Fréttir

true

Kennarar felldu kjarasamning

Meirihluti grunnskólakennarar felldu nýjan kjarasamning Félags grunnskólakennara við Samband íslenskra sveitarfélaga. Atkvæðagreiðslu um samninginn lauk 9. júní. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar var sú að 72,24% felldu samninginn, 25,27% samþykktu hann, en auðir seðlar voru frá 2,49%. Á kjörskrá voru 4.453 og greiddu 65,48% atkvæði.Lesa meira

true

Telja að veikindi í hrossum á Kúludalsá megi rekja til flúormengunar

Jakob Kristinsson prófessor og Sigurður Sigurðsson dýralæknir segja í nýrri skýrslu, sem þeir unnu að beiðni atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, að endurtekin veikindi hrossa á bænum Kúludalsá í Hvalfirði megi rekja til flúormengunar fá álverinu á Grundartanga. Að minnsta kosti helmingur hrossanna á Kúludalsá hafa veikst og megi rekja það til efnaskiptaröskunar sem kallar equine metabolic…Lesa meira

true

Skagamenn féllu úr leik í bikarnum

Skagamenn mættu liði Breiðabliks í sextán liða úrslitum bikarkeppni KSÍ í gær. Breiðablik sigraði í leiknum með tveimur mörkum gegn einu. Jafnt var eftir venjulegan leiktíma og því réðust úrslitin í framlengingu. Árið 2013 komust Skagamenn síðast í sextán liða úrslit bikarkeppninnarog var því sagan að endurtaka sig. Léku þeir einmitt þá við Breiðablik og tapaðist leikurinn…Lesa meira

true

Húlladúlla mætir í Skallagrímsgarðinn í dag

Húlladúllan verður í Skallagrímsgarði í Borgarnesi klukkan fjögur í dag með heila hrúgu af húllahringjum. Að viðburðinum stendur brottfluttur Borgnesingur; Unnur María Bergsveinsdóttir, sem gerði garðinn frægan í frjálsum. Hljóp meðal annars 800 og 1500 metra hlaup fyrir UMSB. Unnur María lærði sagnfræði en eftir bankahrun yfirgaf hún Ísland í leit að ævintýrum og fór…Lesa meira

true

Hlaut nemendaverðlaun Tónlistarskólans á Akranesi

Hrefna Berg Pétursdóttir, 19 ára nemandi við Tónlistarskólann á Akranesi, hlaut verðlaun fyrir frábæran námsárangur, frammistöðu og fallegan tónlistarflutning á nýloknu skólaári. „Það er mjög mikill heiður fyrir mig að fá þessi verðlaun,” segir Hrefna í samtali við Skessuhorn. Verðlaunin eru veitt árlega af Rotarýklúbbi Akraness. Hrefna hefur áður unnið til þessara verðlauna árið 2011,…Lesa meira

true

Torfærukeppni við Akrafjall á morgun

Á morgun, laugardaginn 11. júní, fer fram torfærukeppni á Fellsenda við austanvert Akrafjall. 20 keppendur eru skráðir til leiks, 16 á sérútbúnum bílum og fjórir á götubílum. Búist er við hörku keppni. „Það verða fimm umferðir í Íslandsmeistaramótinu í torfæru í sumar og þetta er önnur þeirra. Sú fyrsta fór fram á Hellu í byrjun…Lesa meira

true

Ljósmyndasýning opnuð á morgun í Skorradal

Ljósmyndasýning verður opnuð við hátíðlega athöfn í Skorradal á morgun, laugardag kl. 17:00. Um er að ræða samvinnuverkefni Kristínar Jónsdóttur ljósmyndara á Hálsum og Huldu Guðmundsdóttur á Fitjum. Sýningin, sem ber nafnið “Eyðibýli í Skorradal allt árið,” verður haldin á Stálpastöðum en þar er eitt af eyðibýlunum í dalnum. Skessuhorn hafði samband við Kristínu og…Lesa meira

true

Veitingastaðurinn Ok Bistro opnaður á morgun

Á morgun, föstudag, verður opnaður veitingastaðurinn Ok Bistro í Borgarnesi. Eigendur staðarins eru þær Bryndís Pétursdóttir og Eva Karen Þórðardóttir auk Þórðar Bachmanns og Hafsteins Haslers eigenda Grillhússins. Veitingastaðurinn er á efstu hæð í húsinu við Digranesgötu 2, fyrir ofan útibú Arions banka. „Útsýnið er mjög fallegt hérna bæði inn Borgarfjörðinn og þegar litið er til…Lesa meira

true

Hafrannsóknastofnun metur fiskistofna í jafnvægi

Hafrannsóknastofnun kynnti í dag skýrslu sína um ástand fiskistofna og aflahorfur fyrir næsta fiskveiðiár. Ráðherrar sjávarútvegsmála hafa á liðnum árum farið að mestu eftir veiðiráðgjöfinni og því má telja líklegt að kvóti næsta árs verði í samræmi við áætlað mat Hafró og núverandi fiskveiðiár. Lagt er til að aflamark þorsks verði 244 þúsund tonn á…Lesa meira

true

Veiði hefst á Arnarvatnsheiði í næstu viku

Opnað verður fyrir sölu veiðileyfa á Arnarvatnsheiði venju samkvæmt 15. júní. Að sögn Snorra Jóhannessonar veiðivarðar lítur heiðin vel út eftir vorið og færð verður orðin góð. Hann vekur athygli á að búið er að breyta vaðinu á Norðlingafljóti þar sem farið er í Úlfsvatn, færa það lítið eitt neðar. Veiðileyfi eru sem fyrr seld í…Lesa meira