Fréttir

true

Rjómabúsbændur tilnefndir til Embluverðlauna

Þorgrímur Einar Guðbjartsson og Helga Elínborg Guðmundsdóttir á Rjómabúinu Erpsstöðum hafa verið tilnefnd til hinna norrænu Emblu-matarverðlauna. Eru þau fulltrúar Íslands í flokknum Matvælaiðnaðarmaður Norðurlanda 2019. Verðlaunin verða afhent í Reykjavík 1. júní næstkomandi. Auglýst var eftir tilnefningum á öllum Norðurlöndunum. Alls bárust 320 tilnefningar, þar af meira en 50 frá Íslandi. Embluverðlaunin voru fyrst…Lesa meira

true

Landburður af fiski á Akranesi

Mokveiði hefur verið að undanförnu á bátum sem landa afla á Akranesi. Línubátar leggja fyrir þorsk, grásleppuvertíðin er hafin og þá hófst strandveiðitímabilið í dag, fimmtudaginn 2. maí. Böðvar Ingvason hefur umsjón með útibúi Fiskmarkaðs Snæfellsbæjar á Akranesi. Hann var að vonum hinn ánægðasti þegar Skessuhorn ræddi við hann á hlaupum á hafnarsvæðinu fyrr í…Lesa meira

true

Rafmagnslaust um tíma í nótt

Rafmagnslaust verður í Reykholtsdal og Hálsasveit, frá Deildartungu að Augastöðum, aðfararnótt föstudags klukan 01:00 til 02:00 vegna vinnu í spennistöð. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9390. -fréttatilkynningLesa meira

true

Borgarbyggð kemur til móts við húsbyggjendur

Byggðarráð Borgarbyggðar ákvað á fundi sínum í dag að veita 50% afslátt af gatnagerðargjöldum af íbúðarhúsnæði og 100% afslátt af lóðagjöldum til að hvetja til byggingaframkvæmda í sveitarfélaginu. Afslátturinn mun gilda allt þetta ár og kemur því til ívilnunar fyrir þá sem hafa þegar fengið úthlutað lóðum á árinu 2019. Afslátturinn tekur til allra lóða…Lesa meira

true

Ráðherrar og sveitarstjórnarráð VG ræða við Skagamenn

Vinstri græn halda sveitarstjórnarráðstefnu á Akranesi laugardaginn 4. maí frá kl. 13.00 – 17.00. Umhverfis- og heilbrigðismálunum verður gert hátt undir höfði, en Guðmundur Ingi Guðbrandsson og Svandís Svavarsdóttir ráðherrar málaflokkanna halda erindi og taka virkan þátt í ráðstefnunni. Skagamenn verða einnig áberandi í hópi fyrirlesarara á ráðstefnunni. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir, forseti Landssamtaka íslenskra…Lesa meira

true

Skóflustunga að nýrri reiðhöll Dreyra á Æðarodda

Í gær var tekin fyrsta skóflustungan að nýrri reiðhöll hestamannafélagsins Dreyra á Æðarodda á Akranesi. Það er Fasteignafélag Akraneskaupstaðar sem verður formlegur eigandi hússins en gerður hefur verið langtímasamningur um rekstur þess við Dreyra. Það er sama rekstrarform og milli Akraneskaupstaðar og Golfklúbbsins Leynis um nýja Frístundamiðstöð sem nú er risin við Garðavöll. Ungir og…Lesa meira

true

Öldungaráð minnist ekki jafn góðs vors

Tíðin að undanförnu hefur verið með afbrigðum góð hér um vestanvert landið. Gróður tekur auk þess fljótt við sér enda var klaki í jörð enginn eða lítill þegar sól tók að hækka á lofti. Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri greinir frá því á Facebook síðu sinni að hann ásamt tveimur öðrum félögum í öldungaráði, Davíð á…Lesa meira

true

Formannsskipti hjá Björgunarfélagi Akraness

Aðalfundur Björgunarfélags Akraness var haldinn þriðjudagskvöldið 23. apríl. Góð aðsókn var á fundinn. Tvær breytingar voru gerðar á stjórn björgunarfélagsins. Birna Björnsdóttir, fráfarandi formaður, gaf ekki kost á sér til endurkjörs og þá hafði Kristján Hagalín Guðjónsson gengið úr stjórninni á miðju síðasta tímabili. Nýr formaður Björgunarfélags Akraness er Gísli Sigurjón Þráinsson. Aðrir stjórnarmenn eru;…Lesa meira

true

Skagamenn áfram í bikarnum

Skagamenn eru komnir í 16 liða úrslit Mjólkurbikars karla í knattspyrnu eftir öruggan 3-0 sigur á Augnabliki í gær. Leikið var í Fífunni í Kópavogi. Skagamenn fengu algera óskabyrjun því Steinar Þorsteinsson skoraði strax á upphafsmínútunni og ÍA komið yfir. Óttar Bjarni Guðmundsson bætti öðru marki við á 15. mínútu leiksins og þannig stóðu leikar…Lesa meira

true

Hreinsuðu rusl að eigin frumkvæði

Þessar glaðlegu stúlkur, Ásdís Rebekka, Eva María og Tinna Dís eru allar nemendur í 4. bekk Brekkubæjarskóla á Akranesi. Ljósmyndari Skessuhorns hitti þær á göngu nýverið þar sem þær voru að tína rusl úr beðum og meðfram umferðargötum við Stillholt og Kirkjubraut á Akranesi. Aðspurður sögðust þær vera að hreinsa upp rusl að eigin frumkvæði.…Lesa meira