Fréttir

true

Skaginn 3X og samstarfsfyrirtæki setja upp verksmiðju á Kúrileyjum

Tæknifyrirtækin Skaginn 3X á Akranesi og Frost ehf. og Rafeyri ehf. á Akureyri hafa undirritað samning um uppsetningu fullkominnar uppsjávarverksmiðju á Kúrileyjum. Verksmiðjan er byggð fyrir dótturfélag rússneska útgerðarfélagsins Gidrostroy. Þar verður mögulegt að flokka, pakka og fyrsta 900 tonn af uppsjávarfiski á hverjum sólarhring. Kurileyjar eru við austurströnd Rússlands, milli Kamtsjatkaskaga og Japans. Á…Lesa meira

true

Söfnuðu fyrir Teigasel

Foreldrafélag leikskólans Teigasels á Akranesi safnaði nýlega um 106 þúsund krónum til leikfangakaupa á leikskólann í tilefni 20 ára afmælis leikskólans á árinu. „Við héldum myndlistarsýningu og vöfflukaffi fyrir foreldra, ömmur og afa á leikskólanum laugardaginn 3. febrúar. Hvert barn var búið að gera fjögur eða fimm listaverk fyrir sýninguna sem aðstandendur barnsins gátu keypt…Lesa meira

true

Þorrablót Neshrepps utan Ennis

Íbúar létu veðrið ekki aftra sér á laugardagskvöldið frá því að halda Þorrablót Neshrepps utan Ennis, sem fram fór í Röstinni á Hellissandi. Það voru Lionsklúbbur Nesþinga, Lionsklúbburinn Þerna og Kvenfélag Hellissands sem stóðu að blótinu. Vel var mætt á blótið en 180 miðar seldust á það. Veislustjóri var hin eina sanna Dóra Unnars og…Lesa meira

true

Leikskólabörn í heimsókn á slökkvistöðinni

Í tilefni 112 dagsins var elsta árgangi í leikskólum Akraness og Hvalfjarðarsveitar boðið í heimsókn á slökkvistöðina á Akranesi í lok síðustu viku. Þar var vel tekið á móti börnunum og Þráinn Ólafsson slökkvisstjóri fræddi þau um hvað skyldi gera ef eldur verður laus. Kennarar barnanna fengu svo að spreyta sig á slökkvitækjunum áður en…Lesa meira

true

Krossgátur Skessuhorns samdar á Nýja Sjálandi

Til marks um það hversu tæknin hefur afmáð ýmis landamæri er gaman að segja frá því að krossgátur sem birtast hér í Skessuhorni í vetur eru gerðar á Nýja Sjálandi. Erla Guðmundsdóttir, sem alla jafnan býr á Akranesi, dvelur í vetur hjá skyldfólki sínu á Nýja Sjálandi og sleikir þar sólina. Erla er fjallbrött, þótt…Lesa meira

true

Héldu 112 daginn á mánudag

112 dagurinn var haldinn hátíðlegur í Búðardal á mánudaginn, en dagskráin var færð til um einn dag vegna óhagstæðrar veðurspár. Að venju hófu björgunaraðilar dagskrána með því að keyra lest björgunarbíla hringinn í kringum Búðardal með viðeigandi sírenuhljóðum og blikkljósum. Að þessu sinni gátu snjósleðar Björgunarsveitarinnar Óskar fylgt með í för en undanfarin ár hefur…Lesa meira

true

Valdís Þóra lék vel í Ástralíu í nótt

Skagakonan Valdís Þóra Jónsdóttir lék vel á fyrsta hring LPGA-mótsins í Ástralíu í nótt. Hún lék á pari vallarins, 72 höggum og er jöfn í 47. sæti. sæti. Stendur hún því vel að vígi fyrir framhaldið, en efstu 70 komast í gegnum niðurskurðinn. Valdís byrjaði vel í mótinu, fékk fugl stra á annarri holu en…Lesa meira

true

Lágt brottfall nemenda í Mennaskóla Borgarfjarðar

Guðrún Björg Aðalsteinsdóttir skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi segir að brottfall nemenda í skólanum sé með því lægsta sem gerist. Það er einungis um 6%, en er 30% á landsvísu. Hún kveðst mjög ánægð með þetta lága hlutfall. „Það getur falist í því nokkur styrkleiki að vera með fámennan skóla því við höfum tækifæri til…Lesa meira

true

Lions færði Krílakoti peningagjöf

Lionsklúbbur Ólafsvíkur afhenti Foreldrafélagi leikskólans Krílakots veglega peningagjöf á dögunum. Það var Tinna Ýr Gunnarsdóttir úr stjórn foreldrafélagsins sem veitti gjöfinni viðtöku. Foreldrafélagið sér m.a. um jólaföndur á leikskólanum, útskrift elstu leikskólabarnanna og vorferð á hverju ári. Ekki er búið að taka ákvörðun um í hvað peningarnir verða notaðir en þeir verða líklega nýttir í…Lesa meira

true

Sauðfjárbúið í Hægindi afurðahæst á Vesturlandi

Alls eru 17 vestlensk sauðfjárbú meðal 100 afurðahæstu á landsvísu, þar sem eitt hundrað ær eða fleiri eru á skýrslum. Þetta kemur fram í niðurstöðum skýrsluhalds í sauðfjárrækt sem Rannsóknarmiðstöð landbúnaðarins heldur utan um. Eyjólfur Ingvi Bjarnason sauðfjárræktarráðunautur útlistar niðurstöðurnar í Bændablaðinu á fimmtudaginn. Samkvæmt samantekt RL er afurðahæsta búið á Vesturlandi bú þeirra Sigvalda…Lesa meira