
Jóhannes Sigurbjörnsson frá Vogalæk á Mýrum fagnar 80 ára afmæli. “Afmælisboð verður í Brákahlíð í Borgarnesi frá klukkan 16-18 á afmælisdeginum hans fimmtudaginn 9. maí.” -fréttatilkynningLesa meira

Jóhannes Sigurbjörnsson frá Vogalæk á Mýrum fagnar 80 ára afmæli. “Afmælisboð verður í Brákahlíð í Borgarnesi frá klukkan 16-18 á afmælisdeginum hans fimmtudaginn 9. maí.” -fréttatilkynningLesa meira

Lestrarklefinn hlaut á sunnudaginn Vorvinda, viðurkenningu frá IBBY á Íslandi fyrir framlag sitt í þágu barnamenningar á Íslandi. Viðurkenninguna hefur IBBY á Íslandi veitt einstaklingum og stofnunum frá árinu 1987. Katrín Lilja Jónsdóttir, ritstjóri Lestararklefans, tók við viðurkenningunni fyrir hönd Lestrarklefans. „Við erum snortnar og þakklátar fyrir viðurkenninguna og heitum því að halda áfram að…Lesa meira

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands keypti í gær fyrsta álfinn af SÁÁ þetta árið og hófst þar með formlega álfasalan sem stendur yfir næstu dagana. Álfurinn er Íslendingum að góðu kunnur eftir áratuga starf í þágu áfengis- og vímuefnasjúklinga en hann stendur nú á tímamótum, er þrítugur í ár. „Álfasalan er stærsta fjáröflunarverkefni SÁÁ ár…Lesa meira

Snæfellingar eru sigurvegarar í C deild Lengjubikars karla í knattspyrnu eftir sigur á GG í úrslitaleiknum á sunnudag. Leikurinn fór fram á Grindavíkurvelli. Hann var bæði jafn og spennandi og augljóst að bæði lið vildu vinna. Snæfellingar fengu draumabyrjun í leiknum þegar Matteo Tuta kom Stykkishólmsliðinu yfir strax á 10. mínútu leiksins. Þannig var staðan…Lesa meira

Skallagrímsmenn hófu leik í 3. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn þegar þeir tóku á móti Einherja á Skallagrímsvelli. Sumarið byrjar vel hjá Borgnesingum, sem sigruðu leikinn 2-1. Einherji náði forystunni á 22. mínútu leiksins þegar Jareo Jolon Bennett skoraði fyrir liðið. Fimm mínútum fyrir hálfleik jafnaði Cristofer Rolin fyrir Borgnesinga og staðan 1-1 þegar…Lesa meira

Nýverið lauk Þorsteinn Guðmundsson verktaki á Fróðastöðum við jarðvegsskipti undir þrjú síðustu húsin sem eftir á að byggja við Hallveigartröð í Reykholti. Sigurður Magnússon byggingameistari mun síðar í sumar hefja framkvæmdir við smíði tveggja einbýlishúsa og eins raðhúss. Að sögn séra Geirs Waage sóknarprests í Reykholti var það fyrirtækið Reykholtsstaður ehf sem átti frumkvæði að…Lesa meira

Þjóðminjasafn Íslands er að senda út nýja spurningaskrá á Sarpi, sem fjallar um Evrovision hefðir, sem mörgum þykir skemmtilegt efni. Hvetur safnið almenning til að taka þátt í könnuninni. „Tilgangurinn með þessari spurningaskrá er að safna upplýsingum um söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision. Óhætt er að segja að í tengslum við keppnina hafi orðið til siðir…Lesa meira

Íbúum Skorradalshrepps fjölgaði hlutfallslega mest á landinu frá 1. desember 2018 til 1. maí síðastliðins, eða um 12,1%, en íbúum í hreppnum fjölgaði um sjö íbúa og eru þeir nú 65. Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Árneshreppi á Ströndum, um 5%, og í Skeiða- og Gnúpverjahreppi um 4,4%. Íbúum fækkaði í 22 af 72 sveitarfélögum…Lesa meira

Víkingur Ó. bar siguorð af Gróttu í fyrstu umferð Inkasso-deildar karla í knattspyrnu, 2-0. Leikið var á Ólafsvíkurvelli í gær. Bæði lið fengu álitleg marktækifæri í upphafi leiks, en öll fóru þau þó forgörðum. Eftir því sem leið á fyrri hálfleikinn náðu Ólafsvíkingar betri tökum á leiknum og sókn þeirra þyngdist. Þeir komust yfir á…Lesa meira

Ferðablaðið Travel West Iceland – Ferðast um Vesturland 2019-2020 kom út í síðustu viku. Blaðið er gefið út af Skessuhorni en í nánu samstarfi við Markaðsstofu Vesturlands. Þetta er 20. árgangur þessa blaðs, að þessu sinni 116 síður og prentað í 60 þúsund eintökum. Það er skrifað á ensku og íslensku og hugsað sem gagnlegur…Lesa meira