Fréttir

true

Mokafli dragnótabáta í Ólafsvík

Undanfarna daga hefur verið mokafli hjá dragnótabátum sem róa frá Ólafsvík. Hefur aflinn komist upp í 32 tonn eins og hjá bátnum Agli SH í gær. Þá var landað upp úr Agli 32 tonnum af þorski sem fengust í aðeins þremur hölum. Þórður Björnsson sagði í samtali við Skessuhorn að þetta góði afli sé óvanalegur…Lesa meira

true

Bjóða út framkvæmdir við Jaðarsbakkalaug

Akraneskaupstaður auglýsir í Skessuhorni í dag eftir tilboðsgjöfum í fyrirhugaða uppbyggingu á sundlaugarsvæðinu við Jarðarsbakka. Jafnframt er boðin út bygging heitrar laugar við Langasand. Í auglýsingu kemur fram að verkið felist í endurbyggingu á heitum pottum, lagnavinnu og yfirborðsfrágangi á sundlaugarsvæðinu. Ennfremur uppsteypu á laug ásamt tilheyrandi lagnabúnaði í grjótgarðinum niður við Langasand. Verklok skulu…Lesa meira

true

„Mikilvægast að það ríki jákvæðni og gleði“

Bæjarhátíðin Írskir dagar á Akranesi hefur ávallt verið vinsæl, bæði meðal heimamanna sem og gesta. Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri á Akranesi segir íbúa taka góðan og virkan þátt en í ár verða Írskir dagar haldnir í sautjánda skipti. „Við fögnum írskum uppruna okkar með írsku fánalitunum, veljum rauðhærðasta Íslendinginn og best skreytta, eða írskasta húsið. Tónninn…Lesa meira

true

Enn sigrar Víkingur á heimavelli

Í gærkvöldi mættust lið Víkings Ó. og Þróttar í níundu umferð Pepsi deildar karla. Leikurinn var fjörugur og fimm mörk voru skoruð. Fyrir leikinn var Víkingur í fimmta sæti með 14 stig en Þróttar í næst-neðsta með sjö stig. Víkingur vann gríðarlega sterkan sigur á Þrótti 3 – 2 þrátt fyrir að hafa lent tveimur…Lesa meira

true

Sá stóri sannarlega til staðar í Laxá í Leir

Veiðin hefur verið þokkaleg í Laxá í Leirársveit það sem af er veiðitímabilinu. Fiskurinn er vænn sem hefur verið að fást. En baráttan getur verið löng við spræka laxa eins og sannaðist nýlega í Miðfellsfljótinu. Skúli Valberg Ólafsson og Ragnar Þórisson voru þá við veiðar og settu í 93 cm hæng. Tók hann lítinn Sun Ray…Lesa meira

true

Sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs hættir

Jón Hrói Finnsson hefur sagt starfi sínu lausu sem sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs hjá Akraneskaupstað. Í uppsagnarbréfi sínu 22. júní síðastliðinn kemur fram að honum hafi verið borðið starf sem framkvæmdastjóri Búsetudeildar Akureyrarkaupstaðar og hafi hann þáð starfið. „Ástæður þess sem ég hugsa mér til hreyfings eru af persónulegum toga og ég vil þakka samstarfsfólki…Lesa meira

true

Á annað þúsund hraðakstursbrot á landinu á einni viku

Óvenju mörg hraðakstursbrot komu upp hjá Lögreglunni á Vesturlandi í liðinni viku. Frá því á mánudag í síðustu viku voru 1.310 hraðakstursbrot skráð á landinu, sem er liðlega helmingi meira en venjulegt er. Fimm lítilsháttar umferðaróhöpp urðu í umdæminu í vikunni og var einn þeirra sem lenti í óhappi á Snæfellsnesi grunaður um ölvun við…Lesa meira

true

Símon er nýr leigutaki Vatnasvæðis Lýsu á Snæfellsnesi

„Ég hef tekið Vatnasvæði Lýsu á leigu í sumar, allt svæðið. Nú má veiða alveg niður í ós,“ segir Símon Sigurmonsson í Görðum, nýr leigutaki svæðisins. Fram að þessu hafa hinir og þessir haft svæðið á leigu undanfarin ár. Má þar nefna Laxá og Stangaveiðifélag Reykjavíkur. Einkaaðilar voru auk þess með neðsta svæðið en það…Lesa meira

true

Segja áform um sjókvíaeldi ógna óspilltum stofnum villtra laxa

Aðalfundur Landssambands veiðifélaga var haldinn á Bifröst fyrr í þessum mánuði. Fundurinn samþykkti að lýsa yfir þungum áhyggjum af og mótmæla stórfelldum áformum erlendra og innlendra fjárfesta um eldi á norskum laxi í sjókvíum hér við land. „Aðalfundurinn telur að þessi áform stefni óspilltum stofnum villtra laxa í voða og séu í raun aðför að…Lesa meira

true

Landsleikurinn sýndur á risaskjá í Garðalundi

Írskir dagar fara fram á Akranesi um helgina, en dagskráin hefst á morgun. Mikið verður um að vera en dagskránni í ár lýkur með fremur óhefðbundnum hætti. Íslenska landsliðið í knattspyrnu leikur við Frakkland í 8 – liða úrslitum Evrópumótsins á sunnudaginn klukkan 19:00. Leikurinn verður sýndur á risaskjá í Garðalundi og verður stemningin líklega ekki…Lesa meira