Fréttir

true

Lýst eftir strokufanga

Lögreglan á Suðurnesjum hefur lýst eftir Sindra Þór Stefánssyni, en hann strauk frá fangelsinu að Sogni aðfararnótt þriðjudags. Hann hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 2. febrúar síðastliðnum vegna rannsóknar lögreglu á umfangsmiklum tölvuþjófnaði úr nokkrum gagnaverum, m.a. þjófnaði á 28 tölvum úr gagnaveri í Borgarnesi. Sindri er 192 cm á hæð, íþróttamannslega vaxinn með skolleitt hár…Lesa meira

true

Miðflokkurinn með opinn fund á Akranesi

Miðflokkurinn á Akranesi heldur opinn fund í Gamla Kaupfélaginu á Akranesi í kvöld, þriðjudaginn 17. apríl kl. 20:00. Formaður flokksins og þingmenn kjördæmisins mæta. Allir velkomnir. Nánari upplýsingar bjornfalki@midflokkurinn.is eða í síma 690-0154. -fréttatilkynningLesa meira

true

Ný stjórn kosin í Lífsbjörgu

Framhaldsaðalfundur var haldinn í björgunarsveitinni Lífsbjörg í Snæfellsbæ 10. apríl sl. Halda þurfti framhaldsaðalfund þar sem ekki náðist að stilla upp stjórn tíu dögum fyrir aðalfund eins og reglur félagsins kveða á um. Auk venjulegra aðalfundastarfa var kosin ný stjórn og urðu töluverðar breytingar á henni. Halldór Sigurjónsson lét af formennsku, Hafþór Svanur Svansson lét…Lesa meira

true

Fjallar um íþróttamót Borgfirðinga á bökkum Hvítár

Í sumarbyrjun, þriðjudaginn 24. apríl næstkomandi, flytur Helgi Bjarnason blaðamaður fyrirlestur í Bókhlöðu Snorrastofu um íþróttamótin, sem haldin voru á Hvítárbakka og Ferjukotsbökkum og sundkeppni sem fram fór um árabil í Hvítá og Norðurá. Segir þar af blöndu skemmtunar og menningar, sem héraðsmenn stóðu fyrir og nefnir Helgi undirheiti fyrirlestursins, “héraðsfólk sameinast í skemmtun, menningu…Lesa meira

true

Sumardagurinn fyrsti á Aðalgötu 20

Eins og glöggir bæjarbúar í Stykkishólmi hafa tekið eftir hafa að undanförnu staðið yfir framkvæmdir við Aðalgötu 20. Ný hurð og gluggar, skjólveggur og stétt fagna sumri með þeim sem um götuna fara. Við Aðalgötu 20 er til húsa Leir7 og Smávinir. Leir7 leggur áherslu á nýtingu á leir úr Fagradal. Sigríður Erla Guðmundsdóttir vinnur…Lesa meira

true

Söngkeppni framhaldsskólanna verður á Akranesi 28. apríl

Söngkeppni framhaldsskólanna verður haldin í Íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi laugadaginn 28. apríl. Fyrr í vetur hafði keppnin verið blásin af vegna ótta þáverandi rekstraraðila við taprekstur. Nú hafa hins vegar Vinir hallarinnar á Akranesi tekið að sér að blása nýju lífi í keppnina og verður hún því haldin eftir tíu daga. Í ár eru…Lesa meira

true

Þróunarverkefnið Hreint haf í Grunnskóla Snæfellsbæjar

Nemendur í 6. bekk Grunnskóla Snæfellsbæjar ætla svo sannarlega að láta til sín taka í umhverfismálum. Ætla þeir að hafa áhrif með plastrannsóknum, plastlausum áskorunum og hreinsunum, en Grunnskóli Snæfellsbæjar er í samstarfi við Landvernd um að vinna að þróunarverkefni sem heitir Hreint haf – Ungt fólk á móti plasti. Stefnt er að því að…Lesa meira

true

Stofnuðu Félag kvenna í atvinnurekstri á Akranesi

Fimmtudaginn 12. apríl síðastliðinn var boðað til stofnfundar Félags kvenna í atvinnurekstri á Akranesi og nágrenni. Tilgangur með stofnun félagsins er að efla tengslanet kvenna sem stýra og stjórna fyrirtækjum ásamt því að standa fyrir fræðslufundum og fyrirlestrum. Fundurinn var vel sóttur. Tuttugu konur úr hinum ýmsu geirum atvinnulífsins mættu á þennan fyrsta fund, bæði…Lesa meira

true

Lyfjaeftirliti Íslands komið á fót

Starfsemi lyfjaeftirlits á Íslandi var færð í sérstaka sjálfseignarstofnun í liðinni viku þegar Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og Lárus Blöndal forseti ÍSÍ, skrifuðu undir skipulagsskrá Lyfjaeftirlits Íslands. Lyfjaeftirlit Íslands mun skipuleggja og framkvæma lyfjaeftirlit og birta og kynna bannlista um efni sem óheimilt er að nota í íþróttum. Stofnunin mun einnig standa að fræðslu…Lesa meira

true

Efnilegar knattspyrnukonur semja við ÍA

Síðastliðinn föstudag skrifuðu fjórar ungar og efnilegar knattspyrnukonur undir samning við knattspyrnufélag ÍA. Þetta eru þær María Björk Ómarsdóttir, Sigrún Eva Sigurðardóttir, Erla Karitas Jóhannesdóttir og Róberta Lilja Ísólfsdóttir. Þær eru fæddar árin 2001 og 2002 og hafa allar spilað mikilvægt hlutverk í hópi meistaraflokks á undirbúningstímabilinu í vetur. Auk þess komu þær Sigrún og…Lesa meira