Fréttir

true

„Ef Sunna verður ekki vöknuð klukkan átta skaltu ýta við hana“

Íslenskan liggur ekki jafn vel fyrir öllum landsmönnum en margir eiga erfitt með ýmsar málfars- og stafsetningarreglur sem fylgja tungumálinu. Þá er þágufallssýki stundum sögð hrjá marga innfædda. Við sem höfum alist upp með íslenskuna sem aðal tungumál eigum þó yfirleitt ekki í miklum vandræðum með að tala málið án þess að vanþekking okkar á…Lesa meira

true

Engin laxveiði verður í Andakílsá í sumar

Stjórn Veiðifélags Andakílsár í Borgarfirði hefur ákveðið að engin laxveiði verði í ánni í sumar. Þetta var ákveðið að höfðu samráði við fiskifræðing og með tilliti til aðstæðna í ánni. „Við höfum ákveðið að láta náttúruna njóta vafans. Við vitum ekki hvernig seiðum sem nú eru í sjó mun reiða af og teljum skynsamlegast í…Lesa meira

true

Gleðilegt sumar!

Lóan er komin, þessi boðberi sumars og hlýnandi veðurs, mætti á Vesturlandið í liðinni viku. Myndina tók Sólveig Jóna Jóhannesdóttir á Mýrunum síðastliðinn föstudag. Skessuhorn óskar lesendum sínum  nær og fjær gleðilegs sumars með þökk fyrir veturinn.Lesa meira

true

Maður í mislitum sokkum er hin besta skemmtun

Leikfélagið Grímnir í Stykkishólmi frumsýndi á föstudagskvöld gamanleikinn Maður í mislitum sokkum, eftir Arnmund S. Backman. Sýnt er í sal Tónlistarskólans í Stykkishólmi. Maður í mislitum sokkum fjallar um Steindóru og vini hennar. Steindóra er ósköp ljúf ekkja en þykir hálf taugaveikluð, tepruleg en góðleg kona sem hefur áhyggjur af almenningsálitinu. Eftir ferð í matvörubúðina…Lesa meira

true

Vilja þróa kvennadeildina áfram

Fyrir rúmlega hálfu ári var kvennadeildin á Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) sett í hendur nýrra kvensjúkdómalækna. Konráð Lúðvíksson og Edward Keirnan létu af störfum á síðasta ári eftir að hafa byggt upp öflugt starf á deildinni. Hrund Þórhallsdóttir tók við starfi yfirlæknis á kvennadeildinni og Katharina Shumacher tók við sem sérfræðingur. Báðar luku þær sérfræðinámi erlendis;…Lesa meira

true

Reka 115 staura niður á fast

Íbúar á Akranesi mega búast við högghávaða Í dag var hafist handa við að reka niður staura vegna framkvæmda við Stillholt 21 á Akranesi. Þar byggir verktakafyrirtækið Þingvangur ehf. tíu hæða fjölbýlishús. Staurarnir verða reknir niður með höggorku og eru 115 talsins. Allir verða staurarnir reknir niður í klöpp til að tryggja að burður sökkla…Lesa meira

true

Hætt við söluna á Laugum í Sælingsdal

Hætt hefur verið við sölu á eignum Dalabyggðar að Laugum í Sælingsdal. Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti samhljóða á fundi sínum í gærkvöldi að slíta viðræðum við tilboðsgjafa, Arnarlón ehf., eftir að tilboðsgjafi óskaði þess að sveitarfélagið færði skuldabréf sín á þriðja veðrétt. Eins og áður hefur verið greint frá stóðu yfir viðræður milli Dalabyggðar og Arnarlóns…Lesa meira

true

Framboð L lista Samstöðu í Grundarfirði

Í síðustu viku var kynntur framboðslisti Samstöðu í Grundarfirði, en listinn býður fram undir listabókstafnum L. Efstu sæti hans skipa þau Hinrik Konráðsson, Sævör Þorvarðardóttir, Garðar Svansson og Berghildur Pálmadóttir. Listinn í heild er þannig: Hinrik Konráðsson Sævör Þorvarðardóttir Garðar Svansson Berghildur Pálmadóttir Vignir Smári Maríasson Signý Gunnarsdóttir Sigurrós Sandra Bergvinsdóttir Loftur Árni Björgvinsson Ragnheiður…Lesa meira

true

Listin til stuðnings Safnahúsi

Föstudaginn 20. apríl milli klukkan 13 og 18 setja nokkrir myndlistarmenn upp Pop-up vinnustofu í Safnahúsinu í Borgarnesi. Þar munu þeir teikna/mála gesti og gangandi og ýmis myndefni og verður hægt að kaupa verkin á staðnum. Ágóði af sölu verkanna rennur til starfsemi Safnahúss. Í kynningu á verkefninu segir: „Pop up verkefni má líkja við…Lesa meira

true

Guðný frá Grenjum er 104 ára í dag

Guðný Baldvinsdóttir frá Grenjum á Mýrum verður 104 ára í dag, 18. apríl. Hún er við góða heilsu og líklega sá íbúi í Brákarhlíð sem fer reglulegast út til hreyfingar og til að njóta hreina loftsins. Jónas Ragnarsson sem heldur úti vefnum Langlífi segir í samtali við Skessuhorn að enginn íbúi Borgarness hafi orðið eldri…Lesa meira