Fréttir

true

Nýtt viðbótargjald Póstsins kemur sér illa fyrir landsbyggðina

Íslandspóstur breytti 15. janúar síðastliðnum verðskrá fyrir bögglasendingar í dreifbýli innanlands. Breytingin felur það í sér að þyngdarviðmið fyrir pakkasendingar heim að dyrum í dreifbýli var fært úr 30 kg. niður í 20 kg. og vísað til 6. grein laga um póstþjónustu. Verð miðast auk þess við svokallaða rúmmálsþyngd þegar hún er meiri en raunþyngd…Lesa meira

true

Víkingur sleginn út úr bikarnum

Víkingur Ólafsvík átti ekki sinn besta dag þegar liðið mætti Úlfunum á heimavelli í annarri umferð Mjólkurbikarsins í knattspyrnu á skírdag. Leikurinn fór vel af stað og skoraði Pétur Steinar Jóhannsson mark strax á 2. mínútu leiksins. Emmanuel Eli Keke fékk svo rautt spjald á 20. mínútu og jöfnuðu gestirnir strax í kjölfar þess. Harley…Lesa meira

true

Jörfagleði hefst í Dölum síðasta vetrardag

Jörfagleði, menningarhátíð Dalamanna, hefst í vikunni, síðasta vetrardag miðvikudaginn 24. apríl. Hátíðin hefur verið haldin annað hvert ár síðan 1977. Líkt og venja er fyrir verður dagskráin með fjölbreyttu sniði og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. „Undirbúningur hefur gengið mjög vel og það er allt að verða tilbúið,“ segir Bjarnheiður Jóhannsdóttir, ferðamálafulltrúi…Lesa meira

true

Fyrirlestur um að vera besta útgáfan af sjálfum sér

Evert Víglundsson, eigandi og yfirþjálfari CrossFit Reykjavíkur og upphafsmaður CrossFit á Íslandi, verður með fyrirlestur  á Akranesi í kvöld, þriðjudaginn 23. apríl klukkan 20. Þar fjallar hann um hvernig við getum orðið besta útgáfan af sjálfum okkur. Evert mun í fyrirlestrinum fara yfir mikilvægi svefns, næringar, hreyfingar, félagsskapar og streitustjórnunar. „Vilt þú verða betri í…Lesa meira

true

Umgangspest herjar á hrossastofninn

Töluvert hefur borið á því að undanförnu að hross hafa veikst af einhverskonar smitandi umgangspest. Að sögn Kristínar Þórhallsdóttur dýralæknis á Laugalandi í Borgarfirði hefur ekki enn fengist staðfest hvernig pest er um að ræða og því ekki verið gefin út yfirlýsing af hálfu MAST. Kristín segir pestina í flestum hrossunum sem veikjast lýsa sér…Lesa meira

true

Tveir Borgnesingar á heimsmeistaramóti skólaliða

Borgnesingar áttu tvo glæsilega fulltrúa á heimsmeistaramóti skólaliða í körfubolta sem fram fór nú um páskana. Það eru þeir Gunnar Örn Ómarsson og Marinó Þór Pálmason en þeir hafa báðir stundað nám í EVN í Danmörku í vetur og æft og keppt í körfubolta með liði skólans. Lið EVN vann sér rétt til þátttöku í…Lesa meira

true

Fyrsti sláttur á flötunum í Nesi

Vorið hefur verið milt og saman við froslausa jörð er því grasinu ekkert að vanbúnaði að hefja vöxt. Á golfvellinum í Nesi í Reykholtsdal var púttflötin slegin í gær, páskadag 21. apríl. Þar styttist því í opnun vallarins. Sömu sögu er að segja af fleiri golfvöllum á Vesturlandi. Eins og fram kom í viðtali í…Lesa meira

true

Áburður á hafnarbakkann

Flutningaskipið Wilson Newport lagðist að bryggju á Akranesi í morgun með áburð og staura sem Fóðurblandan flytur inn og selur bændum. Bifreiðastöð ÞÞÞ annast uppskipun og afgreiðslu áburðarins til flutningsaðila. Tæplega þrjú þúsund stórsekkjum verður landað í dag á hafnarbakkann á Akranesi þaðan sem þeim verður ekið til vestlenskra kaupenda. Jörð er víða frostlaus í…Lesa meira

true

Nanna systir væntanleg í leikferð um Vesturland

Leikfélag Hólmavíkur stendur í ströngu um þessar mundir við sýningar á gamanleikritinu Nanna systir eftir Einar Kárason og Kjartan Ragnarsson, í leikstjórn Skúla Gautasonar. Sýningin hefur þegar verið sýnd í Sævangi á Ströndum við góðar viðtökur. Leikfélag Hólmavíkur er eitt af örfáum áhugaleikfélögum á landinu sem rígheldur í þá hefð að fara í leikferðalög með…Lesa meira

true

Kviknaði í út frá kamínu í sumarhúsi

Síðdegis í gær var Slökkvilið Borgarbyggðar kallað út á fyrsta forgangi vegna bruna í sumarhúsi í Fitjahlíð í Skorradal. Slökkviliðsmenn frá Borgarnesi, Hvanneyri og Reykholti fóru á staðinn. Að sögn Bjarna Kristins Þorsteinssonar slökkviliðsstjóra fór betur en á horfðist. Kviknað hafði í klæðningu út frá kamínu. Var viður og annað byggingarefni við útblástursrör farið að…Lesa meira