Fréttir

true

„Stefnum að því að komast inn í úrslitakeppnina“

Ari Gunnarsson tók við þjálfun körfuknattleiksliðs Skallagríms um miðjan janúarmánuð eftir að félagið rifti samningi við Spánverjann Richardo Gonzáles Dávila. Ari er borinn og barnfæddur Reykvíkingur en er öllum hnútum kunnugur í Borgarnesi frá því á leikmannsferli sínum. „Ég spilaði með Skallagrími í 13 ár, frá 1993 til 2005. Allan þann tíma bjó ég í…Lesa meira

true

Vilja veita persónulega þjónustu á jafningagrundvelli

Á Bifröst í Borgarfirði starfrækja hjónin James Einar Becker og Lara Becker hönnunarfyrirtækið Hrafn Art. Um er að ræða nýtt fyrirtæki sem varð til eftir að hjónin fóru að taka að sér lítil hönnunarverkefni á síðasta ári. „Fyrirtækið er nýstofnað, við vorum til dæmis bara að setja í loftið heimasíðu fyrir þremur vikum síðan. Undanfarið…Lesa meira

true

Rannsaka mannslát á Kvíabryggju

Lögreglan á Vesturlandi fer með rannsókn á mannsláti í fangelsinu á Kvíabryggju við Grundarfjörð í gær. Greint var fyrst frá málinu á vef Fréttablaðsins en þar var því haldið fram að fanginn hafi svipt sig lífi.Lesa meira

true

Búin að setja upp verslun í Öldunni í Brákarey

Í Brákarey í Borgarnesi rekur sveitarfélagið Borgarbyggð vinnustaðinn Ölduna. Auk móttöku á drykkjarumbúðum er þar rekin iðja þar sem unnið er að ýmissi framleiðslu alla virka daga. Nú hefur verið sett upp lítil verslun í Öldunni þar sem fólk getur komið við frá klukkan 9-15 og keypt fallega muni. Blaðamaður Skessuhorns leit nýverið við í…Lesa meira

true

Rafmagnsbilun í uppsveitum

Í tilkynningu frá Rarik kemur fram að rafmagnsbilun er nú í Hvítársíðu í Borgarfirði, allt frá Deildartungu í Reykholtsdal að Húsafelli. Bilanaleit stendur yfir, en ef einhverjir hafa upplýsingar sem gætu hjálpað við bilanaleit eru þeir beðnir að hafa samband við svæðisvakt Rarik á Vesturlandi í síma 528-9390.Lesa meira

true

Búið er aflétta lokun á Kjalarnesi

Umferð hefur nú að nýju verið hleypt á Kjalarnes þar sem lokað var í morgun. Brattabrekka og Fróðárheiði eru enn lokaðar. Þá hefur einnig verið lokað fyrir umferð yfir Holtavörðuheiði. Á vegum á Vesturlandi og Vestfjörðum er nú snjóþekja, hálka eða þæfingsfærð. Þungfært er frá Brjánslæk og í Reykhóla en ófært á Klettshálsi.Lesa meira

true

Ásbyrgi flutt í stærra húsnæði í Stykkishólmi

Opið hús var hjá vinnu- og hæfingarstaðnum Ásbyrgi í Stykkishólmi í síðustu viku í tilefni flutnings í nýtt húsnæði, Langa-Skúr, þar sem Bókasafnið var til húsa fram undir þetta. Starfsmenn og sjálfboðaliðar tóku á móti gestum og sýndu húsnæðið sem er stærra og mun rúmbetra en á fyrri stað. Langi-Skúr býður upp á gjörbreytt vinnuumhverfi,…Lesa meira

true

Lokað um Kjalarnes, Bröttubrekku og Fróðárheiði

Lokað hefur verið fyrir umferð um Kjalarnes síðan árla morguns. Þá eru Brattabrekka og Fróðárheiði einnig lokaðar. Á vefsíðu Vegagerðarinnar segir enn fremur að miklar líkur séu á því að loka þurfi vegum á Snæfellsnesi, Vestfjörðum, Norðurlandi og um Mosfellsheiði í dag vegna óveðurs. Gul viðvörun hefur verið gefin út af Veðurstofu Íslands og nær…Lesa meira

true

Margar íbúðir í byggingu á Akranesi og frekari uppbygging framundan

Nýverið voru auglýstar til umsóknar tólf fjölbýlishúsalóðir og átta par- og raðhúsalóðir í Skógarhverfi 1 og 2 á Akranesi, til byggingar á samtals 178 íbúðum. Alls bárust 44 umsóknir sem náðu til sex rað- og parhúsalóða og átta fjölbýlishúsalóða. Þar að auki eru rúmlega 200 íbúðir í byggingu á Akranesi nú þegar og 130 íbúðir…Lesa meira

true

Starfsmannabúðir gætu risið tímabundið á Akranesi

Auglýst hefur verið breyting á deiliskipulagi Flóahverfis á Akranesi. Í breytingunni felst meðal annars að veitt verður tímabundin heimild til að reisa starfsmannabúðir á fimm lóðum. Er með henni komið til móts við óskir verktakafyrirtækis sem vill reisa þar slíkar búðir. Flóahverfi er skilgreint sem athafnasvæði og ekki heimild fyrir starfsmannabúðum þar í gildandi skipulagi.…Lesa meira