Fréttir

true

Hvasst um tíma síðdegis – lítið eitt dregið úr óveðursspá

Nú er hálka og hálkublettir á flestöllum vegum á Vesturlandi. Víða inni í byggð, þar sem ekki er saltað til hálkueyðingar, er bent á að glærahálka er víða. Í nýjustu veðurspám er lítið eitt dregið úr mestu veðurhæð suðvestanlands eins og spár höfðu gert ráð fyrir síðustu daga. Engu að síður er spáð stormi með…Lesa meira

true

Færði Umf. Íslendingi góða gjöf

Ungmennafélaginu Íslendingi í Borgarfirði barst nýverið góð gjöf. Ásdís B Geirdal á Hvanneyri kom þá færandi hendi og gaf félaginu 150 þúsund krónur. Peningurinn kemur til vegna sölu bóka á bókaloftinu sem Ásdís hefur staðið fyrir. „Færum við Ásdísi kærar þakkir fyrir dýrmæta gjöf sem nýtist alfarið í barna- og unglingastarf félagsins. Við hvetjum alla…Lesa meira

true

Keppa í Útsvari á föstudaginn

Lið Akraness mætir Dalvíkurbyggð í Útsvari, spurningakeppni sveitarfélaganna á RUV, næstkomandi föstudagskvöld, 12. janúar. Akurnesingar komust áfram í aðra umferð eftir að hafa lagt lið Snæfellsbæjar með 74 stigum gegn 31 snemma í haust, en Dalvíkingar sigrðuðu lið Skeiða- og Gnúpverjahrepps 57-50 í fyrri umferð keppninnar. Á meðfygljandi mynd er lið Akurnesinga, en það skipa…Lesa meira

true

Félagið Átthagastofa Snæfellsbæjar leyst upp og eignir þess gefnar

Síðastliðinn laugardag urðu þáttaskil í starfsemi Átthagastofu Snæfellsbæjar í Ólafsvík þegar ákveðið var að breyta starfsemi félagsins sem stóð fyrir stofnun Átthagastofunnar. Við þessi tímamót var ákveðið að afhenda sex milljónir króna til verkefna á Snæfellsnesi sem byggja á sömu hugsjón og Átthagastofan var stofnuð til. Auk þess var Snæfellsbæ gefin öll tæki og búnaður…Lesa meira

true

Sílóin rifin með vélum

Sem kunnugt er hefur ekki borið árangur að sprengja niður leðjusíló Sementsverksmiðjunnar sálugu á Akranesi, þrátt fyrir tvær tilraunir. Því hefur verið brugðið á það ráð að reyna að rífa þau með vélum. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd, sem tekin er laust eftir hádegi í dag, er langt komið með rif á einu…Lesa meira

true

Tekur sæti í alþjóðlegri nefnd sem auka á vægi kvenna í akstursíþróttum

Rétt fyrir jólin var tilkynnt af Akstursíþróttasambandi Íslands, AKÍS, að tveir Íslendingar hefðu verið skipaðir í nefndir á vegum Alþjóðasamtaka akstursíþróttamanna. Er þetta í fyrsta sinn sem Íslendingar taka sæti í slíkri nefnd og er annar þeirra Guðný Jóna Guðmarsdóttir sem búsett er í Borgarnesi. Hún fékk sæti í nefndinni FIA Women in Motorsport Commission,…Lesa meira

true

Gagnrýnir samninga um ferjusiglingar

Haraldur Benediktsson, fyrsti þingmaður Norðvesturkjördæmis og varaformaður fjárlaganefndar Alþingis, gagnrýnir þá stöðu sem sífellt er að koma upp og rekja má til skerts rekstraröryggis í ferjusiglingum hér við land. Telur hann gæðamálum rekstraraðila ferjanna vera ábótavant. Gagnrýni sína setti hann fram í pistli sem hann ritar á Facebook síðu sína. Varðandi stöðu ferjusiglinga skrifar Haraldur…Lesa meira

true

Staða framkvæmdastjóra Markaðsstofu Vesturland er laus

Í Skessuhorni í dag er auglýst laus til umsóknar staða framkvæmdastjóra Markaðsstofu Vesturlands. Kristján Guðmundsson, sem gegnt hefur starfinu undanfarin ár stefnir nú að nýjum verkefnum og hefur sagt starfi sínu lausu. „Ég fékk spennandi tilboð um annað starf í Húsafelli og ákvað að þetta væri kjörið tækifæri til að breyta til. Ég verð hér…Lesa meira

true

Halda minningu Arnars Dórs á lofti

Á fimmtudaginn hófst formlega söfnun í minningarsjóð Skagamannsins Arnars Dórs Hlynssonar, sem lést langt fyrir aldur fram 14. september síðastliðinn. Það var Þórður Már Gylfason hjá fyrirtækinu Sansa sem hratt söfnuninni af stað, en sjóðurinn er stofnaður af Sansa, árgangi 1979 á Akranesi og Íþróttabandalagi Akraness. Mun Sansa láta 750 krónur af hverjum matarpakka sem…Lesa meira

true

Vetrarþjónusta aukin á þjóðvegum landsins

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Vegagerðin hafa ákveðið að auka vetrarþjónustu og hálkuvarnir á ákveðnum köflum á þjóðvegum landsins. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar. Markmiðið er að bæta umferðaröryggi og er þarna verið að bregðast við kröfu atvinnulífsins en ekki síst ferðaþjónustunnar sem er að fá til sín gesti allt árið. Undanfarið hafa…Lesa meira