Fréttir

true

Lögregla leitar að hvítum Yaris

Lögreglan á Vesturlandi leitar Toyota Yaris bifreið, árgerð 2016 með skráningarnúmerið HP-N91. Bíllinn er hvítur að lit og með Trend aukapakka. Bifreiðinni var stolið í Hvalfirði en talið er að hún sé nú á höfuðborgarsvæðinu, að því er fram kemur í tilkynningu Lögreglunnar á Vesturlandi. „Ef einhver verður hennar var er best að hafa samband…Lesa meira

true

Páskaúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness

Páskaúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness fer fram þriðjudaginn 16. apríl næstkomandi milli kl. 13:öö og 17:00 í húsi Rauða krossins, Skólabraut 25a. Fyrirkomulagið verður með þeim hætti að umsækjendur koma á þriðjudaginn milli 13:00 og 17:00, fylla út umsókn og fá afhent kort í leiðinni. „Allir umsækjendur fá úthlutað sömu upphæð. Við verðum að hafa þetta svona…Lesa meira

true

Leitað að bæjarlistamanni

Menningar- og safnanefnd Akraneskaupstaðar óskar eftir tillögum almennings um bæjarlistamann Akraness 2019. Hægt er að senda inn tillögur rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar. Nefndin mun fara yfir allar tillögur sem berast. Niðurstöðurnar verða kynntar við hátíðlega athöfn á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Fyrsti bæjarlistamaður Akraness var Hreinn Elíasson myndlistarmaður árið 1992. Síðan þá hafa fjölmargir listamenn verið…Lesa meira

true

Nýsköpunarsetur á Grundartanga

Á ráðstefnu sem haldin var í Tónbergi á Akranesi 23. mars síðastliðinn voru undirritaðir samningar um Nýsköpunarsetur á Grundartanga. Að setrinu standa Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Elkem Ísland, Akraneskaupstaður, Hvalfjarðarsveit og Þróunarfélagið Grundartanga. Að Þróunarfélagi Grundartanga standa Akraneskaupstaður, Borgarbyggð, Faxaflóahafnir sf., Hvalfjarðarsveit, Reykjavíkurborg og Skorradalshreppur, en félagið var stofnað árið 2016 í þeim tilgangi að móta framtíðarsýn…Lesa meira

true

Næsta útgáfa degi fyrr en vanalega

Vegna páskanna sem senn fara í hönd verður næsta útgáfa Skessuhorns degi fyrr en vanalega, eða þriðjudaginn 16. apríl næstkomandi. Af þeim sökum er vakin athygli á því að efni og auglýsingar til birtingar í næsta tölublaði Skessuhorns þurfa að berast í síðasta lagi á hádegi mánudaginn 15. apríl.Lesa meira

true

Hundrað kílómetra hlaup í fimmtugs afmælisgjöf

Gunnar Viðar Gunnarsson, húsasmiður í Borgarnesi, gaf sjálfum sér harla óvenjulega afmælisgjöf í tilefni af fimmtugsafmælinu sínu á dögunum. Gjöfin fólst í að ljúka viðurkenndu 100 km hlaupi við fyrsta tækifæri. Tækifærið kom um liðna helgi, en á laugardaginn tók Gunnar þátt í 100 km ofurhlaupi í Bretlandi og lauk því á tæpum 14 klukkutímum.…Lesa meira

true

Randy og Þytur fimmgangsmeistarar í þriðja sinn

Keppt var í fimmgangi í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum á föstudaginn. Upprunalega átti mótið að vera fyrir hálfum mánuði en vegna veðurs þurfti að fresta því og verður því lokamót deildarinnar fimmtudaginn 18. apríl þegar keppt verður í tölti og skeiði í gegnum höllinna. Sigurvegari í fimmganginum var Randi Holaker og Þytur frá Skáney. Er þetta…Lesa meira

true

Nóg að gera við tamningar á Syðstu-Fossum

Á Syðstu-Fossum í Andakíl hefur um árabil verið rekin tamningastöð. Hún er til húsa í fyrrum fjósi Snorra Hjálmarssonar bónda sem breytt var í hesthús þegar kúabúskap var hætt og í samliggjandi hlöðum eru tamningatryppin svo þjálfuð. Þar ráða nú ríkjum tveir karlar sem hvor um sig hafa verið viðloðandi hestamennsku frá æsku, en sameinuðust…Lesa meira

true

Fleygur rekinn í samskipti ríkis og sveitarfélaga

Árlegur aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi og ýmissa stofnana sem heyra undir sveitarfélögin í landshlutanum, var haldinn á Hótel Hamri í Borgarnesi í síðustu viku. Á aðalfundi SSV var samþykkt harðorð ályktun vegna áforma ríkisstjórnarinnar um skerðingu tekna Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Mótmælt er fyrirhugaðri skerðingu eins og hún birtist í Fjármálaáætlun fyrir árin 2020-2024. „Það liggur…Lesa meira

true

Söngkeppni framhaldsskólanna verður í Bíóhöllinni um helgina

Söngkeppni framhaldsskólanna verður í annað sinn haldin á Akranesi næsta laugardag, 13. apríl. Að þessu sinni verður keppnin í Bíóhöllinni og eru það Vinir hallarinnar sem hafa tekið að sér að skipuleggja keppnina en þeir sáu einnig um það verkefni á síðasta ári þegar útlit var fyrir að ekkert yrði af keppni. „Við tókum þetta…Lesa meira