæri og rita því greinar í Skessuhorn. Þess ber þegar merki. Venju samkvæmt eru þó flestar greinar í blaðinu næst kosningum sem kemur út miðvikudaginn 23. maí. Þar sem Hvítasunnuhelgin fer nú í hönd, er nauðsynlegt að…Lesa meira

true

Unnu verkefni um fiska

Nemendur í 4. bekk Grunnskóla Snæfellsbæjar hafa undanfarið unnið að verkefni um fiska. Verkefni þetta er hluti af átthagafræði sem kennd er við skólann og sagt var ítarlega frá í síðasta Skessuhorni. Fjallað var um um nytjafiska, vinnslu og veiðar. Nemendur bjuggu til kynningar um fiskana og glærukynningar. Krakkarnir fóru í heimsókn á Fiskmarkað Íslands…Lesa meira

true

Fyrstur Íslendinga á HM í utanvegahlaupum

Sigurjón Ernir Sturluson frá Hnúki í Hvalfjarðarsveit kom fyrstur Íslendinga í mark á heimsmeistaramótinu í utanvegahlaupum sem haldið var á Spáni á laugardag. Þar hljóp hann fyrir Íslands hönd ásamt sjö öðrum hlaupurum. Hlaupið á Spáni var 88,1 km og hækkunin fimm þúsund metrar. Sigurjón hljóp á 11:23:34 og hafnaði í 119. sæti af 350…Lesa meira

true

Fyrst með gullmerki Vakans á Vesturlandi

Go West /Út og vestur er ferðaþjónustufyrirtæki sem hefur nú fengið vottun Vakans, gæðakerfi ferðaþjónustunnar, um að það uppfylli efsta stig kerfisins um vistvæna ferðaþjónustu. Það eru hjónin Þuríður Maggý Magnúsdóttir og Jón Jóel Einarsson sem reka Út og vestur ehf. og eru þau að halda upp á tíu ára afmæli fyrirtækisins þetta árið. Þau…Lesa meira

true

Meint ólögmæt innheimta bílastæðagjalda stöðvuð við Hraunfossa

Lögreglustjórinn á Vesturlandi stöðvaði um nónbil í dag meinta ólögmæta innheimtu bílastæðagjalda við Hraunfossa í Borgarfirði sem hófst í gærmorgun. Það gerir lögreglustjóri að beiðni Vegagerðarinnar. Nánast á sömu mínútu og tilkynning var send út frá embættinu framfylgdi lögregla ákvörðun lögreglustjóra og stöðvaði innheimtuaðgerðir á bílastæðunum. Guðlaugur Magnússon, leigutaki jarðarhlutans og eigandi H-fossa ehf., sá…Lesa meira