Fréttir

true

Fjöldi vestlenskra fyrirtækja á Mannamóti

Markaðsstofur landshlutanna stóðu í gær fyrir fjölmennri samkomu í flugskýli Ernis á Reykjavíkurflugvelli. Þar mættu á þriðja hundrað fulltrúar ferðaþjónustufyrirtækja og kynntu fyrir starfsfólki hótela í Reykjavík og ferðaskrifstofufólki það sem þau bjóða. Frá Vesturlandi voru um 40 fyrirtæki sem kynntu starfsemi sína og var uppselt í Vesturlands pláss á sýningunni. Margt var um manninn…Lesa meira

true

Skallagrímur styrkti stöðu sína á toppnum

Skallagrímur vann góðan sigur á Breiðabliki í toppslag 1. deildar karla í körfuknattleik. Leikið var í Borgarnesi í gærkvöldi. Eftir góða byrjun gestanna tóku Skallagrímsmenn öll völd á vellinum og sigruðu með 99 stigum gegn 84. Blikar voru öflugir í upphafi og leiddu 10-16 þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður. Skallagrímsmenn komu sér upp að hlið…Lesa meira

true

Eftirspurn meiri eftir ódýrari sumarhúsum

Sumarbústaðir á Íslandi voru rúmlega 13 þúsund í lok ársins 2016. Rúmlega helmingur sumarhúsa á landinu var á Suðurlandi í árslok 2016 og um fjórðungur á Vesturlandi. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Landsbankans. Á þremur stærstu svæðunum var fjölgun sumarhúsa á tuttugu árum, frá 1997-2016, hlutfallslega mest á Vesturlandi, Reykjanesi og höfuðborgarsvæðinu, þar sem…Lesa meira

true

Borgfirðingar búnir að sameina hestamannafélögin Skugga og Faxa

Síðastliðinn þriðjudag var formlega gengið frá sameiningu hestamannafélaganna Faxa og Skugga. Þá um kvöldið var haldinn sameiginlegur framhaldsaðalfundur beggja félaganna þar sem ný lög voru samþykkt og kosið í stjórn og nefndir nýs félags. Félagið hefur enn ekki hlotið nafn en félagsmenn munu í rafrænni kosningu kjósa milli fimm nafna sem valin voru úr innsendum…Lesa meira

true

Allt betra en liggja heima bryðjandi pillur

Árið 2014 fór Hermann Jóhannsson í Borgarnesi að kenna verkja í hnjáliðum. Hann var þá kominn yfir sjötugt en að öðru leyti við góða heilsu og stundaði vinnu við akstur. Hermann starfaði lengst af sínum starfsaldri við akstur sjúkrabíla og húsvörslu í Heilsugæslustöðinni í Borgarnesi. Hann segir sjálfur að slit í hnjáliðum sé líklegur fylgifiskur…Lesa meira

true

Unnið að opnun veitingastaðarins Skers í Ólafsvík

Nú eru í gangi framkvæmdir fyrir opnun nýs veitingastaðar í Ólafsvík í gamla húsnæði Sparisjóðs Ólafsvíkur. Veitingastaðurinn mun fá nafnið Sker. Skessuhorn hafði samband við Arnar Laxdal sem er einn af eigendum veitingastaðarins ásamt fjölskyldu sinni. „Þessa dagana erum við að hreinsa út og svo tekur uppbyggingin við, en við stefnum á að opna í…Lesa meira

true

Boðað til fundar um samgöngumál á Vesturlandi

Samgöngumál á Vesturlandi verða til umræðu á opnum fundi sem haldinn verður í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi, miðvikudaginn 24. janúar næstkomandi. Á fundinum taka meðal annars til máls fulltrúar sveitarfélaga á Vesturlandi og samgönguráðherra. Samgöngumál brenna mjög á íbúum landshlutans og af þeim sökum beitti Ólafur Adolfsson formaður bæjarráðs Akraneskaupstaðar sér fyrir því að…Lesa meira

true

Níutíu ár frá stofnun Slysavarnafélags Íslands

Mánudaginn 29. janúar næstkomandi verður Slysavarnafélagið Landsbjörg 90 ára. Þann dag verða 90 ár liðin frá stofnun Slysavarnafélags Íslands en stofnun þess markaði upphaf skipulagðs björgunar- og slysavarnastarfs hér á landi. Verður þessum áfanga fagnað með margvíslegum hætti á afmælisárinu. Að kvöldi sjálfs afmælisdagsins er fyrirhugað að haldin verði veisla hjá öllum einingum félagsins og…Lesa meira

true

Steinþór Árnason er nýr eigandi Lesbókarinnar

Steinþór Árnason er nýr eigandi Lesbókarinnar Café við Akratorg á Akranesi. Keypti hann rekstur kaffihússins af Christel Björgu Rúdólfsdóttur Clothier og Guðleifi Rafni Einarssyni, sem opnuðu Lesbókina í janúarbyrjun á síðasta ári. „Ég skrifaði undir í gær,“ segir Steinþór í samtali við Skessuhorn á fimmtudaginn. Hann kveðst ekki ætla að gera stórtækar breytingar á rekstrinum.…Lesa meira

true

Lagt til að þangskurður verði að hámarki 40 þúsund tonn

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið kynnir um þessar mundir endurskoðaða reglugerð um öflun sjávargróðurs í atvinnuskyni sem Kristján Þór Júlíusson ráðherra undirritaði 8. janúar síðastliðinn og stefnt er að birtingu á í Stjórnartíðindum fyrir mánaðamótin næstu. Auk þess kynnir ráðuneytið ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um töku þangs úr Breiðafirði til næstu fimm ára. Ráðherra hefur valdheimild til að takmarka…Lesa meira