
Hálka, snjóþekja og skafrenningur er víða á vegum á Vesturlandi, samkvæmt samantekt starfsmanna Vegagerðarinnar frá því í morgun. Veður fer versnandi í dag. Hríðarbakki með hvössum norðvestanvindi fer yfir Vestfirði og verður hvað verst þar nærri hádegi með skafrenningi, snjókomu og litlu skyggni. Á sunnanverðum Vestfjörðum og á Snæfellsnesi verður einnig slæmt veður um stund. …Lesa meira








