Fréttir

true

Búið að upplýsa rúðubrot í vita

Lögreglu var tilkynnt um eignaspjöll á Hnausavita við norðanvert Kirkjufell í vikunni sem leið þegar kom í ljós að rúður höfðu verið brotnar. Vitinn er einnig kallaður Grundarfjarðarviti og var byggður árið 1945. Að sögn lögreglu var birt tilkynning um spjöllin á Facebook-síðu Grundarfjarðarbæjar. Þar var óskað eftir upplýsingum almennings um hugsanlegar mannaferðir við vitann.…Lesa meira

true

Afmælishátíð vegna sjötíu ára sögu Ferguson á Íslandi

Það er ekki ofsögum sagt að tilkoma Ferguson dráttarvélarinnar hingað til lands hafi öðru fremur átt stóran þátt í þeim miklu breytingum og framförum sem urðu í íslenskum landbúnaði um og upp úr 1950. Að öðrum dráttarvélategundum ólöstuðum. Í tilefni þess að nú eru 70 ár síðan fyrstu Ferguson dráttarvélarnar voru kynntar og sýndar á…Lesa meira

true

Brotist inn í beltagröfu

Farið var inn í beltagröfu í malarnámunni við Hólabrú á Vesturlandsvegi í síðustu viku og þaðan stolið þrívíddar GPS búnaði. Lögreglu var tilkynnt um málið 8. maí. Að sögn lögreglu er um mjög dýran og sérhæfðan búnað að ræða. GPS loftnetin voru tekin, tækið sjálft og svo skjár innan úr vélinni. Engin sjáanleg merki um…Lesa meira

true

Bjarki í úrvalslið Mið-Ameríku deildar

Kylfingurinn Bjarki Pétursson úr Borgarnesi sem leikur fyrir Kent State háskólann í Ohio fylki í Bandaríkjunum var á dögunum valinn í úrvalslið Mið-Ameríku deildarinnar eftir líðandi tímabil í háskólagolfinu. Það eru þjálfarar þeirra níu skóla sem leika í deildinni sem velja í úrvalsliðið og því er góð viðurkenning fyrir Bjarka að komast í liðið en…Lesa meira

true

Skaginn 3X selur Vísi vinnslubúnað í nýjan Pál Jónsson

Skaginn 3X mun setja upp vinnslubúnað fyrir sjávarútvegsfyrirtækið Vísi í línuskipið Pál Jónsson GK, sem er í smíðum og verður væntanlega tilbúið til afhendingar í haust. Samningur þar að lútandi var undirritaður milli fyrirtækjanna á sjávarútvegssýningunni í Brussel í síðustu viku. Samningurinn hleypur á tugum milljóna íslenskra króna, segir í tilkynningu. „Fyrirtækin hafa átt farsælt…Lesa meira

true

Opinn fundur um mengunareftirlit og umhverfisvöktun

Umhverfisstofnun hefur boðað til opins kynningarfundar um mengunareftirlit og umhverfisvöktun á Grundartanga í samræmi við ákvæði starfsleyfa Norðuráls, Elkem Ísland og Als álvinnslu. Fundurinn fer fram í dag á Hótel Glym og hefst klukkan 15:30. Þar verður m.a. farið yfir niðurstöður Umhverfisvöktunar á Grundartanga 2018.Lesa meira

true

Heimagistingarvakt hefur skilað miklum árangri

Að frumkvæði Þórdísar Kolbrúnar R Gylfadóttur ferðamálaráðherra var eftirlit sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu með heimagistingu stóraukið í fyrra með átaksverkefninu Heimagistingarvakt. „Árangurinn var ótvíræður: Tíðni nýskráninga í heimagistingu fimmfaldaðist í kjölfar átaksins, skráðum eignum fjölgaði um nær 100% á milli ára og áætlað er að óskráðum og leyfislausum gististöðum hafi fækkað um meira en 30%. Engu…Lesa meira

true

Nýtt byggingarleyfi gefið út fyrir legsteinaskála

Sveitarstjórn Borgarbyggðar staðfesti á fundi sínum í liðinni viku bókun umhverfis,- skipulags- og landbúnaðarnefndar og samþykkti að byggingarfulltrúa verði falið að afgreiða byggingarleyfisumsókn um legsteinaskála í Húsafelli í samræmi við fyrirliggjandi gögn. Í byrjun desember á síðasta ári kvað úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála upp úrskurð í kærumálum sem snertu deiliskipulag fyrir Húsafell II og veitingu…Lesa meira

true

Bjarni Guðmann í bandaríska háskólaboltann

Ungi framherjinn úr Skallagrími, Bjarni Guðmann Jónsson, mun leika í bandaríska háskólaboltanum á næsta tímabili og segir því skilið við uppeldisfélagið sitt í bili að minnsta kosti. Hann mun hefja háskólanám við Fort Hays State University í Kansas og leika þar með liðinu í NCAA II deildinni. Bjarni reyndist Skallagrímsmönnum gífurlega mikilvægur í Domino’s deildinni…Lesa meira

true

Þungunarfrumvarp samþykkt sem lög

Frumvarp ríkisstjórnarinnar um þungunarrof var samþykkt á Alþingi í gærkvöldi. Hlaut það stuðning 40 þingmanna, gegn atkvæðum 18, þrír greiddu ekki atkvæði og fjórir voru fjarverandi við atkvæðagreiðsluna. Athygli vakti að þingmenn Sjálfstæðisflokksins klofnuðu í afstöðu sinni til frumvarpsins og greiddi m.a. Bjarni Benediktsson formaður flokksins atkvæði gegn því. Aðrir stjórnarflokkar greiddu atkvæði með frumvarpinu.…Lesa meira