Fréttir

true

Níutíu ár frá upphafi björgunarsveitastarfs

Í dag eru níutíu ár frá stofnun Slysavarnafélags Íslands, en stofnun þess markaði upphaf skipulagðs björgunar- og slysavarnastarfs á Íslandi. Í tilefni tímamótanna fagna félagar í Slysavarnafélaginu Landsbjörg tímamótunum víða um land. Klukkan 20:00 verður afmælisveisla í húsnæði allra björgunarsveita og slysavarnadeilda hringinn í kringum landið, sem endar á því að skotið verður upp hvítri…Lesa meira

true

Sautján komur skemmtiferðaskipa bókaðar á Akranes

Að sögn Gísla Gíslasonar hafnarstjóra Faxaflóahafna eru alls sautján komur skemmtiferðaskipa bókaðar á Akranes næsta sumar. LaBoreal sem kom í fyrra eina ferð á Akranes hefur boðað komu sína að nýju 9. ágúst í sumar. Þá hefur útgerð skemmtiferðaskipsins M/S Panorama bókað 16 komur til á Akraness næsta sumar, frá 11. júní til 27. september.…Lesa meira

true

Tjaldurinn mættur á Borgarvoginn

Það er alltaf fagnaðarefni þegar hinn vinalegi vaðfugl tjaldurinn mætir eftir vetursetu á fjarlægum slóðum. Flestir tjaldar eru farfuglar en þó er talið að um þrjú þúsund fuglar hafi hér vetursetu. Tjaldurinn er nú kominn á Borgarvoginn norðan við Borgarnes en meðfylgjandi mynd tók Þorleifur Geirsson af stórum hópi sem tyllt hafði sér niður í…Lesa meira

true

Sorptimistar þakka góðar viðtökur við pönnukökusölu

Soroptimistaklúbbur Akraness vill koma á framfæri þökkum til allra þeirra fjölmörgu fyrirtækja sem studdu félagið í starfi sínu með því að kaupa pönnukökur í tilefni Bóndadagsins 19. janúar síðastliðinn. Á Íslandi eru 19 soroptimistaklúbbar. „Klúbburinn á Akranesi var stofnaður 1983 og í dag eru klúbbfélagar 40. Klúbburinn hefur styrkt ýmis góð málefni bæði í heimabyggð…Lesa meira

true

Fiskmarkaður var opnaður að nýju á Akranesi í morgun

Í morgun var fiskmarkaður opnaður á ný á Akranesi. Markaðurinn verður rekinn í samstarfi við Fiskmarkað Snæfellsbæjar og verður til húsa á Faxabraut 5 í húsnæði sem Faxaflóahafnir eiga. Fyrsti aflinn verður boðinn upp klukkan 13 í dag, en það er fiskur af Eskey ÓF 80 sem gerir nú út frá Akranesi á vorvertíðinni. Í…Lesa meira

true

Óupplýst innbrot í Grundaskóla um jólin

Enn er óupplýst innbrot í Grundaskóla á Akranesi aðfararnótt aðfangadags jóla. Að sögn Sigurðar Arnars Sigurðssonar skólstjóra var málið tilkynnt lögreglu á jóladag, strax og ljóst var að brotist hafði verið inn. Það sem vekur hins vegar furðu og ugg er að innbrotsþjófurinn eða -þjófar höfðu lykil að húsnæði skólans því hvergi sá á hurðum…Lesa meira

true

ÍA fékk skell á móti FSu

ÍA mátti sætta sig við stórt tap gegn FSu, 96-57, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Skagamenn léku án Marcusar Dewberry, sem þurfti að snúa heim til Bandaríkjanna af persónulegum ástæðum á dögunum. Heimamenn í FSu höfðu undirtökin frá fyrstu mínútu. Þeir leiddu með átta stigum eftir fyrsta leikhluta, 22-14…Lesa meira

true

Fólk telji fuglana í garðinum um helgina

Árleg garðfuglahelgi Fuglaverndar verður dagana 26. -29. janúar. „Framkvæmd athugunarinnar er einföld. Það eina sem þátttakandi þarf að gera er að fylgjast með garði í einn klukkutíma einhvern þessara daga. Athugendur velja hvaða dag þeir fylgjast með garðfuglunum eftir veðri og aðstæðum. Þátttakendur skrá hjá sér hvaða fuglar koma í garðinn og þá er miðað…Lesa meira

true

Íslenskt lambakjöt í öndvegi á matseðlum N1 um allt land

Í morgun var skrifað undir tímamóta samstarfssamning í söluskála N1 í Borgarnesi milli markaðsstofu Icalandic Lamb og N1. Í samningnum var innsiglað samstarf um vöruþróun og sameiginlegar markaðsaðgerðir til að auka sölu lambakjöts á veitingastöðum N1 um allt land sem reknir eru í nafni Nestis. Í upphafi verður sérstök áhersla lögð á að kynna íslenska…Lesa meira

true

Auglýst eftir sóknarpresti á Snæfellsnes

Biskup Íslands hefur auglýst laust til umsóknar starf sóknarprests í Staðastaðarprestakalli á Snæfellsnesi. Skipað verður í embættið 1. mars næstkomandi til fimm ára. Umsóknarfrestur um embættið er til 19. febrúar nk. Prestakallið nær allt frá Hellnum að Staðarhrauni og telur sex sóknir; Kolbeinsstaða,- Fáskrúðarbakka,- Staðarhrauns,- Staðastaðar,- Búða- og Hellnasóknir. Staðastaðarprestakall er á samstarfssvæði með Ólafsvíkur-…Lesa meira