Fréttir

true

Heiðra Óðinn G. Þórarinsson með tónleikum á Akranesi 23. mars

„Við tónanna klið,“ er yfirskrift tónleika sem haldnir verða til heiðurs Óðni G. Þórarinssyni, tónskáldi og harmonikkuleikara, í Tónbergi á Akranesi föstudaginn 23. mars næstkomandi. Óðinn á að baki langan og farsælan feril sem tónlistarmaður og tónlistarkennari, bæði á Akranesi og austur á fjörðum. Eru nokkur laga hans löngu orðin landsþekkt. Má þar nefna lög…Lesa meira

true

Í mörg horn að líta hjá Rúnu Björgu þjálfara

Rúna Björg Sigurðardóttir, styrktar- og einkaþjálfari hefur í nógu að snúast þessa dagana. Hún hefur í tæp tvö ár rekið þjálfunarstöðina Metabolic Akranesi og hefur iðkendum þar fjölgað jafnt og þétt á þessum tíma. Þá hefur hún einnig verið styrktarþjálfari fyrir handknattleiksdeild Aftureldingar í Mosfellsbæ í fjögur ár. Síðastliðið haust hóf hún svo nám í…Lesa meira

true

Annir í fiskverkuninni hjá Valafelli

Mikið er nú að gera í fiskvinnslunni hjá Valafelli í Ólafsvík, en vertíðin hófst af krafti í febrúar. Að sögn Kristínar Vigfúsdóttur framkvæmdastjóra er búið að ganga ágætlega og mikið hefur verið að gera. „Það vinna hjá okkur bæði á sjó og í landi 34 manns, allt mjög duglegt og gott fólk. Án þess væri…Lesa meira

true

Lögregla tekur í notkun stafræna hraðamyndavél

Lögreglan á Vesturlandi tók í dag í notkun bifreið sem búin er stafrænni hraðamyndavél til eftirlits með ökuhraða. Bifreiðin verður við hraðamælingar vítt og breitt um umdæmið en sérstök áhersla verður á hraðamælingar á götum við grunn- og leikskóla, segir í tilkynningu frá lögregluembættinu. „Þeir ökumenn sem aka yfir leyfilegum hámarkshraða mega búast við sektum.…Lesa meira

true

Varúð! Rúta í vegkanti

Hópferðabíllinn sem fauk útaf Borgarfjarðarbraut austan við Kvígsstaði í Andakíl fyrir réttum þremur sólarhringum síðan liggur enn í vegkantinum. Ökumenn sem leið hafa átt um þjóðveginn undanfarin kvöld segja stórhættu stafa að þessu enda nær horn rútunnar inn á aðra akreinina og vegurinn er þröngur á þessum stað. Einkum sé akstur þarna varhugaverður í myrkri.…Lesa meira

true

Slitlag vega er víða illa farið eftir veturinn

Víða á þjóðvegum landsins er nú farið að bera á skemmdum á slitlagi eftir erfiða tíð í vetur. Dæmi um það er þjóðvegurinn frá Borgarnesi og áleiðis norður í land. Þar er á nokkrum stöðum og allt upp í Norðurárdal að myndast djúpar og hættulegar holur, einkum í hjólförum. Meðfylgjandi mynd sýnir dæmi um holur…Lesa meira

true

Meirihluti felldi uppsögn kjarasamninga

Í atkvæðagreiðslu á formannafundi ASÍ sem var að ljúka nú rétt í þessu kom fram að meirihluti vill ekki segja upp samningum á vinnumarkaði. Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði munu því gilda til ársloka. Alls greiddu 49 atkvæði en þeir voru með 79.062 félagsmenn (heilsársstörf) á bak við sig. Niðurstaðan úr kosningunni varð sú að 57,1%…Lesa meira

true

Skaginn 3X skýtur rótum í Noregi

Tæknifyrirtækið Skaginn 3X mun opna sérstakt útibú í Noregi í mánudaginn 5. mars næstkomandi. Útibúið verður staðsett í Bodø. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Skaganum. Magni Veturliðason mun sjá um rekstur útibúsins. Hann hefur lengi starfað innan geirans auk þess að hafa verið búsettur í Noregi í yfir þrjátíu ár. „Þó við munum…Lesa meira

true

Vesturlandsslagur í Borgarnesi á morgun

Skallagrímur og Snæfell mætast í Vesturlandsslag í 1. deild karla annað kvöld. Með sigri geta Skallagrímsmenn gulltryggt toppsæti deildarinnar og þar með sæti í Domino‘s deildinni að ári. Snæfellingar hafa tryggt sér fimmta sætið sem gefur keppnisrétt í úrslitakeppni 1. deildarinnar í vor. Þar er leikið um eitt laust sæti í úrvalsdeild og ljóst að…Lesa meira

true

Stjórn og trúnaðarráð VR segir forsendur kjarasamninga brostnar

Fundur stjórnar- og trúnaðarráðs VR sem haldinn var í gærkvöldi lítur svo á að forsendur kjarasamninga séu brostnar og að öllu óbreyttu beri að segja þeim upp. „Augljóst má vera að aðrir launahópar hafa fengið launahækkanir sem eru umfram þær hækkanir sem félagar í VR hafa fengið á viðmiðunartímabili gildandi kjarasamninga. Fundurinn krefst þess að…Lesa meira