
Um nónbil í dag var götusóp ekið í gegnum grindverk og að húsgafli Vegagerðarinnar við Vesturbraut í Búðardal. Samkvæmt heimildum Skessuhorns má rekja óhapp þetta til veikinda ökumanns. Ekki urðu slys á fólki.Lesa meira

Um nónbil í dag var götusóp ekið í gegnum grindverk og að húsgafli Vegagerðarinnar við Vesturbraut í Búðardal. Samkvæmt heimildum Skessuhorns má rekja óhapp þetta til veikinda ökumanns. Ekki urðu slys á fólki.Lesa meira

Alþingi var kallað saman til aukafundar í dag. Meginefni fundarins var fyrsta umræða um frumvarp innanríkisráðherra sem bannar verkfallsaðgerðir flugumferðarstjóra, takist ekki að semja fyrir 24. júní nk. Ríkisstjórnin samþykkti fyrir sitt leyti frumvarpið í morgun. Deildar meiningar voru meðal þingmanna um málið. Ólöf Nordal innanríkisráðherra sagði frumvarpið hins vegar nauðsynlegt. Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu hve…Lesa meira

Fyrir útgáfu Skessuhorns sem kom út í morgun var öllum níu frambjóðendunum til embættis forseta Íslands sendar ríflega 20 spurningar til að lesendur geti fræðst betur um persónurnar og þann málstað sem þeir standa fyrir. Svör bárust frá átta frambjóðendum og er þeim þakkað kærlega fyrir. Ástþór Magnússon gaf sér ekki tíma til að svara þrátt fyrir…Lesa meira

Meistaranemar í lögfræði við Háskólann á Bifröst fluttu mál í Héraðsdómi Vesturlands í lok síðustu viku en málflutningurinn er hluti af námskeiðinu Málflutningur fyrir dómi. „Málflutningurinn er mikilvægur hluti námsins og hagnýtt verkefni sem veitir nemendum þjálfun og gefur þeim innsýn í starf lögmanna. Hægt er að kynna sér krefjandi laganám við Háskólann á Bifröst…Lesa meira

Skagamenn mæta Breiðabliki í 16-liða úrslitum bikarkeppni KSÍ í knattspyrnu karla á morgun. Skagamenn komust síðast í 16-liða úrslit bikarsins árið 2013 og mættu þá einnig liði Breiðabliks. Sá leikur fór í framlengingu en í henni hrundi leikur Skagamanna og fengu þeir á sig þrjú mörk. Leikið verður á Akranesvelli klukkan 19:15 og má búast…Lesa meira

Brautskráning frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga var 27. maí síðastliðinn. Meðal þeirra sem lauk stúdentsprófi frá skólanum var Viktoría Ellenardóttir, með einkunnina 9,74, hæstu meðaleinkunn í sögu skólans. Viktoría lauk náminu á þremur árum og hlaut einnig viðurkenningar fyrir góðan árangur í stærðfræði, tungumálum, raungreinum, íslensku, spænsku og ensku. Að sögn Viktoríu var það alls ekki markmið…Lesa meira

Þorsteinn Eyþórsson, 62 ára Borgnesingur, lagði af stað í morgun hjólandi úr Borgarnesi áleiðis hringveginn. Eftir hressingu í Geirabakaríi var lagt af stað og hjólaði Ingibjörg dóttir Steina með honum fyrsta spölinn. Fyrsti áfangastaður í ferðinni er Hrútatunga. Steini kveðs ekki ætla að verða með neinn æsing í ferðinni og stefnir á að taka 16 daga…Lesa meira

Á Sjómannadaginn síðastliðinn sunnudag hlutu áhafnir þriggja skipa á Snæfellsnesi viðurkenningar frá Landsbjörgu fyrir að hafa sýnt öðrum fremur góða öryggisvitund á námskeiðum Slysavarnaskóla sjómanna. Þetta voru áhafnir Steinunnar SH 167, Egils SH 195 og Sveinbjörns Jakobssonar SH 10. Á Steinunni SH 167 er Brynjar Kristmundsson skipstjóri og tók Þór Kristmundsson á móti viðurkenningunni fyrir hönd…Lesa meira

Kristinn Bragi Garðarsson lauk stúdentsprófi af náttúrfræðibraut Fjölbrautaskóla Vesturlands í lok síðasta mánaðar. Hann hlaut viðurkenningu fyrir bestan árangur á stúdentsprófi á vorönn 2016 og fyrir ágætan árangur í stærðfræði. Kristinn Bragi segir í samtali við Skessuhorn að sér hafi alltaf gengið sæmilega í námi og að hann hafi í raun aldrei þurft að hafa…Lesa meira

Í tilkynningu frá Rarki segir: „STRAUMLEYSI: Snæfellsnes norðanvert, Staðarsveit, Breiðavík, Eyja-, Miklaholts-, og Kolbeinstaðahreppur.“ Raforkunotendur á Staðarsveitar-, og Laugagerðislínum á Snæfellsnesi, rafmagnslaust verður aðfararnótt 9. júní frá miðnætti til kl. 07:00 vegna vinnu á 66 kV flutningslínu Landsnets. Búast má við rafmagnstruflunum á norðanverðu Snæfellsnesi á saman tíma. Rarik biðst velvirðingar á óþægindum sem af…Lesa meira