Fréttir

true

Á tveimur hjólum í gegnum Kambódíu

Hallgrímur Guðsteinsson var sólbrúnn, eins og Íslendingur sem er nýkominn úr sólinni á Spáni, þegar blaðamaður Skessuhorns hitti hann að máli í Dularfullu búðinni á Akranesi í síðustu viku. En Hallgrímur fann ekki sólina á Spáni, eins og holskefla af Íslendingum gerði um páskana. Hann fann hana í Kambódíu í tíu daga mótorhjólaferð í byrjun…Lesa meira

true

„Sameining lögregluembættanna hefur verið til bóta“

Embætti lögreglustjórans á Vesturlandi tók til starfa 1. janúar 2015 í kjölfar þess að gerðar höfðu verið breytingar á embættum sýslumanna með stofnun sjö nýrra lögregluembætta í landinu sem tóku við starfsemi lögreglu sem áður tilheyrðu embættum sýslumanna. Fyrir stofnun embættisins voru þrír lögreglustjórar starfandi á Vesturlandi. Höfðu þeir aðsetur á Akranesi, í Borgarnesi og…Lesa meira

true

Fyrsta einbýlishúsið í Búðardal í tíu ár

Björn Henrý Kristjánsson og Rosemary Lilja Ríkharðsdóttir tóku fyrstu skóflustunguna að nýju einbýlishúsi við Ægisbraut í Búðardal föstudaginn 13. apríl. Þetta mun vera fyrsti húsgrunnur í eigu einstaklinga sem tekinn er í Búðardal síðustu tíu árin en hjónin hafa fest kaup á bjálkahúsi frá Völundarhúsum. Sjá nánar í Skessuhorni vikunnar.Lesa meira

true

Pop-up vinnustofa til stuðnings Safnahúsi

Síðastliðinn föstudag settu fjórir listamenn upp svokallað Pop-up vinnustofu í Safnahúsinu við Bjarnarbraut í Borgarnesi. Þar unnu listamennirnir að verkum sínum auk þess sem tveir þeirra buðu gestum upp á að mála eða teikna af þeim myndir sem svo var hægt að kaupa til styrktar Safnahúsinu. Tilgangurinn með vinnustofunni var bæði að afla fjár og…Lesa meira

true

Sektir hækkaðar umtalsvert frá 1. maí

Skrifað hefur verið undir nýja reglugerð um sektir og önnur viðurlög fyrir umferðarlagabrot. Tekur breytingin gildi 1. maí næstkomandi. Sektir fyrir umferðarlagabrot hafa margar hverjar verið óbreyttar í rúman áratug og mörgum þótt þær of lágar og hafa lítinn fælingarmátt. Sektir við umferðarlagabrotum eru til þess fallnar að veita ökumönnum aukið aðhald og stuðla þannig…Lesa meira

true

Skagamenn sigursælir á Opna Borgarfjarðarmótinu

Opna Borgarfjarðarmótinu í bridds lauk í gærkvöldi í Logalandi. Að venju var mótið bæði spilað á Akranesi og í Borgarfirði, að þessu sinni með þátttöku 18 para.  Sigurvegarar urðu Skagamennirnir Karl Alfreðsson og Jón Alfreðsson með skor upp á 67,5%. Í öðru sæti urðu Borgfirðingarnir Sveinbjörn Eyjólfsson og Sigurður Einarsson með 54,9%. Sjónarmun á eftir…Lesa meira

true

Syntu til verðlauna og settu met

Íslandsmeistaramótið í sundi í 50 metra laug fór fram í Laugardalslaug um liðna helgi. Tólf keppendur frá Sundfélagi Akraness tóku þátt í mótinu. Sneru keppendur heim með nokkra verðlaunapeninga auk þess sem eitt Akranesmet féll. Sævar Berg Sigurðsson vann til silfurverðlauna í 50 m bringusundi og Atli Vikar Ingimundarson hreppti bronsið í 100 m flugsundi…Lesa meira

true

Þrjú gull og þrjú brons á ÍM – 50

Sundkonan Inga Elín Cryer frá Akranesi keppti á ÍM -50 um liðna helgi og náði þar frábærum árangri. Hún keppti í 100m og 200m flugsundi og 200m skriðsundi og varð Íslandsmeistari í öllum þessum greinum. Þá vann hún til þriggja bronsverðlauna í boðsundsgreinum. Þannig að afrakstur helgarinnar voru þrjú gull og þrjú brons. Inga Elín…Lesa meira

true

Unnið við viðgerðir á Kjalarnesi

Í dag, þriðjudaginn 24. apríl frá kl. 10.00 og fram eftir degi verður unnið við viðgerðir á Vesturlandvegi, á milli Grundarhverfis á Kjalarnesi og Hvalfjarðarganga. Þrengt verður að umferð við vinnusvæðin og umferð stýrt framhjá ef þarf á meðan framkvæmdum stendur. „Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.…Lesa meira

true

Óskað eftir tillögum um bæjarlistamann

Menningar- og safnanefnd Akraneskaupstaðar hefur óskað eftir tillögum almennings til útnefningar bæjarlistamanns Akraness fyrir árið 2018. Bæjarlistamaður Akraness hefur verið útnefndur árlega frá árinu 1992 þegar Hrein Elíasson myndlistarmaður varð þess heiðurs aðnjótandi. Leirlistakonan Kolbrún S. Kjarval var útnefnd bæjarlistamaður Akraness á síðasta ári. Tillögum skal skilað inn rafrænt í gegnum heimasíðu Akraneskaupstaðar fyrir 11.…Lesa meira