Fréttir

true

Svipast um eftir upphafi íslenskrar dægurtónlistar

Snorrastofa í Reykholti kynnir viðburðinn; „Var hún á leiðinni? Svipast um eftir upphafi íslenskrar dægurtónlistar – með fáeinum tóndæmum“. Um er að ræða dagskrá í tali og tónum um upphaf íslenskrar dægurtónlistar, sem Trausti Jónsson veðurfræðingur úr Borgarnesi og áhugamaður um tónlist, eða áhugamaður í jaðarfræðum, eins og hann segir sjálfur, hefur umsjón með. Dagskráin…Lesa meira

true

Gjaldskrár vatnsveitna verða teknar til skoðunar

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur í nýlegum úrskurði komist að þeirri niðurstöðu að álagning Orkuveitu Reykjavíkur á vatnsgjaldi ársins 2016 hafi verið ólögmæt. Í kjölfar úrskurðarins hefur ráðuneytið, á grundvelli eftirlitshlutverks síns í sveitarstjórnarlögum, ákveðið að taka til skoðunar gjaldskrár allra sveitarfélaga, sem settar hafa verið á grundvelli laga um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004. Í úrskurði…Lesa meira

true

Tekur tímabundið við Arionbanka

Stjórn Arion banka hefur hafið undirbúning að ráðningu nýs bankastjóra. Stjórnin hefur falið Stefáni Péturssyni, framkvæmdastjóra fjármálasviðs bankans, að gegna starfi bankastjóra um sinn, eða frá 1. maí 2019 og þar til stjórn hefur ráðið bankastjóra til frambúðar.Lesa meira

true

Leikskólabygging komin í útboð

Ríkiskaup, fyrir hönd Borgarbyggðar, hafa óskað eftir tilboðum vegna byggingaframkvæmdar við Grunnskólann á Kleppjárnsreykjum. Um er að ræða 540 fermetra nýbyggingu á einni hæð sem mun hýsa leikskólann Hnoðraból auk aðstöðu fyrir starfsfólk leikskólans og grunnskólans. Tilboðsfrestur er til 8. maí næstkomandi og nánari upplýsingar er að finna á útboðsvef Ríkiskaupa.Lesa meira

true

Ráðin skólastjóri Reykhólaskóla

Sveitarstjórn Reykhólahrepps hefur samþykkt tillögu mennta- og menningarmálanefndar sveitarfélagsins og falið sveitarstjóra að ganga til samninga við Önnu Björgu Ingadóttur um ráðningu hennar í starf skólastjóra Reykhólaskóla. Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir er starfandi skólastjóri, tók við starfinu af Valgeir Jens Guðmundsson sem hætti á áramótum. Anna Björg er kennari í Mosfellsbæ en kenndi m.a. við Reykhólaskóla…Lesa meira

true

Hæfileikamótun í Ólafsvík á föstudag

Lúðvík Gunnarsson, yfirmaður Hæfileikamótunar N1 og KSÍ, hefur valið hóp drengja og stúlkna af Vesturlandi og frá Vestra, sem tekur þátt í knattspyrnuæfingum í Ólafsvík föstudaginn 26. apríl næstkomandi. Æfingarnar fara fram á nýja gervigrasvelli Víkings. Drengir eru: Daníel Breki Bjarkason | ÍA Gísli Fannar Ottesen | ÍA Haukur Andri Haraldsson | ÍA Kasper Úlfarsson…Lesa meira

true

Boða til samráðsfundar um ferðaþjónustu í Stykkishólmi

Stykkishólmsbær og félagið Efling Stykkishólms boða til fundar um samstarfsverkefni á sviði ferðaþjónustu í Stykkishólmi í Amtsbókasafninu í kvöld, þriðjudaginn 23. apríl kl. 20:00. „Markmið fundarins er að fá þá aðila sem sinna ferðaþjónustu í Stykkishólmi saman að samstarfsborði, varpa ljósi á það sem verið er að gera og horfa til framtíðar. Ræða um framtíðarhorfur…Lesa meira

true

Nýtt viðbótargjald Póstsins kemur sér illa fyrir landsbyggðina

Íslandspóstur breytti 15. janúar síðastliðnum verðskrá fyrir bögglasendingar í dreifbýli innanlands. Breytingin felur það í sér að þyngdarviðmið fyrir pakkasendingar heim að dyrum í dreifbýli var fært úr 30 kg. niður í 20 kg. og vísað til 6. grein laga um póstþjónustu. Verð miðast auk þess við svokallaða rúmmálsþyngd þegar hún er meiri en raunþyngd…Lesa meira

true

Víkingur sleginn út úr bikarnum

Víkingur Ólafsvík átti ekki sinn besta dag þegar liðið mætti Úlfunum á heimavelli í annarri umferð Mjólkurbikarsins í knattspyrnu á skírdag. Leikurinn fór vel af stað og skoraði Pétur Steinar Jóhannsson mark strax á 2. mínútu leiksins. Emmanuel Eli Keke fékk svo rautt spjald á 20. mínútu og jöfnuðu gestirnir strax í kjölfar þess. Harley…Lesa meira

true

Jörfagleði hefst í Dölum síðasta vetrardag

Jörfagleði, menningarhátíð Dalamanna, hefst í vikunni, síðasta vetrardag miðvikudaginn 24. apríl. Hátíðin hefur verið haldin annað hvert ár síðan 1977. Líkt og venja er fyrir verður dagskráin með fjölbreyttu sniði og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. „Undirbúningur hefur gengið mjög vel og það er allt að verða tilbúið,“ segir Bjarnheiður Jóhannsdóttir, ferðamálafulltrúi…Lesa meira