Fréttir

true

Persónukjör verður að nýju í Dalabyggð

Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninganna 26. maí rann út á hádegi í dag. Engir framboðslistar bárust kjörstjórn Dalabyggðar fyrir þann tíma og verða því óbundnar kosningar (persónukjör) í sveitarfélaginu 26. maí næstkomandi eins og fyrir fjórum árum. Allir kjósendur sveitarfélagsins verða því í kjöri, nema þeir sem löglega eru undanþegnir skyldu til að taka kjöri. Tvær beiðnir…Lesa meira

true

Snjókomubakki fer yfir vestanvert landið í nótt

Til morguns er spáð kalsasamri veðrátta með snjó- og slydduhryðjum um allt vestanvert landið. Spáð er enn einum snjókomubakkanum úr suðvestri. Með honum mun snjóa á fjallvegum seint í nótt og með suðvestan 13-18 m/s vindi.  Á láglendi verður víðast krapi og ekki hægt að útiloka snjó og hálku í morgunsárið, segir í tilkynningu frá…Lesa meira

true

Einn listi barst í Eyja- og Miklaholtshreppi

Einn framboðslisti barst kjörstjórn Eyja- og Miklaholtshrepps fyrir lögbundinn lokafrest til að skila inn framboðum á hádegi í dag. Það var H-listi Betri byggðar, en oddviti hans er Eggert Kjartansson núverandi oddviti í sveitarfélaginu. Halldór K Jónsson formaður kjörstjórnar staðfestir þetta í samtali við Skessuhorn. Samkvæmt kosningalögum er nú gefinn 48 tíma frestur til að…Lesa meira

true

Íbúalistinn býður fram í Hvalfjarðarsveit

Íbúalistinn, sem fengið hefur listabókstafinn Í, var lagður fram til kjörstjórnar í Hvalfjarðarsveit í dag og býður fram fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar. Ragna Ívarsdóttir leiðbeinandi á Lækjarmel er oddviti listans, Atli Halldórsson sauðfjárbóndi skipar annað sæti og Sunneva Hlín Skúladóttir þriðja. Í heild er listinn þannig: Ragna Ívarsdóttir, leiðbeinandi, Lækjarmel 6 Atli Halldórsson sauðfjárbóndi, Neðra-Skarði Sunneva…Lesa meira

true

Þrír listar lagðir fram í Hvalfjarðarsveit

Á hádegi í dag rann út frestur til að skila inn framboðslistum vegna kosninga til sveitarstjórna. Í Hvalfjarðarsveit var kosið persónukjöri fyrir fjórum árum en svo verður ekki nú. Að sögn Jóns Hauks Haukssonar formanns kjörstjórnar bárust þrír framboðslistar. Kjörstjórn mun síðar í dag yfirfara listana og staðfesta lögmæti þeirra og mun á morgun klukkan…Lesa meira

true

Miðflokkurinn kynnir framboðslista á Akranesi

Miðflokkurinn hefur birt framboðslista sinn fyrir bæjarstjórnarkosningar á Akranesi 26. maí næstkomandi. Helga K. Jónsdóttir vélsmiður mun leiða lista flokksins. Í öðru sæti er Rúnar Ólason framkvæmdastjóri og þriðja sæti skipar Steinþór Árnason veitingamaður. Í tilkynningu frá framboðinu segir að málefnaáherslur flokksins verði kynntar á næstu dögum. Listinn í heild sinni er eftirfarandi: Helga K.…Lesa meira

true

Telur sýslumann brjóta jafnræðisregluna gagnvart Grundfirðingum

Þorsteinn Steinsson bæjarstjóri í Grundarfirði hefur sent sýslumanninum á Vesturlandi kröftuga athugasemd vegna þess að ekki er gert ráð fyrir að íbúar í Grundarfirði geti kosið utan kjörfundar í heimabyggð í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga 26. maí nk. Hefur hann ritað sýslumanni bréf þar sem farið er þess á leit að bætt verði snarlega úr. Þá hefur…Lesa meira

true

Opna kosningaskrifstofu í dag

„Framsókn og frjálsir á Akranesi munu opna kosningaskrifstofu sína að Kirkjubraut 54 – 56 í dag, laugardaginn 5. maí frá klukkan 16 – 18,“ segir í tilkynningu frá framboðinu. „Formaður Framsóknarflokksins og samgönguráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, mætir á svæðið. Því er tilvalið fyrir Skagamenn að mæta og ræða brýnar samgöngubætur við ráðherrann. Frambjóðendur Framsóknar og…Lesa meira

true

Uppfylling í Krókalóni var samkvæmt skipulagi

Akraneskaupstaður birtir í dag tilkynningu á upplýsingavef bæjarins þar sem ákveðnar rangfærslur eru leiðréttar, eins og það er orðað, vegna umfangs landfyllingar við Krókalón. „Landfylling í Krókalóni frá árinu 2012 er í samræmi við aðal- og deiliskipulag,“ segir í frétt Akraneskaupstaðar. Þá segir: „Á almennum íbúafundi sem haldin var í Grundaskóla miðvikudaginn 2. maí síðastliðinn…Lesa meira

true

Samþykktu J listann í Snæfellsbæ

Á fjölmennum fundi J- listans, bæjarmálasamtaka Snæfellsbæjar, sem haldinn var í Klifi í gærkvöldi var tilkynnt um framboð í komandi sveitastjórnarkosningum. Var listinn einróma samþykktur. Sex af þeim sem voru síðast á J listanum gáfu aftur kost á sér. Það eru þau Kristján Þórðarson, Marta Pétursdóttir, Drífa Skúladóttir, Guðmundur Ólafsson, Fríða Sveinsdóttir og Svandís Jóna…Lesa meira