Fréttir

true

Fjölmörg hraðakstursbrot innanbæjar sem utan

Lögreglan segir hraðakstur hafa verið mjög áberandi undanfarnar vikur á landinu öllu. Lögreglan á Vesturlandi hefur umsjón með úrvinnslu hraðakstursmála sem koma inn í gegnum hraðamyndavélar um allt land og heldur talningu yfir þau mál. Frá 1.-19. maí höfðu 1996 hraðakstrar verið myndaðir í myndavélum um allt land, en sú tala tekur einnig til myndavélabíla…Lesa meira

true

Líflegur fasteignamarkaður í apríl

Á Vesturlandi var 48 samningum um fasteignir þinglýst í apríl. Þar af voru 12 samningar um eignir í fjölbýli, 22 samningar um eignir í sérbýli og 14 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 1.623 milljónir króna í þessum viðskiptum og meðalupphæð á samning 33,8 milljónir króna. Af þessum 48 voru 20 samningar um eignir…Lesa meira

true

Bjarki Steinn semur við ÍA til þriggja ára

Knattspyrnumaðurinn Bjarki Steinn Bjarkason hefur skrifað undir þriggja ára samning við ÍA. Bjarki er fæddur árið 2000 og alinn upp hjá Aftureldingu í Mosfellsbæ, en hefur leikið með liði Skagamanna frá því á síðasta ári. Hann hefur farið vel af stað með ÍA nú í vor, leikið alla sex leiki liðsins í deild og bikar…Lesa meira

true

Lionsklúbbur Akraness styrkir björgunarfélagið

Lionsklúbbur Akranes ákvað að styrkja starfsemi Björgunarfélag Akraness um 200.000 krónur; „vegna þeirra mikilvægu starfa sem félagið innir af hendi fyrir samfélagið okkar,“ segir gjafabréfinu sem fulltrúar Lionsklúbbs Akraness afhentu Kjartani Kjartanssyni, galdkera Björgunarfélags Akraness, á þriðjudaginn í síðustu viku. „Björgunarfélagið vinnur óeigingjarnt starf fyrir samfélagið og það er mikilvægt að styðja við starfsemi þess,“…Lesa meira

true

Fimmtíu ára fermingarbarnafmæli

Fimmtíu ár eru nú liðin frá því dágóður hópur barna sem gekk í skóla á Kleppjárnsreykjum fermdist í Hvanneyrar- og Reykholtsprestaköllum árið 1969. Hluti hópsins kom saman í messu í Reykholtskirkju síðastliðinn sunnudag. Vegna tímamótanna var fólki hóað saman ásamt kennurum við Kleppjárnsreykjaskóla sem kenndu fermingarbarnaárganginum. Byrjað var í dragbít í kaffihúsinu Heimskringlunni, sem er…Lesa meira

true

Sagan verður ekki flutt milli byggðarlaga

Á aðalfundi Félags Snæfellinga og Hnappdæla sem haldinn var 22. maí síðastliðinn var samþykkt ályktun þar sem lýst er áhyggjum yfir þeirri þróun á Snæfellsnesi, að fyrrum Kolbeinsstaðahreppur og Skógstrandarhreppur teljist ekki lengur í reynd til héraðsins Snæfellsness. „Þessu veldur sameining þessara hreppa við Borgarbyggð og Dalabyggð. Landfræðilega, sögulega og menningarlega hafa þessir hreppar öldum…Lesa meira

true

Verslunin FOK er nú flutt í Hyrnutorg

Gjafavöruverslunin FOK í Borgarnesi hefur nú fært sig um set. Eigendur hennar, þau María Júlía Jónsdóttir og Jónas Björgvin Ólafsson, leituðu þó ekki langt yfir skammt og hafa fært verslunina yfir Borgarbrautina og eru nú búin að koma sér fyrir í Hyrnutorgi þar sem Handavinnubúðin var síðast til húsa, gegnt Vínbúðinni. Verslunin var opnuð í…Lesa meira

true

Svanir í söngferðalag til Hollands

Karlakórinn Svanir á Akranesi er nýlega kominn úr söngferðalagi til Hollands. Í Skessuhorni vikunnar má sjá ferðalýsingu Júlíusar Más Þórarinssonar sem myndskreytt er með ljósmyndum Guðna Hannessonar.  Lesa meira

true

Myndskreytt frásögn af Danmerkurferð sveitarstjórnarfólks

Um nokkurt skeið hefur það tíðkast að sveitarstjórnarfólk á Vesturlandi fari í fræðsluferðir einu sinni á kjörtímabili til að kynna sér málefni sveitarfélaga og byggðaþróunaraðgerðir hjá nágrannaþjóðum. Í tvígang hefur verið farið til Noregs og einu sinni til Skotlands.  Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) hafa séð um skipulag og undirbúning ferðanna. Að þessu sinni var…Lesa meira

true

Hafragrautaruppáhellarinn vann Nýsköpunarkeppni grunnskóla

Úrslit í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna 2019 voru kynnt í gær og verðlaun afhent með viðhöfn í Háskólanum í Reykjavík. Guðni Jóhannesson forseti Íslands og Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra ávörpuðu hugvitsfólkið og afhentu verðlaun í ýmsum flokkum. Þær Anna Valgerður Árnadóttir og Oliwia Huba frá Brekkubæjarskóla á Akranesi báru sigur úr býtum í keppninni fyrir hugmynd sína að…Lesa meira