Fréttir

true

Harma framkvæmd samræmdra könnunarprófa

Skólastjórafélag Íslands og Félag grunnskólakennara harma framkvæmd samræmdra könnunarprófa í ensku og íslensku sem lögð voru fyrir nemendur 9. bekkjar í öllum grunnskólum landsins í þessari viku. Félögin tvö hafa sent frá sér ályktun vegna málsins og hljóðar hún svo: „Skólastjórafélag Íslands og Félag grunnskólakennara harma hvernig til hefur tekist við framkvæmd samræmdra könnunarprófa í…Lesa meira

true

Samræmd próf algjört klúður – Menntamálastofnun ber ábyrgðina

Fresta þurfti í morgun samræmdum prófum í ensku sem nemendur 9. bekkja grunnskóla í landinu áttu að þreyta. Sama gerðist á miðvikudag þegar próf í íslensku var lagt fyrir. Stærðfræðipróf í gær gekk hins vegar nokkurn veginn eins og til var ætlast. Ábyrgð á framkvæmd samræmdra prófa er í höndum Menntamálastofnunar. Fram hefur komið að…Lesa meira

true

Meirihluti íbúa fylgjandi persónukjöri

Eins og Skessuhorn greindi nýverið frá lagði sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar skoðanakönnun fyrir íbúa þar sem kannað var hvort þeim hugnist betur persónukjör eða listakosningar í komandi sveitarstjórnarkosningum. Öllum íbúum Hvalfjarðarsveitar sem náð hafa 18 ára aldri barst bréf þar sem þeim bauðst að taka þátt í könnuninni. Svörin átti svo að senda á skrifstofu sveitarfélagsins fyrir…Lesa meira

true

Kona á skjön er sýning um Guðrúnu frá Lundi

Kona á skjön, sýning um ævi og störf Guðrúnar frá Lundi, verður opnuð á Bókasafni Akraness á morgun, laugardaginn 10. mars kl. 13:00. Rithöfundarferill Guðrúnar frá Lundi er sannkallað ævintýri í íslenskri bókmenntasögu. Óþekkt kona norðan úr Skagafirði verður metsöluhöfundur nánast á einni nóttu og bækurnar tróna á toppi vinsældalista í rúma tvo áratugi. Hún…Lesa meira

true

Tap í kveðjuleik Jóns Orra

ÍA og FSu mættust í lokaumferð 1. deildar karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Áður en leikurinn hófst var Jón Orri Kristjánsson, leikmaður ÍA, heiðraður af áhorfendum og liðsfélögum sínum. Hann hafði gefið það út að leikurinn yrði hans síðasti á 19 ára farsælum körfuknattleiksferli. Skagamenn voru fyrir leikinn á botni deilarinnar en FSu í sætinu…Lesa meira

true

Hittast einu sinni í mánuði til að ræða um bækur

Einu sinni í mánuði koma saman fáeinar konur í Grundarfirði og skiptast á skoðunum um bók sem þær hafa þá nýlokið við að lesa. Í febrúar 2016 hittust konurnar fyrst og stofnuðu leshóp sem hefur fengið nafnið Köttur úti í mýri. Í fyrsta skipti sem leshópurinn hittist voru þær aðeins fjórar en hafa nú tvöfaldað…Lesa meira

true

Talið fram á netinu

Ríkisskattstjóri opnaði um mánaðamótin fyrir skil á netframtali einstaklinga á www.skattur.is. Almennur skilafrestur er til 13. mars. Hægt er að sækja um frest en framlengdur frestur er til 16. mars. „Ríkisskattstjóri hvetur framteljendur eindregið til að nota rafræn skilríki við framtalsskilin. Rafræn skilríki eru almennt álitin öruggasti auðkenningarmáti sem framteljendum býðst í dag,“ segir í…Lesa meira

true

Logi Geirsson með fyrirlestur

Logi Geirsson heimsótti Grunnskóla Grundarfjarðar nýverið á ferð sinni um Snæfellsnes. Hélt hann fyrirlestur fyrir krakkana í skólanum. Þar ræddi Logi um hvernig hægt er að setja sér markmið og byggja upp sjálfstraust og minnti á mikilvægi þess að byggja upp jákvæða sjálfsmynd. Krakkarnir hlustuðu á Loga af athygli og fengu svo að ræða við…Lesa meira

true

Vestlendingar áberandi í Allir geta dansað

Allir geta dansað er nýr skemmtiþáttur sem hefur göngu sína á Stöð 2 að kvöldi sunnudags, 11. mars næstkomandi, strax að loknum fréttum. Þættirnir eru gerðir eftir fyrirmynd bandarísku þáttanna Dancing with the Stars. Tíu þjóðþekktir einstaklingar eru paraðir við fagfólk í dansi. Eitt par dettur úr keppni í hverjum þætti þar til eitt par…Lesa meira

true

Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkir að taka Teigsskóg inn á aðalskipulag

Til afgreiðslu sveitarstjórnar Reykhólahrepps á fundi síðdegis í dag var að taka afstöðu til breytingar á aðalskipulagi Reykhólahrepps 2006 – 2018 vegna vegagerðar um Vestfjarðarveg 60, hið fræga mál sem flestir tengja við Teigsskóg. Sveitarstjórn þurfti að taka ákvörðun um leiðarval í aðalskipulagstillögu. Samþykkt var með fjórum atkvæðum gegn einu að setja veglínu um Teigsskóg…Lesa meira