Fréttir

true

Góður keppnisandi og gleði á bocciamóti í Stykkishólmi

Boccia mót var haldið í Stykkishólmi þriðjudaginn 9. apríl þar sem saman voru komin lið frá félagsmiðstöðinni X-inu, lið frá Aftanskini, sem er skipað heldriborgunum, og boccialið Snæfells sem er hópur fólks með skerta starfsgetu. „Hugmyndin að mótinu kviknaði á bocciaopnun í félagsmiðstöðinni X-inu sem er fyrir unga fólkið í 8.-10. bekk. Við vissum að…Lesa meira

true

Fyrirlestur um að vera besta útgáfan af sjálfum sér

Evert Víglundsson, eigandi og yfirþjálfari CrossFit Reykjavíkur og upphafsmaður CrossFit á Íslandi, verður með fyrirlestur þriðjudaginn 23. apríl kl. 20 á Akranesi um hvernig við getum orðið besta útgáfan af sjálfum okkur. Evert mun í fyrirlestrinum fara yfir mikilvægi svefns, næringar, hreyfingar, félagsskapar og streitustjórnunar. „Vilt þú verða betri í einhverju í lífinu? Þá er…Lesa meira

true

Agla færir Brákarhlíð gjöf

Nýverið komu félagskonur úr Lionsklúbbnum Öglu í Borgarnesi færandi hendi á Brákarhlíð. Gjöfin er eyrnamerkt til uppbyggingar á gróðurhúsi fyrir starfsfólk og íbúa. Það voru þær Jóna Ester Kristjánsdóttir og Þuríður Helgadóttir sem tóku við gjöfinni f.h. Brákarhlíðar og frá Öglum voru þær mættar Elfa Hauksdóttir, Steinunn Ásta Guðmundsdóttir, María Guðmundsdóttir og María Erla Geirsdóttir.…Lesa meira

true

Lögregla og sérsveit æfðu viðbrögð við vopnamáli

Lögreglan á Vesturlandi hélt sameiginlega æfingu með sérsveit ríkislöreglustjóra á Akranesi í morgun. Æfð voru viðbrögð við vopnamáli og tóku lögreglumenn á Akranesi þátt sem fyrstu viðbragðsaðilar. Skrifstofur Sementsverksmiðjunnar voru fengnar að láni hjá ríki og bæ til æfingarinnar og gegndu þær hlutverki fjölbýlishúss. „Æfingin var sett þannig upp að öryggisverðir tilkynna um vopnaðan mann…Lesa meira

true

Skessuhorn degi fyrr í þessari viku

Til að páskablað Skessuhorns komist í hendur áskrifenda fyrir páska verður blaðið prentað í kvöld, mánudag og fer í dreifingu í fyrramálið. Er það degi fyrr en venjulega. Tekið er við efni og auglýsingum til birtingar til klukkan 13 í dag. Minnt er á símann 433-5500 og netfangið auglysingar@skessuhorn.is og efni til ritstjórnar á: skessuhorn@skessuhorn.isLesa meira

true

Slysavarnaskóli sjómanna verðlaunaður af SFS

Slysavarnaskóli sjómanna hlaut hvatningarverðlaun Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi á ársfundi samtakanna sem fram fór í Hörpu á föstudaginn. Í kynningu formanns SFS, Jens Garðars Helgasonar, við afhendingu verðlaunanna, kom fram að á fimmta þúsund manns hefðu farist í sjóslysum á Íslandi á 20. öldinni, en undanfarin tvö ár hafi ekkert banaslys orðið á sjó. Slysavarnaskóli…Lesa meira

true

Bónus með ódýrustu páskaeggin

Lægstu verðin á páskaeggjum er hjá Bónus en þau hæstu í Super 1 og Iceland. Þetta er meðal niðurstaðna í könnun verðlagseftirlits ASÍ sem framkvæmt var 11. apríl síðastliðinn. Allt að 67% verðmunur var á páskaeggjum mill verslana. Munurinn á hæsta og lægsta verði nam oft mörg hundruð krónum og mest 1.400 krónum á einu…Lesa meira

true

Víðtækt samráð um heilsueflingu aldraðra

Þjóðin eldist og samkvæmt tölum Hagstofunnar mun fólki eldra en 80 ára fjölga um tæplega 6.000 eða 46% til ársins 2030. „Hætta á sjúkdómum eykst með hækkandi aldri og þar vega þungt ýmsir sjúkdómar tengdir lífsstíl. Margþættur ávinningur felst í því að efla heilsu aldraðra og gera þeim kleift að búa sem lengst á eigin…Lesa meira

true

Sinueldur við Litlu-Brekku á Mýrum

Síðdegis í dag var Slökkvilið Borgarbyggðar kallað út vegna elds í gróðurlendi skammt frá Litlu-Brekku á Mýrum. Auk mannskapar frá slökkviliðinu á Bifröst, Reykholti, Hvanneyri og Borgarnesi var kallað eftir aðstoð Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Þá var þyrla Landhelgisgæslunnar einnig kölluð út til að flytja vatn í stórpoka yfir svæðið, en aðstoð hennar var afturkölluð…Lesa meira

true

Tækniskólinn sigurvegari í Söngkeppni framhaldsskólanna

Söngkeppni framhaldsskólanna var haldin í Bíóhöllinni á Akranesi í gærkvöldi. Þar voru flutt atriði 26 framhaldsskóla víðsvegar af landinu. Það voru Vinir hallarinnar sem héldu utan um skipulag viðburðarins ásamt RUV, en keppnin var sýnd í beinni á Ríkissjónvarpsstöðinni. Birgir Þórisson var hljómsveitarstjóri og kynnar voru bræðurnir Jón Jónsson og Friðrik Dór. Fyrirkomulag keppninnar var…Lesa meira