Fréttir

true

Skessuhorn degi fyrr í þessari viku

Til að páskablað Skessuhorns komist í hendur áskrifenda fyrir páska verður blaðið prentað í kvöld, mánudag og fer í dreifingu í fyrramálið. Er það degi fyrr en venjulega. Tekið er við efni og auglýsingum til birtingar til klukkan 13 í dag. Minnt er á símann 433-5500 og netfangið auglysingar@skessuhorn.is og efni til ritstjórnar á: skessuhorn@skessuhorn.isLesa meira

true

Slysavarnaskóli sjómanna verðlaunaður af SFS

Slysavarnaskóli sjómanna hlaut hvatningarverðlaun Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi á ársfundi samtakanna sem fram fór í Hörpu á föstudaginn. Í kynningu formanns SFS, Jens Garðars Helgasonar, við afhendingu verðlaunanna, kom fram að á fimmta þúsund manns hefðu farist í sjóslysum á Íslandi á 20. öldinni, en undanfarin tvö ár hafi ekkert banaslys orðið á sjó. Slysavarnaskóli…Lesa meira

true

Bónus með ódýrustu páskaeggin

Lægstu verðin á páskaeggjum er hjá Bónus en þau hæstu í Super 1 og Iceland. Þetta er meðal niðurstaðna í könnun verðlagseftirlits ASÍ sem framkvæmt var 11. apríl síðastliðinn. Allt að 67% verðmunur var á páskaeggjum mill verslana. Munurinn á hæsta og lægsta verði nam oft mörg hundruð krónum og mest 1.400 krónum á einu…Lesa meira

true

Víðtækt samráð um heilsueflingu aldraðra

Þjóðin eldist og samkvæmt tölum Hagstofunnar mun fólki eldra en 80 ára fjölga um tæplega 6.000 eða 46% til ársins 2030. „Hætta á sjúkdómum eykst með hækkandi aldri og þar vega þungt ýmsir sjúkdómar tengdir lífsstíl. Margþættur ávinningur felst í því að efla heilsu aldraðra og gera þeim kleift að búa sem lengst á eigin…Lesa meira

true

Sinueldur við Litlu-Brekku á Mýrum

Síðdegis í dag var Slökkvilið Borgarbyggðar kallað út vegna elds í gróðurlendi skammt frá Litlu-Brekku á Mýrum. Auk mannskapar frá slökkviliðinu á Bifröst, Reykholti, Hvanneyri og Borgarnesi var kallað eftir aðstoð Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Þá var þyrla Landhelgisgæslunnar einnig kölluð út til að flytja vatn í stórpoka yfir svæðið, en aðstoð hennar var afturkölluð…Lesa meira

true

Tækniskólinn sigurvegari í Söngkeppni framhaldsskólanna

Söngkeppni framhaldsskólanna var haldin í Bíóhöllinni á Akranesi í gærkvöldi. Þar voru flutt atriði 26 framhaldsskóla víðsvegar af landinu. Það voru Vinir hallarinnar sem héldu utan um skipulag viðburðarins ásamt RUV, en keppnin var sýnd í beinni á Ríkissjónvarpsstöðinni. Birgir Þórisson var hljómsveitarstjóri og kynnar voru bræðurnir Jón Jónsson og Friðrik Dór. Fyrirkomulag keppninnar var…Lesa meira

true

Stjórn Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi

Aðalfundur Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi var haldinn síðastliðinn föstudag. Þar var Jens Garðar Helgason, framkvæmdastjóri Laxa-fiskeldis kjörinn formaður. Við stofnun samtakanna í október 2014 var Jens fyrst kjörinn formaður og hefur því gegnt stöðu formanns frá stofnun. Aðrir í stjórn voru kosnir: Anna Guðmundsdóttir, fjármálastjóri. Gjögur hf. Ásgeir Gunnarsson, framkvæmdastjóri veiða og vinnslu. Skinney–Þinganes hf.…Lesa meira

true

Bálhvasst síðdegis og í kvöld

Gul viðvörun er vegna veðurs á öllu sunnan- og vestanverðu landinu í dag og kvöld. Suðaustan stormur, 18-25 m/s verður á Faxaflóasvæðinu en hvassast verður á Reykjanesi. Hvassar hviður við fjöll, um 40 m/s, til dæmis á Kjalarnesi og við Hafnarfjall. Á Breiðafjarðarsvæðinu verður suðaustan stormur, 15-23 m/s og hvassar hviður, um 35 m/s, á…Lesa meira

true

Rúta á hliðina á veginum við Hafnarfjall

Töluvert hvasst var á vestanverðu landinu um miðjan dag í gær og svo aftur seint í gærkvöldi. Vindhraði í hviðum mældist tvívegis upp í 50 metra á sekúndu á veginum við Hafnarfjall. Um miðjan dag fékk hópferðabíll sem var á suðurleið á sig vindstreng og lenti í fyrstu í vegkantinum. Skömmu síðar fór bíllinn á…Lesa meira

true

Fyrsta þungarokkshljómsveitin til að hljóta verðlaun á Nótunni

Tónlistarskólinn á Akranesi tók þátt í lokahátíð Nótunnar, uppskeruhátíðar tónlistarskólanna hér á landi, sem fram fór í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri 6. apríl síðastliðinn. Hljómsveitin Skull Crusher var fulltrúi tónlistarskólans að þessu sinni og flutti Metallica lagið For Whom the Bell tolls. Hljómsveitina skipa þeir Baldur Bent Vattar Oddsson á bassi, Fannar Björnsson á rafgítar,…Lesa meira