Fréttir

true

Guðlaugur gefur út bókina Veturnætur – ljóðmyndir

Guðlaugur Óskarsson fyrrverandi skólastjóri á Kleppjárnsreykjum gaf á dögunum út bókina Veturnætur – ljóðmyndir. Í henni haldast ljóð hans og myndir í hendur. „Veturnætur er sá tími ársins, sem liggur á milli sumars og veturs eftir gamla tímatalinu. Höfundur fyllir um þessar mundir 70 ár og því er hægt að taka undir það sem segir…Lesa meira

true

Reyna að ráða gátuna um rauðablástur á Íslandi

Dagana 30. ágúst til 1. september í haust stendur mikið til í Reykholti í Borgarfirði. Félagsskapurinn Hurtswic mun þá standa fyrir þriggja daga samfelldri járngerð í þorpinu sem gestum og gangandi er boðið að taka virkan þátt í. Unnið verður járn úr jarðveginum og það mótað í ofnum sem kyntir eru með mó, eins og…Lesa meira

true

Hæfileikakeppni starfsbrauta var haldin í Grundarfirði

Fjölbrautaskóli Snæfellinga hélt hæfileikakeppni starfsbrautanna 2019 í stóra sal skólans í liðinni viku. Alls mættu þrettán skólar og sýndu afrakstur þrotlausra æfinga. Atriðin voru hvert öðru glæsilegra en að lokum var það Fjölbrautaskóli Suðurnesja sem sigraði í hæfileikakeppninni. Í öðru sæti var atriði frá Fjölbrautaskóla Mosfellsbæjar og Borgarholtsskóla en Fjölbrautaskóli Snæfellinga hafnaði í þriðja sæti.…Lesa meira

true

Stór dagur í samgöngusögu Vestfjarða í dag

Í dag er ráðgert að síðasta haftið verði sprengt í nýjum Dýrafjarðargöngum, sem liggja milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar á Vestfjörðum. Lengd ganganna í bergi er 5.300 metrar en auk vegskála beggja megin eru göngin 5,6 kílómetrar. Fyrsta sprenging Dýrafjarðarganga var gerð í september 2017 Arnarfjarðarmegin en í október sama ár Dýrafjarðarmegin. Nú er áætlað að…Lesa meira

true

Ítrekaðar stíflur í skólphreinsistöðinni á Akranesi

Að sögn Helga Helgasonar, framkvæmdarstjóra Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, ber niðursuðuverksmiðjan Akraborg ábyrgð á fitu sem ítrekað hefur valdið stíflum í skólphreinsistöðinni á Akranesi. Vísir greindi frá málinu í morgun og þar er haft eftir Helga: „Þeir eru með rosalega feita vöru. Bæði að sjóða niður fisklifur og svo eru þeir með paté úr þorsklifur og það…Lesa meira

true

Guðjón Jónsson var valinn hljómborðsleikari Músíktilrauna

Hljómborðsleikarinn Guðjón Jónsson frá Sturlu-Reykjum í Reykholtsdal var valinn hljómborðsleikari Músíktilrauna 2019 á úrslitakvöldi keppninnar sem fram fór laugardaginn 6. apríl. Guðjón og félagar hans úr hljómsveitinni Flammeus frá Akureyri stóðu sig vel í keppninni og voru kosnir áfram af dómnefnd fyrsta undanúrlitakvöldið. Guðjón er fæddur og uppalinn í Reykholtsdal í Borgarfirði, sonur Jóns Kristleifssonar…Lesa meira

true

Bragi selur Hverinn og flytur yfir hverinn

Tímamót eru hjá Braga Gunnarssyni sem undanfarin átta ár hefur verið vert í Hvernum í Borgarfirði. Hann hefur nú selt gróðrarstöðina Björk, tilheyrandi tjaldstæði, hús og veitingastaðinn Hverinn og eru nýir eigendur að taka þar við rekstri og búsforráðum. Áður hafði Bragi fest kaup á annarri garðyrkjustöð handan Reykjadalsár, en það er gróðrarstöðin Víðigerði sem…Lesa meira

true

Talsvert betri afkoma Snæfellsbæjar en áætlanir gerðu ráð fyrir

Rekstur Snæfellsbæjar var jákvæður um 125,3 milljónir króna á síðasta ári, en gert hafði verið ráð fyrir 22,9 milljóna króna afgangi í fjárhagsáætlun. Rekstrarafkoman varð því töluvert betri en gert hafði verið ráð fyrir, eða sem nemur 102,4 milljónum króna. Þetta kemur fram á vef Snæfellsbæjar, en ársreikningur bæjarfélagsins var til fyrri umræðu á fundi…Lesa meira

true

Skagamenn töpuðu úrslitaleiknum

Skagamenn luku keppni í 2. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi þegar þeir mættu Álftnesingum í úrslitaleik deildarinnar. Leikið var í Forsetahöllinni á Álftanesi. Jafnræði var með liðunum í upphafsfjórðungnum. Í öðrum leikhluta náðu Skagamenn góðri forystu en Álftnesingar komu til baka. Undir lok fyrri hálfleiksins og í upphafi þriðja leikhluta þriðja réðu heimamenn lögum…Lesa meira

true

Akraneskaupstaður skilar 826 milljóna króna jákvæðri niðurstöðu

Alls varð 826 milljóna króna afgangur af rekstri Akraneskaupstaðar á síðasta ári. Er það 631 milljón króna betri afkoma en áætlað var í fjárhagsáætlun ársins 2018 að teknu tilliti til viðauka hennar. „Það skýrist af 668 milljóna króna hærri tekjum en áætlað var vegna launatekna íbúa, meiri umsvifa í sveitarfélaginu og söluhagnaði eigna,“ segir í…Lesa meira