Fréttir

true

Knappur undirbúningur en málefnavinna hafin

„Við sem skipun Á lista Áfram í Hvalfjarðarsveit bjóðum fram krafta okkar til að vinna saman að góðum málefnum og viljum leitast við að efla samstöðu í samfélaginu. Þar sem framboð okkar ber að með skömmum fyrirvara er óhjákvæmilegt að undirbúningur hefur verið knappur. Við höfum nú hafið starf okkar og munum bjóða til umræðu…Lesa meira

true

Víkingur Ó. sótti sigur í fyrsta leik

Víkingur Ó. vann góðan útisigur á ÍR, 0-2, þegar liðin mættust í fyrstu umferð 1. deildar karla í knattspyrnu á laugardag. Þeir Ibrahim Sorie Barrie og Gonzalo Zamorano skoruðu mörk Víkings í síðari hálfleik. Heimamenn í ÍR voru heldur ákveðnari í upphafi leiks en liðsmenn Víkings Ó. náðu helst að ógna markinu eftir föst leikatriði.…Lesa meira

true

Draga framboðslista Betri byggðar til baka

Eggert Kjartansson á Hofsstöðum í Eyja- og Miklaholtshreppi hefur sent yfirlýsingu fyrir hönd H-lista Betri byggðar: „Listinn Betri byggð bauð fram fyrst í síðustu kosningum og höfum við náð að gera margt fyrir okkar samfélag á kjörtímabilinu. Vildum við halda því góða verki áfram og buðum því fram lista í kosningunum núna. Þar sem það…Lesa meira

true

Skagamenn byrjuðu mótið á sigri

ÍA sigraði Leikni R. með einu marki gegn engu í fyrstu umferð 1. deildar karla í knattspyrnu á laugardag. Leikurinn fór fram í Akraneshöllinni og kvartaði enginn áhorfanda yfir því, enda gekk á með éljum á Akranesi þennan dag. Eina mark leiksins skoraði Steinar Þorsteinsson á 60. mínútu eftir undirbúning Andra Adolphssonar. Skagamenn mættu ákveðnir…Lesa meira

true

Ungur og efnilegur skylmingamaður keppir fyrir Íslands hönd

Daníel Þór Líndal Sigurðsson stefnir á að keppa fyrir Íslands hönd í skylmingum með stungusverði á sumarólympíuleikunum í París árið 2024. Daníel er fæddur í London árið 2001 en er nú búsettur ásamt foreldrum sínum og yngri bróður í Belfast á Norður-Írlandi. Foreldrar hans eru Sigurður Sævarsson og Skagakonan Ásdís Líndal. Daníel hefur æft skylmingar…Lesa meira

true

Vorið er komið og grundirnar snjóa!

Það var ekki vorlegt um að lítast í Grundarfirði fimmtudaginn 3. maí síðastliðinn frekar en annarsstaðar á landinu. Hvít snjóþekja yfir öllu og stemningin frekar eins og á köldum febrúardegi frekar en á fögrum vordegi. Það stöðvaði þó ekki þennan ferðalang að skella sér í útilegu. Enda kannski engin ástæða til að láta kalt veður…Lesa meira

true

Samið um endurbætur og stækkun grunnskólans

Síðastliðinn föstudag var undirritaður samningur milli Borgarbyggðar og byggingarfyrirtækisins Eiríkur J. Ingólfsson ehf. um stækkun og heildarendurbætur á húsnæði Grunnskólans í Borgarnesi. Er samningurinn gerður að undangengnu útboði sem Ríkiskaup sá um fyrir sveitarfélagið. Einungis barst eitt tilboð í verkið. Á vef sveitarfélagsins segir að framkvæmdir muni nú hefjast á næstu dögum. Verkið mun standa…Lesa meira

true

Breyting á lista Samfylkingar og óháðra í Borgarbyggð

Einn frambjóðenda Samfylkingar og óháðra í Borgarbyggð, Guðmundur Karl Sigríðarson sem skipaði 5. sæti listans, dró framboð sitt til baka. Flokkurinn samþykkti nýjan lista og skilaði þannig inn til kjörstjórnar í Borargarbyggð. Fimmta sætið tók Kristín Frímannsdóttir grunnskólakennari í Borgarnesi. Nýr á listann kom svo Jón Freyr Jóhannsson háskólakennari á Bifröst sem er í 15.…Lesa meira

true

Dagur nakins garðyrkjufólks tekinn alla leið

Laugardagurinn 5. maí er samkvæmt evrópskri ákvörðun sá dagur sem garðyrkjufólks gengur nakið til vinnu. Eins og gefur að skilja er ákvörðun um einmitt þennan dag á almanakinu tekin einhversstaðar í Suður-Evrópu, enda sér það hver heilvita maður að venjulegir Íslendingar veldi annan og hlýrri árstíma til að striplast svona. En það breytti ekki því…Lesa meira

true

Önnur áskorun til H-lista Betri byggðar

Sigurbjörg Ottesen á Hjarðarfelli hefur beðið um að eftirfarandi áskorun verði birt, en henni er beint til fulltrúa H-lista í Eyja- og Miklaholtshreppi: “Sæl verið þið kæru sveitungar! Mér þykir miður það ástand sem að upp virðist komið hér í Eyja- og Miklaholtshreppi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Það að lýðræði mitt og fjölmargra sveitunga minna virðist…Lesa meira