Fréttir

true

Listin til stuðnings Safnahúsi

Föstudaginn 20. apríl milli klukkan 13 og 18 setja nokkrir myndlistarmenn upp Pop-up vinnustofu í Safnahúsinu í Borgarnesi. Þar munu þeir teikna/mála gesti og gangandi og ýmis myndefni og verður hægt að kaupa verkin á staðnum. Ágóði af sölu verkanna rennur til starfsemi Safnahúss. Í kynningu á verkefninu segir: „Pop up verkefni má líkja við…Lesa meira

true

Guðný frá Grenjum er 104 ára í dag

Guðný Baldvinsdóttir frá Grenjum á Mýrum verður 104 ára í dag, 18. apríl. Hún er við góða heilsu og líklega sá íbúi í Brákarhlíð sem fer reglulegast út til hreyfingar og til að njóta hreina loftsins. Jónas Ragnarsson sem heldur úti vefnum Langlífi segir í samtali við Skessuhorn að enginn íbúi Borgarness hafi orðið eldri…Lesa meira

true

Margvíslegar leiðir reyndar til fjársvika

Að minnsta kosti tvenn hjón, sem bæði reka fyrirtæki á Akranesi, fengu nýverið tölvupósta frá þrjótum sem reyna allt hvað þeir geta til að svíkja út fé. Meðfylgjandi er skjáskot af öðrum tölvupóstinum sem barst eiginkonu ritstjóra Skessuhorns í morgun. Pósturinn er skrifaður í nafni eiginmannsins sem biður um að 18.950 evrur séu millifærðar inn…Lesa meira

true

Listaverk sett á veggi fyrirtækja

Eins og glöggir vegfarendur hafa tekið eftir eru veggirnir á húsnæði Hraðfrystihúss Hellissands á Hellissandi að taka á sig breytta mynd þessa dagana. Listamennirnar sem þarna eru að verki koma allsstaðar að úr heiminum. Flestir erlendir, en þeir taka þátt í nýju verkefni Hellissandur; Street Art Capital of Iceland. Hugmyndina að þessu fékk Kári Viðarsson,…Lesa meira

true

Bjóða út tjaldstæðarekstur í Kalmansvík

Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í leigu á landi undir rekstur tjaldsvæðisins í Kalmansvík. Nýr leigutaki mun þá taka við svæðinu fyrir opnun í ár sem alla jafnan er 1. maí og samningstímabilið er tvö ár með kost á framlengingu. Í auglýsingu í Skessuhorni í dag segir að tilboðin verði opnuð mánudaginn 30. apríl klukkan 11,…Lesa meira

true

Vesturlandsdeild Félags kvenna í atvinnulífinu stofnuð í kvöld

Vesturlandsdeild Félags kvenna í atvinnulífinu verður stofnuð í kvöld, miðvikudaginn 18. apríl, á stofnfundi í Narfeyrarstofu í Stykkishólmi. Vesturlandsdeildin verður þar með fjórða landshlutadeild FKA. Fyrir eru starfræktar deildir á Norðurlandi, Suðurlandi og Vestfjörðum og félagið telur ríflega 1.100 félagskonur úr öllum greinum atvinnulífsins. Á stofnfundinum í Stykkishólmi mun Rakel Sveinsdóttir, formaður FKA, kynna starfsemi…Lesa meira

true

Stjórnmálaflokkar lýsa andúð á óhróðri og undirróðsstarfsemi

Framkvæmdastjórar allra flokka sem sæti eiga í nefnd forsætisráðherra um fjármál stjórnmálaflokka, lýsa í tilkynningu sem þeir hafa sent frá sér, andúð á óhróðri og undirróðursstarfsemi í kosningabaráttu og ásetja sér að vinna gegn slíku. „Kosningabarátta í aðdraganda kosninga er lykilþáttur í lýðræðislegri stjórnskipan og mikilvægt að hún sé málefnaleg og reglum samkvæm svo að…Lesa meira

true

Vesturlandssýning í Faxaborg á föstudaginn

Vesturlandssýning verður haldin föstudaginn 20. apríl klukkan 20:00 í Reiðhöllinni Faxaborg í Borgarnesi. Ræktunarbú af svæðinu koma fram og börn og unglingar sýna hesta sína. „Nokkrir glæsilegir stóðhestar af Vesturlandi munu mæta á svæðið. Grínatriði og fleira óvænt verður í boði. Veitt verða peningaverðlaun í boði Borgarverks og Límtré-Vírnets, kr. 100.000 fyrir þann hest sem…Lesa meira

true

Stefnt að hvalveiðum í sumar

Eftir tveggja ára hlé er útlit fyrir að hvalveiðar hjá Hvali hf. hefjist að nýju frá Hvalfirði í sumar. Frá því var greint í Morgunblaðinu í dag að stefnt sé að veiðar hefjist 10. júní. Leyfi er til veiða á 161 langreyði á þessari vertíð en auk þess má nota hluta af ónýttum kvóta síðasta…Lesa meira

true

Lýst eftir strokufanga

Lögreglan á Suðurnesjum hefur lýst eftir Sindra Þór Stefánssyni, en hann strauk frá fangelsinu að Sogni aðfararnótt þriðjudags. Hann hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 2. febrúar síðastliðnum vegna rannsóknar lögreglu á umfangsmiklum tölvuþjófnaði úr nokkrum gagnaverum, m.a. þjófnaði á 28 tölvum úr gagnaveri í Borgarnesi. Sindri er 192 cm á hæð, íþróttamannslega vaxinn með skolleitt hár…Lesa meira