Fréttir

true

Fjölmörg óveðursútköll

Björgunarsveitir Landsbjargar sinntu fjölmörgum aðgerðum vegna óveðursaðstoðar í gær og fram á nóttina, þegar djúp lægð gekk yfir vestan- og norðvestanvert landið. Meðal annars voru björgunarsveitir í Stykkishólmi, Borgarnesi, Akranesi og Reykholti kallaðar út í gær og svo sveitir um norðanvert landið og á Vestfjörðum þegar leið á nóttina. Beiðnir um verkefni hættu að berast…Lesa meira

true

Velta gerð Sundabrautar fyrir sér

Að frumkvæði lögfræðistofunnar Lex og fjárfestingafélagsins Gamma er nú unnið að myndun vinnuhóps sem gera á frumathuganir á mögulegri byggingu Sundabrautar. Þannig er verið að dusta rykið af verkefni sem legið hefur í láginni um árabil. Óskað hefur verið eftir aðkomu Faxaflóahafna, en stjórnarformaður Lex og forstjóri Gamma segja í bréfi til Gísla Gíslasonar hafnarstjóra…Lesa meira

true

Ingi Þór framlengir við Snæfell

Ingi Þór Steinþórsson körfuboltaþjálfari er búinn að framlengja samning sinn við Snæfell til næstu tveggja ára. Á Karfan.is er greint frá því að Snæfell og Ingi Þór hafi orðið sammála um að stefna að minnst níu ára veru kappans í Stykkishólmi sem stjórinn yfir Snæfellsliðunum knáu. Ingi verður áfram með bæði karla- og kvennalið félagsins…Lesa meira

true

Ætla að fjarlægja dekkjakurl af sparkvöllum

Bæjarráð Akraness samþykkti á fundi sínum í liðinni viku að á þessu ári að fjarlægja dekkjakurl af sparkvöllum við grunnskóla bæjarins. Var skipulags- og umhverfisráði falið að gera tillögu að breytingu á fjárfestingaáætlun ársins með tilliti til þess. Á Akranesi eru þrír sparkvellir með gervigrasi. Gúmmíkurlið sem áberandi hefur verið í umræðunni þ.e. endurunnið dekkjakurl,…Lesa meira

true

Hvessir enn á ný í síðdegis – varað við ferðalögum

Spáð er stormi eða roki á landinu seinni partinn í dag og enn hvassara veðri í kvöld. Hvassast verður um norðvestanvert landið og á norðanverðu Snæfellsnesi. Samhliða þessu verður asahláka með rigningu og má búast við talsvert miklu leysingavatni í ám og lækjum þegar líður á kvöldið. Veðurstofa segir viðbúið að aukið álag verði á…Lesa meira