Fréttir

true

Fundað um einkarekna fjölmiðla

Síðastliðinn laugardag fór fram í Háskólanum á Akureyri fundur um stöðu einkarekinna fjölmiðla og væntanlegt frumvarp til stuðnings rekstri þeirra. Það var Símenntun Háskólans á Akureyri og Blaðamannafélag Íslands sem buðu til fundarins. Rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla á Íslandi hefur löngum verið erfitt og hefur þeim fækkað talsvert á liðnum árum. Sambærilegir miðlar í grannlöndunum njóta…Lesa meira

true

Grundfirsku blakstelpurnar upp um deild

Meistaraflokkur Grundarfjarðar í blaki hafnaði í öðru sæti á Íslandsmótinu í blaki sem lauk á dögunum. Þetta varð ljóst eftir síðustu keppnishelgina en Grundarfjörður endaði með 27 stig eftir veturinn en Ungmennafélagið Hjalti varð hlutskarpara með 32 stig. Það er því ljóst að Ungmennafélag Grundarfjarðar mun leika í 1. deild að nýju eftir smá hlé.…Lesa meira

true

Skóladagur í Borgarbyggð á laugardaginn

Laugardaginn 30. mars á milli klukkan 13 og 15 munu skólar á öllum skólastigum í Borgarbyggð kynna starfsemi sína á Skóladegi sem haldinn verður í Hjálmakletti. Vítt og breitt um bygginguna verður margt forvitnilegt að sjá og hægt að kynnast gróskumiklu skólastarfi allra skólastiga í sveitarfélaginu. Þetta er í fyrsta skipti sem skólarnir kynna sig…Lesa meira

true

Dramatískur sigur Snæfells

Snæfellskonur halda mikilli spennu í baráttunni um sæti í úrslitakeppni Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Þær mættu Haukum í hörkuleik í Stykkishólmi á laugardaginn og sigruðu eftir æsispennandi lokamínútur, 76-74. Mikið jafnræði var með liðunum í upphafsfjórðungnum og þau fylgdust að fyrstu mínúturnar. Undir lok leikhlutans náðu gestirnir smá rispu og leiddu með fjórum stigum…Lesa meira

true

Bilaðir jeppar sunnan Þórisjökuls

Í nótt voru björgunarsveitir á Suðurlandi kallaðar til leitar að fólki á Langjökli. Aðstandendur fólksins, sem er á þremur jeppum, hafði samband þar sem farið var að óttast um það. Sjö jeppar voru sendir á Langjökul eftir tveimur leiðum en fljótlega tókst að staðsetja fólkið ekki langt frá Þórisjökli, sunnan Langjökuls. Um hálfáttaleytið sá björgunarsveitarfólk…Lesa meira

true

Gestirnir sterkari í síðari hálfleik

Skallagrímskonur töpuðu gegn KR, 66-85, þegar liðin mættust í næstsíðustu umferð Domino‘s deildar kvenna. Leikið var í Borgarnesi á laugardaginn. Skallagrímskonur byrjuðu leikinn betur og höfðu yfirhöndina lengst framan af fyrri hálfleik. Þær náðu átta stiga forskoti í fyrsta leikhluta sem KR minnkaði niður í tvö. Skallagrímskonur svöruðu því og leiddu með fimm stigum eftir…Lesa meira

true

Verulegur fjárhagsvandi ungs fólks vegna skyndilána

Umsækjendur sem óskuðu aðstoðar Umboðsmanns skuldara (UMS) vegna fjárhagsvanda fjölgaði um 6,5% á árinu 2018 miðað við árið á undan. Mest fjölgaði umsækjendum sem voru á aldrinum 18-29 ára. Umboðsmaður skuldara hefur áður vakið athygli á vaxandi fjölda ungs fólks í vanda vegna töku skyndilána en UMS skilgreinir skyndilán sem lán tekin á vefsíðum eða…Lesa meira

true

Sveitarfélög á Vesturlandi verða af 330 milljónum úr Jöfnunarsjóði

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur mótmælt harðlega fyrirhugaðri skerðingu ríkisins á framlögum til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Sjóðurinn hefur það hlutverk að jafna fjárhagsstöðu milli sveitarfélaga og því mun skerðing á framlögum koma harðast niður á fámennum sveitarfélögum, einkum í dreifbýli. Samkvæmt samantekt sambandsins er áætlað að sveitarfélög á Vesturlandi verði af ríkisframlagi til útgjaldajöfnunar og vegna fasteignaskatts…Lesa meira

true

Áfram haldið með ljósleiðaravæðingu í dreifbýli

Skrifað hefur verið undir samninga um svokalla samvinnustyrki til sveitarfélaga sem greiðast úr ríkissjóði í gegnum Fjarskiptasjóð auk byggðastyrkja sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið úthlutar. Renna styrkirnir til ljósleiðaravæðingar í tengslum við verkefnið Ísland ljóstengt. Fjórtán sveitarfélög eiga að þessu sinni kost á byggðastyrk á grundvelli byggðaáætlunar og 22 sveitarfélög eiga kost á samvinnustyrk. Samningarnir gefa…Lesa meira

true

Stefnt verður að lengingu fæðingarorlofs

Í félagsmálaráðuneytinu er nú hafin vinna við heildarendurskoðun laga um fæðingar- og foreldraorlof í samráði við hagsmunaaðila. Þetta kynnti Ásmundur Einar Daðason ráðherra barnamála á ríkisstjórnarfundi fyrir helgi og sagði vel við hæfi enda verða á næsta ári liðin 20 ár frá gildistöku laganna. Samhliða þessu er stefnt að því að fæðingarorlof verði lengt í…Lesa meira