Fréttir

true

Deiliskipulag gerir ráð fyrir 80 nýjum lóðum

Á síðasta fundi sitjandi sveitarstjórnar í Borgarbyggð, fyrir kosningar sem verða eftir tíu daga, var samþykkt breyting á deiliskipulagi í Bjargslandi í Borgarnesi sem gerir ráð fyrir að hægt verði að byggja 80 nýjar íbúðir. Af þeim eru 16 lóðir fyrir einbýlishús, 32 lóðir fyrir raðhús, tvær lóðir fyrir parhús og tvær lóðir fyrir fjölbýlishús…Lesa meira

true

Til frambjóðenda vegna greinaskrifa í Skessuhorn í næstu viku

Kosið verður til sveitarstjórna laugardaginn 26. maí. Venju samkvæmt vilja frambjóðendur til sveitarstjórna koma málstað sínum rækilega á framfæri og rita því greinar í Skessuhorn. Þess ber þegar merki. Venju samkvæmt eru þó flestar greinar í blaðinu næst kosningum sem kemur út miðvikudaginn 23. maí. Þar sem Hvítasunnuhelgin fer nú í hönd, er nauðsynlegt að…Lesa meira

true

Unnu verkefni um fiska

Nemendur í 4. bekk Grunnskóla Snæfellsbæjar hafa undanfarið unnið að verkefni um fiska. Verkefni þetta er hluti af átthagafræði sem kennd er við skólann og sagt var ítarlega frá í síðasta Skessuhorni. Fjallað var um um nytjafiska, vinnslu og veiðar. Nemendur bjuggu til kynningar um fiskana og glærukynningar. Krakkarnir fóru í heimsókn á Fiskmarkað Íslands…Lesa meira

true

Fyrstur Íslendinga á HM í utanvegahlaupum

Sigurjón Ernir Sturluson frá Hnúki í Hvalfjarðarsveit kom fyrstur Íslendinga í mark á heimsmeistaramótinu í utanvegahlaupum sem haldið var á Spáni á laugardag. Þar hljóp hann fyrir Íslands hönd ásamt sjö öðrum hlaupurum. Hlaupið á Spáni var 88,1 km og hækkunin fimm þúsund metrar. Sigurjón hljóp á 11:23:34 og hafnaði í 119. sæti af 350…Lesa meira

true

Fyrst með gullmerki Vakans á Vesturlandi

Go West /Út og vestur er ferðaþjónustufyrirtæki sem hefur nú fengið vottun Vakans, gæðakerfi ferðaþjónustunnar, um að það uppfylli efsta stig kerfisins um vistvæna ferðaþjónustu. Það eru hjónin Þuríður Maggý Magnúsdóttir og Jón Jóel Einarsson sem reka Út og vestur ehf. og eru þau að halda upp á tíu ára afmæli fyrirtækisins þetta árið. Þau…Lesa meira

true

Meint ólögmæt innheimta bílastæðagjalda stöðvuð við Hraunfossa

Lögreglustjórinn á Vesturlandi stöðvaði um nónbil í dag meinta ólögmæta innheimtu bílastæðagjalda við Hraunfossa í Borgarfirði sem hófst í gærmorgun. Það gerir lögreglustjóri að beiðni Vegagerðarinnar. Nánast á sömu mínútu og tilkynning var send út frá embættinu framfylgdi lögregla ákvörðun lögreglustjóra og stöðvaði innheimtuaðgerðir á bílastæðunum. Guðlaugur Magnússon, leigutaki jarðarhlutans og eigandi H-fossa ehf., sá…Lesa meira

true

„Börn hafa rétt á að taka ákvarðanir um eigin líkama“

Íris Björg Þorvaldsdóttir er ötul baráttukona gegn umskurði drengja og stendur á bak við samtökin Intact Iceland, eða Ósnortið Ísland. Hún safnaði, ásamt Katrínu Sif Sigurgeirsdóttur ljósmóður, undirskriftum frá hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum til styrktar frumvarpi Silju Daggar Gunnarsdóttur; frumvarpinu sem í daglegu tali er kallað umskurðarfrumvarpið. Í frumvarpinu er mælst til þess að sett verði…Lesa meira

true

Réðist á bílstjóra strætisvagns og lét höggin dynja

Farþegi sem tók sér far með Strætó í Borgarnes í morgun lét hendur skipta í átökum við vagnstjóra. Á fréttaveg RUV er greint frá því að farþeginn hafi látið höggin dynja á bílstjóra strætó í morgun þegar reynt hafi verið að vísa honum út úr vagninum í Borgarnesi. Vagnstjórinn var með áverka á höndum eftir…Lesa meira

true

Ökutæki af öllum gerðum á stórsýningu í Brákarey

Veðurguðirnir léku við hvern sinn fingur á laugardaginn þegar hin árlega stórsýning stórsýning Bifhjólafjelagsins Raftanna og Fornbílafjelags Borgarfjarðar fór fram í Brákarey í Borgarnesi. Fólk streymdi að á mótorhjólum og öðrum farartækjum þannig að alls skiptu ökutækin hundruðum í eyjunni. Á þessu ári var sérstaklega minnst hundrað ára afmæli bílsins í Borgarnesi, en sá bíll…Lesa meira

true

„Okkur líður eins og ætlunin sé að þvinga þetta í gegn fyrir kosningar“

Hjónin Trausti Eiríksson og Ása Ólafsdóttir hafa síðasta áratuginn byggt upp ferðaþjónustu á heimili sínu Lækjarkoti rétt norðan við Borgarnes. Þar bjóða þau upp á gistingu fyrir allt að 100 manns í herbergjum eða smáhýsum. Nú óttast þau að ferðaþjónustunni á bænum sé ógnað vegna fyrirhugaðs skotæfingasvæðis um 1200 metra frá Lækjarkoti. Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur…Lesa meira