
Ólögleg fíkniefni fundust inni á klósetti tjaldsvæðisins við Kalmansvík á Akranesi í vikunni sem leið. Við eftirgrennslan lögreglu kom í ljós að um marijúana var að ræða. Ekki er vitað hver skildi efnið eftir þar sem það fannst. Lesa meira

Ólögleg fíkniefni fundust inni á klósetti tjaldsvæðisins við Kalmansvík á Akranesi í vikunni sem leið. Við eftirgrennslan lögreglu kom í ljós að um marijúana var að ræða. Ekki er vitað hver skildi efnið eftir þar sem það fannst. Lesa meira

Helga Guðjónsdóttir í Ólafsvík hefur verið ráðin til starfa hjá Samstökum sveitarfélaga á Vesturlandi í tímabundið starf í fjarveru Margrétar Bjarkar Björnsdóttur sem er farin í ársleyfi meðan hún stýrir Markaðsstofu Vesturlands. Helga mun sinna verkefnum hjá atvinnuráðgjöf SSV. Frá þessu er greint á síðu samtakanna.Lesa meira

Það var mikið um að vera í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði kennsluvikuna 6. til 10. maí. Undanfarnar annir hefur síðasta fasta kennsluvika verið verkefnavika þar sem nemendur vinna lokaverkefni, ýmist einstaklings eða samvinnuverkefni þar sem reynir á þá þekkingu, leikni og hæfni sem þeir hafa öðlast í náminu. Um allan skólann mátti sjá vinnandi hendur…Lesa meira

Skagakonur eru komnar áfram í Mjólkurbikar kvenna í knattspyrnu eftir 0-1 sigur á FH í gærkvöldi. Leikið var á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði. Um hörkuleik var að ræða þar sem bæði lið sýndu mikla baráttu og fengu ágætis marktækifæri. Hvorugu liðinu tókst þó að skora í fyrri hálfleik og staðan því markalaus þegar liðin gengu til…Lesa meira

Allar líkur eru á að íslenska ríkið þurfi að greiða fimm sveitarfélögum samtals 683 milljónir króna eftir að Hæstiréttur Íslands kvað upp dóm í máli Grímsness- og Grafningshrepps gegn ríkinu í gær, þriðjudaginn 14. maí. Ríkinu er gert að greiða hreppnum 234 milljónir, auk vaxta. Málið snýst um greiðslur úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, ekki síst vegna…Lesa meira

Vorið 2017 keyptu hjónin Edit Ómarsdóttir og Davíð Reynir Steingrímsson einbýlishús við Furugrund á Akranesi. Húsið var allt upprunalegt með rafmagnskyndingu, upprunalegum innréttingum, gólfefnum og veggjum sem höfðu aðeins einu sinni verið málaðir. Þá voru allar leiðslur og lagnir upprunalegar og komnar á tíma. Þau Edit og Davíð gerðu húsið upp og fluttu inn í…Lesa meira

Lögreglu var tilkynnt um eignaspjöll á Hnausavita við norðanvert Kirkjufell í vikunni sem leið þegar kom í ljós að rúður höfðu verið brotnar. Vitinn er einnig kallaður Grundarfjarðarviti og var byggður árið 1945. Að sögn lögreglu var birt tilkynning um spjöllin á Facebook-síðu Grundarfjarðarbæjar. Þar var óskað eftir upplýsingum almennings um hugsanlegar mannaferðir við vitann.…Lesa meira

Það er ekki ofsögum sagt að tilkoma Ferguson dráttarvélarinnar hingað til lands hafi öðru fremur átt stóran þátt í þeim miklu breytingum og framförum sem urðu í íslenskum landbúnaði um og upp úr 1950. Að öðrum dráttarvélategundum ólöstuðum. Í tilefni þess að nú eru 70 ár síðan fyrstu Ferguson dráttarvélarnar voru kynntar og sýndar á…Lesa meira

Farið var inn í beltagröfu í malarnámunni við Hólabrú á Vesturlandsvegi í síðustu viku og þaðan stolið þrívíddar GPS búnaði. Lögreglu var tilkynnt um málið 8. maí. Að sögn lögreglu er um mjög dýran og sérhæfðan búnað að ræða. GPS loftnetin voru tekin, tækið sjálft og svo skjár innan úr vélinni. Engin sjáanleg merki um…Lesa meira

Kylfingurinn Bjarki Pétursson úr Borgarnesi sem leikur fyrir Kent State háskólann í Ohio fylki í Bandaríkjunum var á dögunum valinn í úrvalslið Mið-Ameríku deildarinnar eftir líðandi tímabil í háskólagolfinu. Það eru þjálfarar þeirra níu skóla sem leika í deildinni sem velja í úrvalsliðið og því er góð viðurkenning fyrir Bjarka að komast í liðið en…Lesa meira