Fréttir

true

Söfnun lokið fyrir gerð stuttmyndar í Borgarnesi

Undanfarið hefur verið safnað fyrir íslensku stuttmyndinni „Pourquoi Pas Borgarnes“ á hópfjármögnunarvefnum Karolinafund. Söfnunin bar góðan árangur og hefur nú allri upphæðinni, rúmlega 447 þúsund krónum, verið safnað. Það er myndlistarkonan Michelle Bird sem er framleiðandi myndarinnar ásamt Kuba Urbaniak en leikstjóri er Alberto Garcia. Stuttmyndin er í viðtalsformi og í henni eru átján íbúar…Lesa meira

true

Metfjöldi væntanlegur á Skagann vegna Norðurálsmóts

Það verður nóg um að vera á Akranesi um helgina, frá 10.-12. júní, þegar Norðurálsmótið í knattspyrnu fer fram. Gestir taka að streyma í bæinn í dag og koma sér fyrir á þar til gerðum tjaldstæðum. Að þessu sinni verða 33 félög með keppendur á mótinu en alls eru 1500 knattspyrnumenn skráðir til leiks. Mótið…Lesa meira

true

Rafmagnslaust næstu nótt á Snæfellsnesi

Í tilkynningu nú í morgun frá Rarik kemur fram að raforkunotendur á Staðarsveitar- og Laugargerðislínu á Snæfellsnesi verða án rafmagns næstu nótt, aðfararnótt föstudagsins 10. júní frá miðnætti og til klukkan 07. Búast má við rafmagnstruflunum á þessum tíma á öllu norðanverðu Snæfellsnesi, en víðtækt straumleysi verður í Eyja- og Miklaholtshreppi og Kolbeinstaðahreppi. Verið er…Lesa meira

true

Víkingur á toppi A-riðils fyrstu deildar

Víkingur Ólafsvík fékk Knattspyrnufélagið Hlíðarenda í heimsókn í gær í A-riðli fyrstu deildar kvenna. Fyrir leikinn hafði Víkingur unnið alla sína leiki. Það varð engin breyting á því leikurinn í gær endaði 1 – 0 fyrir Víkingi. Sigurmark Snæfellinga kom á elleftu mínútu og það skoraði Samira Suleman sem hefur nú skorað sex mörk í…Lesa meira

true

Styrktarmót Valdísar Þóru fór fram um helgina

Styrktarmót Valdísar Þóru Jónsdóttur kylfings fór fram á Garðavelli laugardaginn 4. júní með þátttöku um 170 kylfinga. Veðrið lék við kylfinga og völlurinn var í frábæru standi að sögn þátttakenda og kylfinga. Helstu úrslit voru eftirfarandi:   Kvennaflokkur Ragnheiður Jónasdóttir 42 punktur Bára Valdís Ármannsdóttir 37 punktar Anna S Carlsdóttir 36 punktar betri á síðustu…Lesa meira

true

Öll heimili fengu fjölnota burðarpoka

Heiðarsóley, umhverfisblað Heiðarskóla, kom inn á heimili í Hvalfjarðarsveit í síðustu viku. Með blaðinu fylgdu fjölnota burðarpokar, einn poki á hvert heimili í sveitarfélaginu. Pokarnir eru gjöf frá börnunum í leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar en börnin vilja hvetja fólk til að draga úr plastpokanotkun og nota frekar fjölnota poka. Á pokunum eru tvær myndir, önnur…Lesa meira

true

Aukin fagþekking og bætt umhirða grasvalla er nauðsynleg

Umræðan um hvort leika skuli knattspyrnu á grasi eða gervigrasi hefur reglulega skotið upp kollinum hér á landi undanfarin ár. Grasvallafræðingurinn Haraldur Már Stefánsson er búsettur í Borgarnesi. Hann á og rekur fyrirtækið HMS-golf og hefur undanfarin ár sinnt umhirðu og viðhaldi Skallagrímsvallar. Honum þykir umræðan um gras og gervigras almennt ekki alveg hugsuð til…Lesa meira

true

Óhapp í Búðardal

Um nónbil í dag var götusóp ekið í gegnum grindverk og að húsgafli Vegagerðarinnar við Vesturbraut í Búðardal. Samkvæmt heimildum Skessuhorns má rekja óhapp þetta til veikinda ökumanns. Ekki urðu slys á fólki.Lesa meira

true

Þingmenn ræða bann við verkfalli flugumferðarstjóra

Alþingi var kallað saman til aukafundar í dag. Meginefni fundarins var fyrsta umræða um frumvarp innanríkisráðherra sem bannar verkfallsaðgerðir flugumferðarstjóra, takist ekki að semja fyrir 24. júní nk. Ríkisstjórnin samþykkti fyrir sitt leyti frumvarpið í morgun. Deildar meiningar voru meðal þingmanna um málið. Ólöf Nordal innanríkisráðherra sagði frumvarpið hins vegar nauðsynlegt. Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu hve…Lesa meira

true

Frambjóðendur svara í Skessuhorni vikunnar

Fyrir útgáfu Skessuhorns sem kom út í morgun var öllum níu frambjóðendunum til embættis forseta Íslands sendar ríflega 20 spurningar til að lesendur geti fræðst betur um persónurnar og þann málstað sem þeir standa fyrir. Svör bárust frá átta frambjóðendum og er þeim þakkað kærlega fyrir. Ástþór Magnússon gaf sér ekki tíma til að svara þrátt fyrir…Lesa meira